Vinnan


Vinnan - 01.12.1945, Blaðsíða 40

Vinnan - 01.12.1945, Blaðsíða 40
Ignazio Silone: FONTAMARA Framhald Asgelr Matthíasson og október síðastliðið ár og bætti þá kjör meðlima sinna allverulega. Frá stofnun Félags blikksmiöa hefur aldrei verið ágreiningur um það, hvaða stefnu bæri að fylgja í skipulagsmálum Alþýðusambands Islands, enda geta ekki fámenn félög, sem eiga í baráttu við sterkan and- stæðing leyft sér neitt annað en að styrkja hverja þá viðleitni, sem miöar að því að einnig sé ríkjandi í heildarsamtökum stéttarfélaganna, svo þau geti verið þess megnug að veita það öryggi, sem í því felst. Eins og að líkum lætur þá fundu félagsmenn strax fyrir því , fyrsta verkfallinu, hvers virði það væri að hafa fé- lagssjóð að baki í vinnudeilum. Var því ákveðið að koma upp á sem skemmstum tíma, síðar var stofnaður sj úkrasty rktarsj óður. Nú munu sjóðir félagsins nálgast það bezta, sem þekkist innan annarra stéttarfélaga, ef miðað er við meðlimatölu. Enn þá er Félag blikksmiða fámennt, en nokkurrar fjölgunar má nú vænta á næstu missirum. Sem önnur stéttarfélög hefur Félag blikksmiða orðið að berjast fyrir tilveru sinni og til að ná því marki sem sett var í byrjun. Margt væri hægt að segja úr þeirri baráttu, en það mun ei gert að þessu sinni. Lœknirinn: — Hafið j>ér gefið manninum yðar svefn- skammtana eins og ég sagði yður? Frúin: — Já, ekki hef ég svikizt um það. Eg hef gefið honum þá reglulega á tveggja tíma fresti, en erfiðast er að vekja hann til að taka þá inn. geymdi stöðugt í minningu sinni, hafði hrunið til grunna fyrir þrjátíu árum. í stað hans var komin framandi og vitskert veröld, þar sem allt gekk öfugt. Kafóníarnir höfðu haldið áfram að plægja jörðina með tréplógi, meðan borgarbúar plægðu himininn með flugvélum. Kafóníarnir höfðu haldið áfram að nurla saman kop- arpeningum, meðan borgarbúar litu ekki við öðru en þúsundlíruseðlum. Kafóníarnir gátu ekki satt hungur sitt, þó að þeir þræluðu frá því fyrir dagrenningu og langt fram á nótt, meðan borgarbúar græddu morð fjár á þvi einu, að láta misþyrma sér á göturn úti. I járnbrautarlestinni hafði hetjan fengið heim með sér áróðursbækling frá nýju stjórninni til kafóníanna. Við'vonuðum, að í þessum bæklingi gæturn við ef til vill fengið upplýsingar um, hvað vekti fyrir nýju stjórn- inni, og þess vegna þyrptumst við í kringum hetjuna, sem las upphátt. Bæklingurinn hófst á kvæði um uppskerumennina, en það var svo háfleygt, að enginn okkar gat botnað í því. Hinir kaflar bæklingsins voru skiljanlegir, og þeir fjölluðu um dásemdir sveitalífsins. Eg minnist eftirfarandi setninga: „Hvert fara borgarbúar, þegar þeir leita kyrrðar og hvíldar ? Út í sveitirnar. Borgarbúar eru horaðir, taugaóstyrkir, fölir og’ þunglyndir. Sveitamenn eru þróttmiklir, glaðværir, hraustir og bjartsýnir. Svo er nýju stjórninni fyrir að þakka, að kafóníarn- ir vinna ekki nema 8 tíma á dag nú orðið. Kafóníarnir eru tryggðir gegn slysum, veikindum og atvinnuleysi. Skattarnir á kafóníunum hafa verið lækkaðir. Bankarnir standa kafóníunum opnir til útlána.“ Bæklingnum lauk með eftirfarandi orðum: „I stuttu máli sagt eru völdin í höndum bændanna. Loksins hefur hin ítalska landbúnaðarþjóð fengið stjórn í samræmi við kröfur sínar. Hagsmunamál bónd- ans sitja í fyrirrúmi, því að bóndinn er fulltrúi föður- landsins.“ 264 VINNAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.