Vinnan - 01.05.1946, Side 44
samband gæti orðið innflutningsaðili fyrir þær vöru-
tegundir, sem við notum mest, í náinni samvinnu við
samvinnufélög smáútvegsmanna o. fl.
Þá vil ég minnast á eitt mál, sem varðar bifreiða-
stj órastéttina öðrum landsmönnum fremur, en það eru
vegamálin. Það mál er svo mikils virði og hefur svo
mikla þýðingu fyrir atvinnu okkar og afkomuöryggi,
að það hlýtur ávallt að verða eitt af höfuðviðfangsefn-
um stéttar okkar. Krafa okkar í þessu efni er sú, að
vegakerfi landsins verði stórlega aukið og endurbætt,
svo að það geti fullnægt hinni gífurlega vaxandi flutn-
ingaþörf landsmanna.
Loks vil ég minnast á umferðamálin. Þau eru nú eitt
af mestu vandamálunum, sem þjóðin á við að stríða.
Þessi mál eru ekki einkamál bifreiðastjóranna, heldur
mál allrar þjóðarinnar.»Viö höfum gert þær kröfur til
framkvæmdavaldsins, að þessi mál verði tekin til ræki-
legrar endurskoðunar þegar í stað. í því sambandi má
benda á að samtök bifreiðastjóra hafa haft forgöngu
um þær tillögur, sem helzt mættu verða til úrbóta í
umferðamálunum. Væntum við þess að valdhafarnir
láti ekki undir höfuð leggjast að framkvæma þær end-
urbætur sem nauðsynlegastar eru í umferðamálunum.
Þegar litið er aftur í tímann til þeirra tíma er stétt
okkar var skipt í marga ósamstæða hópa með hin ólík-
ustu sjónarmið á gildi samtakanna, þá er það Ijóst, að
mikið hefur áunnizt með samtökunum. Þótt þau hafi
fært okkur marga og stóra sigra í hagsmunabaráttunni,
þá eru enn þá mörg og mikilvæg verkefni óleyst, en
þessi verkefni munum við leysa með samstilltum vilja
og trú félaganna á samtök sín.
Og að lokum þetta: Islenzkir bifreiðastjórar, hvar
sem þið skipið ykkur á sviði þjóðmálanna, þá fylkið
ykkur allir sem einn maður undir merki allsherjarsam-
takanna, Alþýðusambands tslands í starfi þess fyrir
bættum kjörum og aukinni menningu íslenzkrar alþýðu.
Vinnan óskar Vörubílstjórafélaginu Þrótti til ham-
ingju með hið nýja starfsheimili sitt og tekur eindregið
undir ofangreind lokaorð formanns Þróttar.
Frúarvísa
úr þinginu
Oss þykir Jónas mikill maður vera,
margur af öfund brann.
Enginn hefur ætlað sér að gera
eins margar frúr og hann.
Þingfrú.
108
VINNAN