Heimilispósturinn - 15.06.1950, Blaðsíða 27

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Blaðsíða 27
„Hvað er að pabbi?“ spurði Steve. „Ég veit það ekki vel, dreng- ur minn. En mér lízt ekki á sandinn. Jarðvegurinn hefur verið góður hingað til, en nú lítur út fyrir að við höfum lent í jökulleir.“ Webber hló. „Hann er byrjað- ur strax. Hann hefði átt að vita það. Steve er ekki fyrr kominn, en Joe fer að hafa áhyggjur. Það er allt í lagi með jarðveg- inn, Joe, það ert þú sem ert smeykur." „Ef til vill,“ sagði Joe. „En ég hef unnið undir þessu fljóti áður. Ég er viss um, að við rekumst á malarlag hérna áður en lýkur.“ „Vertu ekki með áhyggjur,“ sagði Steve hlæjandi. „Stálið er ágætt. Það má sneiða það eins og ost.“ Hann stakk skóflunni í stálið og fínn sandur streymdi úr skóflustungunni og myndaði hring við fætur hans. Kynlegur hvinur heyrðist, þegar þrýsti- loftið streymdi inn í holuna. „Farðu varlega þarna,“ sagði Joe höstugt. „Fljótið er fyrir ofan þig og það langar að kom- ast inn.“ Steve hló. Faðir hans var af gamla skólanum. Varkárni — nákvæmni — það var það, sem gömlu mennirnir hugsuðu um. Hraði — það var kjörorð nú- tímans. Áfram með jarðgöngin, áfram með skjöldinn — það var aðferð ungu mannanna. Hann hamaðist svo að svit- inn bogaði af honum. Hann sneri sér Við, þreif planka frá aðstoðarmanni sínum og skorð- aði hann upp við stálið. Hann þrýsti á hann með hnénu og tróð heyi með brúnunum. Svo tók hann þvingu og skrúfaði plankann þar til brast í honum. „Þetta er allt í lagi, pabbi,“ sagði hann. Hann hélt áfram að vinna. Hvinur loftsins söng í eyrum hans og blóðið fossaði í æðum hans af þrýstingnum. Þetta var reglulegt karlmannsverk: að berjast við fljótið, gKafa göng undir ógnandi vatnsflauminn; beita þekkingu sinni og styrk gegn náttúruöflunum. „Farðu þér rólega, piltur minn,“ sagði Joe aðvarandi. „Þú ert með skóflu í höndunum, en ekki sóp. Settu nokkrar fjal- ir fyrir stálið, áður en þú mok- ar meiru.“ „Það heldur,“ sagði Steve. „Ég tefst á því að setja fjalir fyrir.“ „Tefst — en þú drepur þig, ef þú gerir það ekki,“ hrópaði Joe. „Náðu í nokkrar fjalir og troddu heyi með þeim, heyrirðu það!“ „Hættu að nöldra í drengnum, Joe,“ kallaði Webber. „Hann stendur sig vel.“ „Það var rétt, Frank,“ kall- aði Steye. „Talaðu við hann. Hann heldur að ég sé barn.“ Hann stakk skóflunni aftur í stálið og loftið hvein í holunni með reiðiþyt. „Asninn þinn!“ hrópaði Joe. „Ertu heyrnarlaus. Hlustaðu! Jafnvel loftið er að reyna að koma vitinu fyrir þig. Náðu í fjalir og lokaðu stálinu.“ Steve glotti: „Þú ættir að heldur að hugsa um það, sem þú átt að gera — eða á ég að koma og hjálpa þér?“ „Hvað segir þú — hvolpurinn þinn!“ Joe reiddi skófluna til $ ? ? HEIHILISPÓSTURtNN 25

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.