Vinnan - 01.05.1946, Blaðsíða 41
Vörabílastöðin Þróttur
flytur í ný húsakynni
Vörubílstjórafélagið Þróttur flutti afgreiðslustöð sína
í ný og glæsileg húsakynni við Rauðarárstíg og Skúla-
götu, 10. marz s.l. Við það tækifæri bauð stjórn Þróttar
tíðindamönnum útvarps og blaða ásamt fulltrúum frá
Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykjavík og Al-
þýðusambandinu, að skoða hin nýju húsakynni og
kynnast því starfi, sem þar fer fram.
Formaður félagsins, Einar Ogmundsson, hafði orð
fyrir stjórninni og gat hann í ræðu sinni helztu orsak-
anna til flutnings stöðvarinnar og áforma stjórnarinnar
til aukins félags- og fræðslustarfs, en félagið hefur með
hinum nýja húsakosti bætt mjög aðstöðu sína til slíkrar
starfsemi.
í tilefni af þessum tímamótum í starfssögu Þróttar,
óskaði „Vinnan“ eftir því við formann félagsins, að
hann leyfði birtingu á ræðu þeirri, er hann flutti 10.
marz s.L, svo og ef hann vildi segja eitthvað um stéttar-
samtök bifreiðarstjóra almennt. Varð hann góðfúslega
við þessu og fer hér á eftir fyrrgreind ræða ásamt
nokkrum hugleiðingum um samtök bifreiðastjóra.
Árið 1931, þegar Vörubílastöðvarnar í Reykjavík
voru sameinaðar, en þær voru þá 5 talsins, var það þá
þegar öllum ljóst, að fyrir slíkan rekstur þyrfti rúmgott
pláss, bæði fyrir bílstjórana og einnig fyrir tækin.
Síðustu árin, þegar hinir atvinnulegu möguleikar or-
sökuðu hina gífurlegu fjölgun innan okkar stéttar, varð
það meiri nauðsyn að skipta um samastað, og nú upp á
síðkastið knýjandi þörf. Sá staður, sem við höfum verið
starfandi við til þessa, hefur að mörgu leyti verið óhent-
ugur, léleg og óholl húsakynni, þægindalaus, og gatan
einhver sú fjölfarnasta í miðbiki bæjarins geymslu-
staður bifreiðanna.
Það má því segja, að það geti fleiri glaðzt en félags-
menn Þróttar yfir flutningi til þessa nýja staðar, eins
og segja má með flutning bílstöðvanna úr miðbænum
yfirleitt. En það er samt sem áður stórt atriði, sem við
bílstjórarnir höfum gert okkur ljóst að getur verið okk-
ur til baga í sambandi við flutning okkar hingað, og það
er fjarlægðin frá okkar aðalvinnustað — höfninni. Frá
þeim vinnustað höfum við' fjarlægzt allmjög, og er það
máske það versta.
Árið 1937 veitti bærinn Þrótti lóð undir rekstur sinn
norðan lóðar Hreyfils að Sölvhólsgötu og hefði sá stað-
ur að sjálfsögðu verið okkur mjög ákj ósanlegur. En
því var ekki að heilsa að bærinn hefði aðstöðu til að
standa við þá lóðarveitingu, og nú erum við hingað
komnir og setjumst hér að og erum eftir atvikum
ánægðir.
Undanfarin ár, þegar hin mikla fjölgun fór að verða
innan félagsins, urðu hin lélegu og ófullkomnu húsa-
kynni fjötur á eðlilegu félagsstarfi, fjötur sem nú er
ekki lengur til staðar og má óhikað segja að félagsmenn
Hin nýju húsakynni Þróttar. — AríS 1945 veitti
Reykjavíkurbœr Vörubílstjórajélaginu Þrótti lóS,
sem liggur milli RauSarárstígs og Hringbrautar
viS Skúlagötu. Lóð þessi er aS stœrð 3000 ferm.
Stöðvarhúsið er að stœrð 160 ferm. og um 800
kúbikmetrar. HúsiS er byggt úr Vikurholsteini. —
Aðalsalur hússins er 105 ferm.; auk þess er í hús-
inu afgreiðsluherbergi og tvö skrifstofuherbergi.
Kjallari er undir nokkrum hluta hússins og er þar
miðstöð og geymsla. — Húsið er allt olíumálað og
frágangur allur svo góður sem tök hafa verið á. —
Byggingarframkvœmdir að byggingunni voru hafn-
ar í aprílmánuSi 1945 og er byggingu hússins lok-
ið fyrir nokkru.
VINNAN
105