Heimilispósturinn - 15.06.1950, Blaðsíða 4
„Ég hef gaman af
að keppa.“
ViðtaJ við Kolbrúnu Ólafsdóttur sundkonu.
Kolbrún Ölafsdóttir sund-
Tcona er fœdd Reykvíkingur.
Hún er aðeins 17 ára gömul,
en á þó mörg met í sundi, auk
þess sem hún tók þátt í Olym-
píúleikunum í London 19J/8 þá
aðeins 15 ára gömul. Met á
hún í frá 50 til JfOO metra skrið-
sundi og 50 og 100 metra bak-
sundi. Fyrsta met sitt setti hún
á Ármannsmóti 1947, þá að-
eins llf ára gömul. Var það í
50 metra skriðsundi. Heimilis-
pósturinn hefur átt stutt viðtal
við ungfrú Kolbrúnu og fer það
hér á eftir.
— Þér hafið ekki verið göm-
ul þegar þér byrjuðuð að keppa.
— Ég var 12 ára. Ég byrj-
aði að æfa haustið 1946 og tók
þá strax í nóvember þátt í
keppni. Það var á Ármanns-
móti. Ég keppti þar í bringu-
sundi, en annars hef ég iðkað
mest skriðsund og baksund.
— Svo fóruð þér á Olympíu-
leikana.
— Já, við fórum þrjár héð-
an til að keppa þar í sundi.
Hinar voru Anna Ólafsdóttir og
Þórdís Árnadóttir. Þær kepptu
báðar í 200 metra bringusundi,
en ég í 100 metra skriðsundi. Þá
Kolbrún Ólafsdóttir.
meiddi ég mig í fæti og hef lít-
ið getað æft síðan. Þó keppti ég
í fyrra á í. R. móti og setti met
í 50 metra skriðsundi. En ég
get ekki æft núna og býst ekki
við að geta keppt næsta vetur,
en í sumar verða sennilega
engin mót. Annars vona ég að
þetta batni, því ég hef mikinn
áhuga á sundi og hef gaman af
að keppa.
2
HEIMILISPÖSTUfUNN
9 9 9