Heimilispósturinn - 15.06.1950, Page 11

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Page 11
Phi . . . hann vilji leggja af stað snemma í dögun. í>au þekkja hvorki þig né bílinn. Ég verð tilbúin og við getum lagt strax af stað.“ „Já.“ Hún heyrði röddina í fjar- lægð; hún varð gripin kennd fagn- aðar og lausnar. „En þú veizt, hvað það þýðir. Ef ég kem aftur. Ég sagði þér það.“ „Ég er ekki hrædd. Ég trúi þér ekki ennþá, en ég er ekki lengur hrædd að reyna.“ Aftur heyrði hún rödd hans í fjarska. „Ég giftist þér ekki, Elly.“ „Allt í lagi, elskan. „Ég er að segja þér að ég er ekki lengur hrædd við að reyna það. 1 dögun. Ég verð tilbúin." Hún fór í bankann. Eftir nokkra stund kom Philip til hennar þar sem hún beið, æst á svip og föl í andlit- inu undir púðrinu, augun skær og hörð. „Þú verður að gera svolitið fyrir mig. E>að er erfitt að biðja um það, og ég býst við að það verði erfitt að veita það.“ „Auðvitað geri ég það. Hvað er það?“ „Amma kemur heim á sunnudag- inn. Mamma vill að við ökum þang- að á laugardaginn og sækjum hana.“ „Allt í lagi. Ég get farið á laugar- daginn.' „Ég var að segja þér, að það væri erfitt. Ég vil ekki að þú farir.“ „Viltu ekki að ég fari . . .“ Hann leit á fölt, tekið andlit hennar. „Viltu fara ein?“ Hún svaraði ekki, en horfði á hann. Allt í einu hallaði hún sér upp að honum með æfðri, vélrænni hreyfingu. Hún tók annan handlegg hans og lagði hann utanum sig. „Ó,“ sagði hann. „Ég skil. Þú vilt fara með einhverjum öðrum.“ „Já. Ég get ekki útskýrt það núna. Ég geri það seinna. En mamma skil- ur það ekki. Hún lofar mér ekki að fara, nema hún haldi, að það sért þú.“ „Ég skil.“ Handleggur hans var líflaus, hún hélt honum utan um sig, Hún hló, ekki hátt, ekki lengi. „Vertu ekik svona kjánalegur. Já. Það er annar maður með. Fólk, sem ég þekki ekki og ég býst ekki við aS hitta, áður en ég gifti mig. En mamma skilur það ekki. Þess vegna verð ég að biðja þig um þetta. Viltu * gera það?“ „Já. Það er allt í lagi. Ef við treystum ekki hvort öðru, þýðir okk- ur ekki að giftast." „Já. Við verðum að treysta hvort öðru.“ Hún sleppti hendi hans. Hún horfði fast og hugsandi á hann, meS kaldri og hnýsinni fyrirlitningu. „Og þú ætlar að láta mömmu halda . . .“ „Þú getur treyst mér. Þú veizt það.“ „Já, ég er viss um að mér er það óhætt." Allt i einu rétti hún honum höndina. „Vertu sæll.“ „Vertu sæl?“ Hún hallaði sér aftur upp að hon- um. Hún kyssti hann. „Farðu var- lega,“ sagði hann. „Einhver gæti. ..“ „Já. Þangað til seinna. Þangað til ég útskýri þetta.“ Hún færði sig frá honum og horfði á hann viðutan, hugsandi. „Ég býst við að þetta verði i síðasta sinn, sem ég veld þér erfið- leikum. Ef til vill verður þetta þess virði fyrir þig. Vertu sæll.“ Þetta var á fimmtudegi. 1 dögun á laugardagsmorguninn, þegar Paul stöðvaði bilinn fyrir framan myrkt húsið, kom hún strax hlaupandi yfir flötina. Hún stökk upp í bilinn, áður en hann gat stigið út og opnað hurð- ina, kastaði sér niður í sætið, laut áfram og sagði, æst og áköf eins og dýr á flótta: „Flýttu þér! Flýttu þér! Flýttu þér! Flýttu þér!“ En hann ók ekki strax af stað. 9 9 9 HEIMILISPÓSTURINN 9

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.