Vinnan - 01.06.1946, Síða 26
Nýr kjarasamningur á Flateyri
Þann 4. apríl s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkalýðsfél. Skjöldur á Flateyri og atvinnurekenda.
Með samningi þessum hefur meðal annars dagvinna karla
hækkað úr kr. 2.10 í kr. 2.45 um klst., kaup í skipavinnu úr
kr. 2.40 í kr. 2.69, kola-, salt- og sementsvinna úr kr. 2.75 í kr.
3.00 á klst. og kaup kvenna og unglinga úr kr. 1.50 í kr. 1.75
á klst. Dagvinna reiknast nú frá kl. 7.30 til kl. 17, en var áður
frá kl. 7 til 17. Eftirvinna reiknast nú frá kl. 17—20.30, en var
áður frá kl. 17 til kl. 22. Næturvinnutíminn hefur breytzt í sam-
ræmi við þetta. Eftirvinna öll greiðist nú með 50% álagi á dag-
vinnukaup, en nætur- og hedgidagavinna með 100% álagi. Aður
var öll eftirvinna hjá hraðfrystihúsunum, önnur en skipavinna,
greidd með aðeins 25% álagi og nætur- og helgidagavinna, önn-
ur en skipavinna, með 50% álagi.
Fyrir fiskþvott, sem ávallt skal fara fram í ákvæðisvinnu,
greiðist: Fyrir hver 160 kg. stórfisks kr. 2.74 og fyrir hver 160
kg. labradorfisks kr. 2.33.
Ráði karlmenn sig upp á mánaðarkaup, skal grunnkaup þeirra
ekki vera lægra en kr. 465.00 á mánuði, en hjá konum kr. 330.00.
Þegar samningar voru undirritaðir, hafði vinnustöðvun staðið
yfir í eina viku. — Samtök verkamanna voru ágæt.
Aðalfundur Sóknar
Starfsstúlknafélagið Sókn í Reykjavík hélt aðalfund sinn 10.
apríl s.l. I stjórn voru kosnar:
Formaður: Vilborg Olafsdóttir, varaformaður: Asdís Magn-
úsdóttir, ritari: Elín Jóelsdóttir, gjaldkeri: Vilborg Björnsdóttir,
meðstjómandi: Guðrún Kjerulf. — I varastjórn voru kosnar:
Bjarnfríður Pálsdóttir, Ingiríður Ingjaldsdóttir og Helga Þor-
kelsdóttir.
Nýr kjarasamningunr A. S. B. í Reykjavík
30. apríl voru undirirtaðir kjarasamningar milli A. S. B., fé-
lags afgreiðslustúlkna í brauða- og mjólkurbúðum í Reykjavík
annarsvegar og Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, Alþýðubrauð-
gerðarinnar og Bakarameistarafélags Reykjavíkur hinsvegar. —
Samkvæmt þessum samningum hækkar grunnkaup stúlknanna
sem hér segir.
Fyrir 8 stunda vinnudag:
Fyrstu 3 mánuðina ....... kr. 230.00 á mán. Áður kr. 205.00
Eftir 3 mánuði ........-—- 250.00 — -— -—- — 220.00
_ 6 — — 270.00 - — — — 235.00
_ 12 — -— 300.00 - — — — 255.00
_ 18 — — 330.00 - — — — 270.00
_ 5 ár ......— 360.00 - — — — 290.00
Fyrir 5 stunda vinnudag:
Fyrstu 3 mánuðina ....... kr. 170.00 á mán. Áður kr. 150.00
Eftir 3 mánuði ..........— 180.00 - — — — 160.00
_ 6 — — 200.00 - — — — 175.00
— 12 — — 225.00 - — — — 190.00
_ 18 — — 245.00 - — — — 200.00
— 5 ár ......— 265.00 - — — — 215.00
Öll yfirvinna hækkar í hlutfalli við þetta. Samningurinn gildir
til 1. maí 1947.
15 ára afmæli Verkalýðsfélags Bolungavíkur
Verkalýðsfélag Bolungarvíkur minnist 15 ára starfs síns með
veglegu samsæti og skemmtun laugardaginn 13. apríl s.l. Félag-
ið er stofnað 27. maí 1931 og hefur haft mikla þýðingu fyrir
verkalýð þorpsins í kjara- og menningarmálum. Á samsætinu
fluttu þeir Ágúst Vigfússon kennari og Hannibal Valdimarsson
frá Isafirði ræður. Auk þess söng blandaður kór undir stjóm
Sigurðar E. Friðrikssonar og kvikmyndir voru sýndar. Haraldur
Stefánsson, sem verið hefur í stjórn félagsins frá stofnun þess,
var heiðraður sérstaklega í afmælishófinu og afhent 500 króna
gjöf í viðurkenningarskyni. Formaður félagsins er nú Jón
Tímótheusson.
Aðalfundur Verkamannafélags Vopnafjarðar
Á aðalfundi Verkamannafélags Vopnafjarðar voru þessir
menn kosnir í stjórn félagsins: Ragnar Sigurðsson formaður,
Sigmundur Davíðsson ritari og Pétur Nikulásson gjaldkeri.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Flateyjar
Á aðalfundi Verkalýðsfélags Flateyjar voru eftirtaldir menn
kosnir í stjóm félagsins: Friðrik Salómonsson formaður, Jón
Guðmundsson ritari, Sigurjón Ámason gjaldkeri, Vigfús Stef-
ánsson og Reynir B. Stefánsson meðstjómendur.
Nýir Iðju-samningar á Akureyri
Iðja, félag verksmiðjufólks á Akureyri, sagði upp kjara-
samningum sínum við S. I. S. og K. E. A. sJ. vetur og vom
þeir útrunnir 1. maí sJ.
Samkomulag náðist um nýja samninga fyrir milligöngu sátta-
semjara, og fela þeir í sér allmikla hækkun á kaupi og nokkr-
ar aðrar kjarabætur. Fullt kaup karla hækkaði um kr. 27.50 og
kvennakaupið eins. — Fara hér á eftir nokkrir aðaltaxtar iðn-
verkafólksins, eins og þeir em eftir nýju samningunum (tölum-
ar í svigum eru kaupið eins og það áður var).
Kaup karla í Gefjun, skóverksmiðju Iðunnar
og 2. fl. sútunarverksmiðju Iðunnar:
Byrjunarlaun .................. kr. 290.00 (276.00)
Eftir fyrstu 3 mánuðina ..........— 345.00 (315.00)
Eftir 6 mánuði .................— 385.00 (357.50)
Eftir 9 mánuði .................— 420.00 (375.00)
Eftir 12 mánuði ................. — 460.00 (402.50)
Eftir 24 mánuði ................. — 475.00 (447.50)
Kaup karla í II. fl. sútunarverksm. Iðunnar:
Byrjunariaun .................. kr. 315.00 (296.00)
Eftir fyrstu 3 mánuðina ......... — 370.00 (335.00)
Eftir 6 mánuði .................— 410.00 (377.50)
Eftir 9 mánuði .................— 445.00 (395.00)
Eftir 12 mánuði ................. — 485.00 (422.50)
* Eftir 24 mánuði ................ — 500.00 (467.50)
Konur í Gefjun, Skóverksmiðju Iðunnar og Hanzkagerðinni:
Bvrjunarlaun .................. kr. 180.00 (171.00)
Eftir fyrstu 3 mánuðina .........— 210.00 (190.00)
Eftir 6 mánuði .................— 230.00 (215.00)
Eftir 9 mánuði ...................— 255.00 227.50)
Eftir 12 mánuði ................. — 290.00 (250.00)
Eftir 24 mánuði .................— 300.00 (272.00)
Samskonar samningur var gerður við Saumastofu Gefjunar.
Þá hækkaði premía vefara í Gefjun um 10 prc. á pr. ofinn
meter. — Samningana önnuðust fyrir hönd „Iðju“, þeir Jón
Ingimarsson, Hallgrímur Jónsson og Ríkarð Þórólfsson.
ASalfundur Verkalýðsfélags Grindavíkur
Verkalýðsfélag Grindavíkur hélt aðalfund sinn í marzmán.
s.l. I stjórn félagsins voru kosnir: Svavar Árnason formaður,
Guðbrandur Eiríksson ritari og Grétar Jónsson gjaldkeri.
Framh. á bls. 154.
148
VINNAN