Vinnan


Vinnan - 01.05.1946, Síða 40

Vinnan - 01.05.1946, Síða 40
A1 liýíluKaini»isiiei í§iand§ Framh. af hls. 99. Hinn sameinaði verkalýður gerist nú í fyrsta skipti brjóstfylking í sókn þjóðarinnar til fullkomins sjálf- stæðis og styrkasti verjandi þess. Þegar vér nú í dag lítum til baka og bregðum upp fyrir sjónum vorum hinum .fáu, er fyrstir hófu merkið, — og lítum svo í kringum oss nú, getum vér sannfærst um að fórnir brautryðjendanna og dáðir hafa eigi verið unnar fyrir gýg. Þegar vér nú í dag leggjum eyra við röddum liðna tímans, greinum vér enn háttbundið fóta- tak hinna 30 sjómanna á Skólavörustígnum fyrir 52 árum, — þetta fótatak frumherjanna verður að dyn tugþúsundanna, sem í dag hafa um gjörvallt landið slegizt í för með þeim, og fyrsta gönguljóðið: „Vei þeim fólum, sem frelsi vort svíkja“, verður að gný þjóðar, sem mun dæma að verðleikum hvern þann, er svíkja vill eða selja frelsi hennar. Þegar vér nú í kvöld lítum yfir 650 manna hópinn, sem stóð að stofnun Alþýðusambands íslands, 12. marz fyrir 30 árum og berum hann saman við þá rúma tvo tugi þúsunda, sem nú eru skipulagðir innan þessa sam- bands, getum vér um leið og vér heiðrum minningu brautryðjendanna, sannfærst um, að hin fyrsta ganga þeirra hafi góð verið og giftudrjúg, — og vér viljum geta kallazt sannir arftakar þeirra. En góðir sambandsfélagar, nær og fjær! Það fylgir vandi þeirri vegsemd að vera arftaki góðra manna og stórra málefna. Gerum oss Ijóst, að skyldan við fortíðina er krafa nútíðar og framtíðar um starf og baráttu. Enn bíða óteljandi verkefni í hagsmunamálum al- þýðunnar. Gerum oss ljóst, að þótt liðsafli vor hafi meir en þrítugfaldazt á hinum liðnu 30 árum, hafa verkefnin vaxið að sama skapi og krefjast af oss því öflugri einingar. Höfum það hugfast nú, að án hinn- ar vaxandi stéttareiningar íslenzkrar alþýðu á undan- Þingvísa ort í tilefni af því, að Bjarni á Reykjum strauk fjöður af kápu einnar starfsstúlku Alþingis. Mig hefur gæfan oftast elt að öllum mínum leikjum. Þó hef ég eina fjöður fellt fyrir hann Bjarna á Reykjum. Þingfrú. förnum árum, væri nú í dag komið atvinnuleysi í landi voru. Og veruni þess jafnvissir að án framhald- andi stéttareiningar verkalýðsins innan Alþýðusam- bands Islands verður nýsköpun atvinnuveganna ekki knúin fram að settu marki, né vágesti atvinnuleysisins bægt frá dyrum verkafólks. Og síðast en ekki sízt: Fyrir sjálfstæði íslands getur alþýðan engum trúað nema sjálfum sér. Þess vegna verður verkalýður Islands, í bandalagi við annað vinn- andi fólk, anda og handar, að efla sig til forustu í landi sínu, jafnt út á við sem inn á við. — En svo verður eigi nema hann standi trúlega vörð, jafnt inn á við sem út á við, gegn hverjum þeim, sem rjúfa vill einingu hans. Góðir sambandsfélagar, nær og fjær! Enn eru tímamót í sögu þjóðarinnar, — enn eru ris- mál í lífi verkalýðsins, sem krefjast öflugri og vökulli stéttareiningar hans en áður. — Hinn lifandi veruleiki þessarar einingar er og á að vera Alþýðusamband Is- lands. 1 dag kallar sagan oss til ábyrgðar fyrir því, að svo megi verða á komandi tímum. Frá verkalýðsfélögnm Framh. af bls. 101. báta sína, sem kunnugt er, í ofviðrinu snemma í vetur. Tvö frystihús eru á staðnum og skortir þau tilfinnanlega hráefni meðan bátarnir eru svo fáir. Verkalýðsfélag Skagastrandar var stofnað árið 1933 fyrir forgöngu Erlings Ellingsen verkfræðings. Hefur félagið unnið að hækkun kaups og öðrum kjarabótum verkafólks, eftir því sem föng hafa verið á hverju sinni. Oft hefur félagið orðið að sætta sig við lágt kaupgjald. En nú er á þessu orðin mikil breyting til batnaðar og hefur nýbyggingin á staðnum einnig á því sviði orðið fólkinu lyftistöng. Félagið hefur nýlega gert kaupsamn- ing við atvinnurekendur og fékk með honum ein beztu kjör, sem gilda í sambærilegum kauptúnum á Norður- landi. Vöntun á samkomuhúsi hefur háð öllu félagsstarfi á Skagaströnd og hefur það einnig komið niður á verka- lýðsfélaginu. Nú hefur verkalýðsfélagið og hreppurinn keypt sameiginlega stóran hermannaskála, flutt hann frá Blönduósi til Skagastrandar og reist hann þar að nýju og er hann samkomuhús kauptúnsins. Hefur með þessu fengizt ágæt bráðabirgðalausn á þessu vandamáli. Formaður verkalýðsfélagsins er Pálmi Sigurðsson, ungur og áhugasamur verkamaður, sem hefur fullan hug á eflingu félagsstarfsins á komandi árum. 104 VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.