Vinnan - 01.06.1946, Page 25
mikla áherzlu á, að bætt yrði úr árstíðaatvinnuleysinu, sem enn
er landlægt í flestum kauptúnum norðanlands.
Ennfremur samþykkti ráffstefnan harðorff mótmæli gegn
hverskonar afsali íslenzkra landsréttinda í hendur erlendra
stórvelda og gegn setu Bandaríkjahers í landinu.
Allar samþykktir ráðstefnunnar verða fjölritaðar og sendar
sambandsfélögum á Norðurlandi.
Það, sem fyrst og fremst einkenndi þessa ráðstefnu, var sú
ágæta eining og sá heilbrigði stéttasamhugur, sem ríkti í öllum
umræðum og ályktunum hennar. Allar ályktanir voru gerðar
einróma og yfir ráðstefnunni hvíldi blær alvöru og festu. Full-
trúar margra félaga og fjarlægra staða fengu þarna einstakt
tækifæri til kynningar, sem mörgum mun verða minnisstæð, og
til örvunar í hinum margvíslegu störfum að hagsmuna- og rétt-
indamálum verkalýðsstéttarinnar á hinum ýmsu stöðum.
I lok ráðstefnunnar sátu fulltrúar boð verkalýðsfélaganna á
Siglufirði við bíósýningu í Alþýðuhúsinu og kaffidrykkju á
eftir. Voru þar fluttar margar ræður og látið fjúka í kviðling-
um, enda voru í hópi fulltrúanna margir ágætir hagyrðingar.
Þann 25. apríl skoðuðu fulltrúarnir ríkisverksmiðjurnar og
nýbyggingarnar undir leiðsögn þeirra Hilmars Kristjónssonar,
framkv.stjóra, og Leós Guðlaugssonar, byggingarmeistara. Þótti
fulltrúunum þetta mjög fróðlegt, enda höfðu margir þeirra ekki
komið í síldarverksmiðju áður.
Guðmundur Vigfússon, erindreki Alþýðusambands Islands,
mætti á ráðstefnunni sem fulltrúi miðstjórnar.
Samningur vörubílstjóra í Keflavík
Þann 5. maí s.l. var undirritaður kjarasanmingur milli ný-
stofnaðrar bílstjóradeildar Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur annarsvegar og Utgerðarmannafélags Keflavíkur og Vinnu-
veitendafélags Keflavíkur og nágrennis hinsvegar. Samkvæmt
þessum samningi er kaup vörubifreiða sem hér segir: Fyrir allt
að 2ja tonna bifreiðar kr. 12.00 og fyrir 2ja og 2ja og hálfs
tonns kr. 14.50 pr. klst., enda hafi þær vélsturtur. Innifalið í
kaupi bifreiðarinnar er kaup bifreiðarstjóra, er nemur 3 kr. á
klst. og kemur dýrtíðaruppbót mánaðarlega á þann hluta kaups-
ins. Fullgildir meðlimir vörubílstjóradeildarinnar sitja fyrir
vinnu hjá atvinnurekendum.
Nýr samningur Iðju á Akureyri
I byrjun aprílmánaðar voru undirritaðir samningar um kaup
og kjör verksmiðjufólks milli Iðju, félags verksmiðjufólks á
Akureyri, annarsvegar og Saumastofu Eiríks Kristjánssonar á
Akureyri, hinsvegar. Hafði Iðja engan samning áður haft við
þetta fyrirtæki. Helztu atriði samningsins eru þetta:
1. Mánaðarkaup saumakvenna:
Byrjunarlaun ..................... kr. 185.00
Eftir 3 mánuði .................... — 215.00
Eftir 6 mánuði .................... — 235.00
Eftir 9 mánuði .................... — 265.00
Eftir 12 mánuði ................... -— 320.00
2. Greiddir skulu allt að 14 veikindadagar á ári, þeim sem
unnið liafa eitt ár eða lengur, öðrum í hlutfalli við það, hve
lengi þær hafa verið í þjónustu fyrirtækisins.
3. Vinnutíminn er ákveðinn 8 stundir á dag, 48 stundir á viku.
Á tímabilinu frá 1. maí til 1. sept. skal vinnuvikunni lokið á 5
dögum, en ekkert unnið á laugardögum.
Auk þessa var samið um ákvæðisvinnutaxta á ýmsum fram-
leiðsluvörum saumastofunnar. — Samningurinn gildir frá 10.
apríl 1946 til 10. apríl 1947.
Verkamenn í Sandvíkurhreppi iá kauphækkun
Þann 22. marz s.l. náðist samkomulag milli verkamannafél.
Þórs í Sandvíkurhreppi og atvinnurekenda um þá kauphækkun,
að almenn dagvinna verði framvegis greidd með kr. 2.65 á klst.
í stað kr. 2.45, eins og áður var. Að öðru leyti helzt samningur
milli aðilja óbreyttur.
Aðalfundur Félags ísl. hljóðiæraleikara
Félag íslenzkra hljóðfæraleikara hélt aðalfund sinn 5. maí
s.l. Stjórn félagsins var endurkosin og er skipuð þessum mönn-
um: Bjarni Böðvarsson formaður, Skafti Sigþórsson ritari og
Carl F. Weiszappel gjaldkeri.
Nýr kjarasamningur rakarasveina í Reykjavík
Þann 11. apríl s.l. var undirritaður kjarasamningur milli
Rakarasveinafélags Reykjavíkur og rakarameistara í Reykjavík.
Samkvæmt þessum samningi er vikukaup rakarasveina nú kr.
150.00, var áður kr. 149.00. En aðalbreytingin frá eldri samn-
ingi er sú, að lokunartími rakarastofa að vetrinum verður fram-
vegis kl. 4 e. h. í staff kl. 6 áffur.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Kaldrananeshrepps
Á aðalfundi Verkalýðsfélags Kaldrananeshrepps voru þessir
menn kosnir í stjórn félagsins: Einar Sigvaldason formaður,
Andrés Magnússon varaform., Helgi Sigurgeirsson ritari, Bjami
Bæringsson gjaldkeri og Höskuldur Bjarnason fjármálaritari.
Aðalfundur Brynju á Þingeyri
Verkalýðsfélagið Brynja á Þingeyri hélt aðalfund sinn 24.
marz s.l. I stjórn félagsins voru kosnir: Sigurður E. Breið-
fjörð form., Ingi S. Jónsson ritari, Leifur Jóhannesson gjald-
keri, Kristján H. Jóhannesson og Steinþór Benjamínsson með-
stjórnendur. Varaformaður var kosinn Björn Jónsson.
Sjúkrasjóður félagsins jókst á árinu um kr. 5.175.96 og er nú
orðinn kr. 14.780.00
Vörn á Bíldudal gerir samning við atvinnurekendur
um öryggisútbúnað
Þann 15. apríl s.l. var undirritaður samningur milli Verk-
lýðsfélagsins Vörn á Bíldudal og atvinnurekenda á staðnum, um
öryggisútbúnað við vinnu. Eru mörg góð og nauðsynleg ákvæði
í samningi þessum um útbúnað við vinnu, bæði í skipum og í
verksmiðjum og frystihúsum.
Nýr kjarasamningur Verkalýðsfélags Þórshafnar
Þann 13. apríl s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkalýðsfélags Þórshafnar og atvinnurekenda þar. Samkvæmt
þessum nýja samningi hefur tímakaup karla í dagvinnu hækkað
úr kr. 2.00 í kr. 2.20, kaup kvenna og drengja úr kr. 1.20 í kr.
1.40, skipavinna úr kr. 2.20 í kr. 2.42, mánaðarkaup karla úr
kr. 400.00 í kr. 450.00. Álag í eftirvinnu er nú 50% en á nætur-
og helgidagavinnu 100%.
Nýr kjarasamningur rafvirkja
Þann 15. apríl s.l. voru undirritaðir samningar milli Félags
íslenzkra rafvirkja og meistara. Tímakaup rafvirkja í dagvinnu
er nú kr. 3.55, að meðtöldum verkfærapeningum. Eftirvinna er
greidd með 50% álagi, en nætur- og helgidagavinna með 100%
álagi.
VINNAN
147