Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2011, Side 36
36
Í gleðigöngu Hinsegin daga staðfestir
hinsegin fólk tilveru sína, sýnileika og
gleði. Þar sameinast lesbíur, hommar,
tvíkynhneigðir og transfólk í einum hópi
ásamt fjölskyldum sínum og vinum.
gleðigangan er hápunktur og stolt hátíðar-
innar. Hinsegin dagar skipuleggja hana
og ráða alfarið hvaða atriði fá aðgang að
henni. gangan er engu að síður sprottin
úr grasrótinni og það eru einstaklingar og
hópar sem móta og setja saman einstök
atriði hennar.
Í ár fær gangan nokkuð annan svip
en áður. Í stað þess að ganga laugaveg,
eins og við höfum gert frá upphafi, verður
nú stillt upp á Vatnsmýrarvegi, gengið
Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg og lækjargötu og
framhjá arnarhóli þar sem útitónleikarnir
eru haldnir (sjá kort). Þessi nýja gönguleið
er gagngert valin til að tryggja öryggi
hátíðargesta í mannþrönginni.
með nýrri gönguleið fá atriðin og vagn-
arnir líka mikið og voldugt rými sem áður
var óþekkt og því er mikilvægt að þátttak-
endur vandi skreytingar á vögnum sínum.
atriðum í gleðigöngunni fjölgar ár frá ári
og mörg hver hafa verið einstaklega glæsi-
leg. Hinsegin dagar leggja áherslu á það
að hvert atriði miðli skilaboðum sem varða
veruleika hinsegin fólks á einn eða annan
hátt. Skilaboðin geta verið með óteljandi
móti og þar skiptir hugkvæmni þátttakenda
miklu máli. Til þess að setja upp gott atriði
þarf líka að hugsa málin með fyrirvara.
Bestu atriðin kosta oftar en ekki litla pen-
inga. gott ímyndunarafl og liðsstyrkur vina
og vandamanna hrekkur langt.
Það er óheimilt að auglýsa fyrirtæki
eða þjónustu í göngunni án samráðs við
Hinsegin daga. Einungis fyrirtæki sem
auglýsa í dagskrárriti Hinsegin daga mega
auglýsa í göngunni að höfðu nánu samráði
við stjórn félagsins og göngustjórana, og
gleði gangan
viltu vera með atriði
fjöldi auglýsinga í henni er takmarkaður.
Leikstjórar til aðstoðar
Hinsegin dagar bjóða nú í fyrsta sinn
aðstoð leikstjóra sem gefa góð ráð til
göngufólks um það hvernig atriðin megi
njóta sín sem best. Ræðið hugmyndir ykkar
við ráðgjafa okkar og þau benda á leiðir
sem kosta lítið en setja ótrúlega flottan
svip á atriðin ykkar. leikstjórarnir sem
veita aðstoð og gefa góð ráð eru Tyrfingur
Tyrfingsson, tyrfingur@gmail.com (691
5209), Ásdís Þórhallsdóttir, asdis.th@gmail.
com (865 2545) og Sigríður jónsdóttir,
sigridur_j@hotmail.com (898 6893). Þau
hafa öll mikla reynslu af leikhúsi og uppá-
komum af öllu tagi.
Skráning og þátttaka
Þátttakendur sem ætla að vera með form-
leg atriði í gleðigöngunni verða að sækja
um það til Hinsegin daga eigi síðar en
1. ágúst. nauðsynlegt er að skrá atriði
með því að fylla út eyðublað sem finna má
á vefsíðunni,www.gaypride.is, og senda
það síðan í tölvupósti til göngustjóra á
netfangið gongustjori@gmail.com. nánari
upplýsingar veita göngustjórarnir Helga
(775 3562), Ásta (775 3561) og Setta (775
3563) en hægt er að senda þeim póst á
gongustjori@gmail.com. Sími Evu öryggis-
stjóra er 775 3564. Athugið að ekki er
hægt að veita fólki með atriði aðgang
að göngunni nema það hafi verið
tilkynnt skilmerkilega til göngustjóra.
Öllum er velkomið að taka þátt í göngunni
en Hinsegin dagar leggja áherslu á að það
fólk sem vill taka þátt í göngunni án þess
að vera með sérstakt atriði fylgi henni frá
upphafi. aðrir eru vinsamlega beðnir um að
bíða með að slást í hópinn þar til síðasti
vagninn hefur farið framhjá.