Vinnan - 01.06.1946, Blaðsíða 8
TIl alþýðu allra landa
1. maí ávarp frá Alþjóðasambandi verkalýðsins
Hið vinnandi mannkyn, sem eftir hörmungar
undangenginna styrjaldarára, elur vonina um
betra líf og bjartari framtíð, sér í samtökum sín-
um þann mátt, er megnar að láta hinar björtustu
vonir rætast.
Með verkalýðssamtökin að vopni heyr vinn-
andi alþýða heimsins baráttu sína gegn fátækt
og skorti, fyrir þjóðfélagslegu öryggi, baráttuna
gegn fasisma og stríði, fyrir varanlegum, réttlát-
um friði, baráttuna gegn ofbeldi og kúgun, fyrir
þjóðlegu sjálfstæði.
Alþjóðasambandið, sem var grundvallað í eldi
styrjaldarinnar, fætt af sigurvilja alþýðunnar, er
megnaði að sigrast á þýzka nasismanum og jap-
anska hernaðarofstækinu, er að verða hið lang-
þráða mark verkalýðsins: Fullkomin sameining
verkalýðs alls heimsins
í krafti þessarar staðreyndar skorar Alþjóða-
sambandið á þau fáu landssamtök, er ennþá
standa utan við, að sameinast Alþjóðasamband-
inu og mynda með því eina órofa samtakaheild
verkalýðs alls heimsins, án tillits til mismunandi
þjóðernis, litar og pólitískra eða trúarlegra skoð-
ana.
Á sama hátt og eindrægni og samstarfsvilji
ræður alþjóðasamtökum verkalýðsins, verða
samtök hinna sameinuðu þjóða að vera borin
uppi af viljanum til félagslegs samstarfs á grund-
velli réttlætis og jafnréttis.
Því aðeins geta þessi samtök orðið við þeim
vonum er þjóðirnar bera í brjósti um réttlátari
skiptingu þeirra verðmæta er vinnan skapar.
Á öldinni, sem leið, kom fram hið volduga
kjörorð: Oreigar í öllum löndum sameinist.
Þetta kjörorð varð fáni allra þeirra er skildu
nauðsyn þess, að verkalýðurinn eignaðist sín al-
þjóðasamtök til að berjast fyrir frelsi sínu og
réttindum.
Við hyllum í dag verk þessara brautryðjenda,
sem með starfi sínu lögðu grundvöllinn að því
verki, sem við erum að ljúka, sköpun alheims-
sambands allra verkalýðsfélaga.
Og við minningu þeirra heitum vér því að
vinna ötullega að:
1. frelsi allra þjóða.
2. fullnaðarsigri lýðræðisins yfir fasismanum, í
hvaða mynd sem hann birtist.
3. algerri útrýmingu nazismans í Þýzkalandi.
4. réttlátari skiptingu þeirra verðmæta er vinnan
skapar, og aukinni kaupgetu allra launþega.
5. endurreisn þess er styrjöldin lagði í rústir.
6. hjálpa þeim þjóðum, er harðast voru leiknar af
styrjöldinni, til að endurreisa atvinnulíf sitt og
almenna velmegun.
7. gera samtök sameinuðu þjóðanna að tæki í
þjónustu friðar og réttlætis.
8. aðstoða alla þá er berjast fyrir frelsi sínu eins
og spánska alþýðan.
I dag, þegar afturhaldsöfl heimsins og auð-
hringarnir beita öllum ráðum til að ræna þjóðirn-
ar ávöxtunum af sigrinum, snýr Alþjóðasam-
bandið máli sínu til yðar, vinnandi fólk um all-
an heim.
Sláið skjaldborg um samtök yðar, eflið þau og
styrkið, tryggið á þann hátt leiðina til framfara
og menningar.
Lifi heimsfriðurinn.
Lifi sameining verkalýðsins um heim allan.
Lifi Alþjóðasamband verkalýðsins.
130
VINNAN