Vinnan


Vinnan - 01.05.1946, Page 23

Vinnan - 01.05.1946, Page 23
Etftfert Þorbjarnarson FYRSTI MAÍ 1046 Enn á ný kveikir 1. maí hugi vinnandi stéttanna sam- an um heim allan án tillits til þjóða, trúarbragða, litar- hátta eða stjórnmálaskoSana. Þennan dag staSfestir verkalýSur allra landa, aS enda þótt barizt sé við mismunandi aðstæður, á mismunandi tungum og við mismunandi menningarskilyrði, slá hjörtu verkamanna í takt, hvort sem er í Ameríku eða RáSstjórnarríkjunum, Islandi eða Suður-Afríku, Bret- landi eða Kína. 1. maí sýnir verkalýðsstéttin, að það fer óaðskiljan- lega saman að vera þjóðlegasta stétt síns lands og halda á lofti hinu stolta kjörorði: Oreigar allra landa sam- einist! SíSan 1. maí í fyrra hafa þrír atburðir skeð, er vald- ið hafa nýjum viðhorfum verkalýðsins og allra þjóða heims: Styrjöldin við fasismann var til lykta leidd og friður rann aS nýju yfir flest lönd jarðar. VerkalýSurinn stofnaði sér nýtt alþjóðasamband, mörgum sinnum fjölmennara og þróttmeira en það, er leystist upp í stríðsbyrjun. Kjarnorkan kom til sögunnar. AS loknu stríði eru þjóðirnar farnar að byggja upp og bera balsam á undir sínar. ErfiSleikar þeirra eru við hvert fótmál og hungurvofan leggur ljá sinn að lífi veru- legs hluta mannkynsins. ÞaS skipulag, er atti þjóðun- um út í styrjöld, h’efur ekki aðeins lagt á þær þyngstu mannfórnir stríðsins sjálfs. ÞaS hefur einnig lagt á þær hinn þunga kross hungurs, kulda og húsnæðisleysis. En þó að heimsstríðinu sé lokið, er fasisminn og yfir- drottnunarstefnan sjáanlega ekki að velli lögð. Jafnvel stórar, en varnarlitlar þjóðir eins og Indónes- ar verða að heyja áfram vopnaða baráttu til þess að forða sér frá þeim örlögum að verSa framvegis nýlendu- þjóð. Og kjarnorkan — ein örlagaríkasta uppgötvun manns andans —, sem glæstar vonir mannkynsins eru tengdar við, en jafnframt ótti og skelfing, er enn þá einokuð af 2—3 ríkjum og vitneskjunni um hana beitt í viðskiptum við umheiminn. Naumast var styrjöldinni lokið, er afturhaldsmenn ýmissa landa hófu opinberan áróður fyrir nýrri styrj- fJtifundur 1. Maí fyrir utan Menntaskólann V I N N A N 87

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.