Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2012, Side 20
20
„Kynleiðrétting er ekki val, hún er nauðsyn,“
segir Hrafnhildur sem eftir 26 ára þögn tilkynnti
fjölskyldu sinni og vinum að hún væri ekki
strákur – heldur stelpa. Hún hafði þá lengi reynt
að bæla niður tilfinningar sínar og lifa sem
strákurinn Halldór Hrafn. Hlutverkaleikurinn var
henni óbærilegur og að lokum varð henni ljóst að
valkostirnir væru aðeins tveir – að svipta sig lífi
eða rjúfa þögnina.
Í þessari nýju heimildarmynd er fylgst með
Hrafnhildi leiðrétta kyn sitt. Rætt er við nánustu
aðstandendur hennar svo og geð- og lýtalækna.
Rýnt er í kynleiðréttingarferlið, fordóma sam-
félagsins, væntingar Hrafnhildar til lífsins og
breytta þjóðfélagslega stöðu hennar eftir aðgerð.
Veitir aðgerðin Hrafnhildi sálarró eða taka ný
vandamál við?
Heimildarmyndin Hrafnhildur verður frum-
sýnd í Bíó Paradís á fyrsta degi Hinsegin daga
í Reykjavík, þriðjudaginn 7. ágúst kl. 19:30.
Leikstjóri myndarinnar og framleiðandi er
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sem hefur meðal
annars starfað í Kastljósi Ríkisútvarpsins um
fjölda ára. Áhrifamikil og opinská kvikmynd um líf
og reynslu transfólks á Íslandi og hvað felst í því
að leiðrétta kyn sitt.
A new Icelandic documentary about
Hrafnhildur, who after 26 years of silence
announced to her family and friends that
she was not a man, but a woman. Finding
her former existence unbearable, she came
to realize that she was left with only two
choices: to take her own life, or break the
silence. A powerful film about the lives and
experiences of transgender individuals
in Iceland. Director: Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir. Premiere in Bio Paradis Cinema,
Tuesday 7 August, 7.30 p.m.
FRUMSÝNING Í BÍÓ PARADÍS, ÞRIÐJUDAGINN 7. ÁGÚST KL. 19:30
NÝ HEIMILDARMYND EFTIR
RAGNHILDI STEINUNNI JÓNSDÓTTUR
HRAFNHILDUR