Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2011, Blaðsíða 3
Hinsegin dagar í Reykjavík eru nú haldnir í þrettánda sinn. Það sem
eitt sinn var lítil eins dags hátíð, sem fimmtán hundruð gestir sóttu,
hefur vaxið og dafnað með hverju ári og er núna litrík fjögurra daga
hátíð sem 80–90 þúsund manns sækja.
Hinsegin dagar hafa ótrúlega þýðingu fyrir samkynhneigða,
tvíkynhneigða og transfólk á Íslandi. Hátíðin hefur eflt fólki kjark og
verið því vettvangur til að standa stolt frammi fyrir samborgurum
sínum. Hinsegin dagar eru staðfesting þess að samstaðan færir
okkur djörfung og virðingu þegar rétt er á málum haldið.
En hátíðin hefur ekki eingöngu verið hinsegin fólki ávinningur
í baráttu þess. Hinsegin dagar eru einn litríkasti þátturinn í menn-
ingarlífi Reykvíkinga og njóta meiri vinsælda en flestir aðrir
viðburðir á Íslandi. Viðurkenningin sem þjóðin sýnir með þátttöku
sinni, gleði og stuðningi er stærsta inneign Hinsegin daga.
Stjórn og samstarfsnefnd Hinsegin daga hafa undanfarið ár
unnið að hátíðinni sem fram fer dagana 4.–7. ágúst, og boðið er
upp á litríkan hóp listamanna og fjölbreytt úrval atburða. Á þeim
erfiðu tímum sem þjóð okkar hefur gengið í gegnum síðustu ár er
mikilvægara en nokkru sinni fyrr að leita samstöðu og gleði á þann
einlæga hátt sem einkennir Hinsegin daga.
Við bjóðum Íslendinga og erlenda gesti velkomna á þrettándu
Hinsegin daga í Reykjavík og óskum ykkur góðrar skemmtunar.
V E l k o m i n Á H i n S E g i n d a g a Í R E y k j a V Í k
For the thirteenth time, we celebrate Gay Pride in Reykjavík. Our
cozy little pride, originally visited by some fifteen hundred onlook-
ers, has blossomed and evolved into a colourful four day celebra-
tion that attracts well over 80 thousand guests from all over the
world. Reykjavík Gay Pride is, in fact, one of the biggest small
Prides in the world.
Gay Pride is an unquestionably important event for lesbian, gay,
bisexual and transgender people in Iceland. The festival promotes
visibility and courage and provides us with a platform to manifest
our pride before our fellow citizens. The celebrations do not only
mark a successful stage in our struggle; Gay Pride is also one of the
most vibrant and popular events in Reykjavík’s cultural calendar.
By participating in the event in such large numbers, the Icelandic
people have shown us valuable support, recognition and respect.
This year, we have organized a programme that runs from 4–7
August, combining a colourful array of Icelandic artists and varied
events. Even though our nation’s economy has seen brighter days,
the Reykjavík Gay Pride aims to promote joy, solidarity and support
for one another during times of hardship.
It only remains to welcome Icelandic and foreign guests to the
thirteenth Reykjavík Gay Pride. We hope you have a wonderful
time!