Vinnan - 01.05.1946, Síða 24
Fyrir utan sendiráð Sovétríkjanna 1. maí 1945
öld •— kjarnorkustyrjöld. ÞaS er sýnilegt, að þeir einir
vilja nú stríð, sem eiga andstæða hagsmuni við þjóð-
irnar, við vinnandi fólkið. Þeir einir vilja stríð, sem
vilja drottna yfir öðrum þjóðum auk sinna eigin: aftur-
haldssömustu auðjöfrarnir, ráðamenn auðhringanna, er
spenna yfir meiri part jarðar.
En þjóðirnar vilja enga nýja styrjöld heldur varan-
legan frið.
Um allan heim vona menn, að gifta mannkynsins
verði drýgri en kaldrifjaður áróður stríðsæsingamanna.
Við höfum leyfi til þess að vona, að svo verði, m. a.
vegna þess, að hlutur verkalýðsins og alþýðunnar hefur
aldrei verið meiri en nú.
En friðurinn verður ekki varinn nema í vægðarlausri
baráttu við þá, er tendra vilja ófriðarbálið.
Þessa baráttu hafa alþjóðasamtök verkalýðsins sett
á dagskrá sína. Og jafnvel minnstu þjóðir heims geta
lagt þyngra lóð á vogarskál friðarins en virðist við
fyrstu sýn.
Undir kjörorði friðarins munu milljónir launþeg-
anna í öllum löndum heims halda 1. maí 1946 hátíð-
legan.
-X
1. maí 1945 var haldinn í tákni hínnar byrjandi ný-
sköpunar atvinnulífsins.
Verkalýðshreyfingin hafði lýst sig eindregið fylgj-
andi stefnuskrá þeirrar ríkisstjórnar, er tók til starfa
haustið 1944.
Gegn nýsköpunarstefnunni hafði afturhaldið sett
hrakspár sínar um hrun og atvinnuleysi.
Og án efa er það, að hefði ekki stefna nýsköpunar,
framfara og framkvæmda verið upp tekin, þá væri
hrunið komið með tilheyrandi atvinnuleysi og tilraun-
um til að lækka kaup verkafólksins og lama samtök
þess.
Nú er hálft annað ár liðið síðan núverandi ríkis-
stjórn hófst handa um framkvæmd stefnuskrár sinnar.
A þessum stutta tíma hafa meiri framkvæmdir og
stórvirkari verið gerðar eða hafnar en á nokkru öðru
sambærilegu tímabili í sögu þjóðarinnar.
Til landsins er á leiðinni nýr skipastóll, er mun geta
tvöfaldað afköst fiskiflotans og stóraukið atvinnu- og
1 Bankastræti 1. maí
88
VINNAN