Heimilispósturinn - 15.06.1950, Síða 13

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Síða 13
rétti ömmu sinni spjaldið jafnvel áð- ur en hún var hætt að skrifa; svo reyndi hún að kippa þvi til sín aft- ur. „En amman hafði þegar náð taki á einu horninu og nú horfðu þær hvor á aðra, spjaldið tengdi þær saman eins og naflastrengur. „Slepptu!" hrópaði Elly. „Slepptu því!“ „Náðu því,“ sagði amman. ,,Bíddu,“ hvíslaði Elly og togaði í spjaldið. „Mér skjátlaðist. Ég —“ Með furðulega snöggri hreyfingu tókst ömmunni að snúa spjaldinu við, þegar Elly reyndi að kippa þvi til sín. ,,Ó,“ sagði hún, þegar hún las það upphátt: „Segðu honum frá þvi. Hvað veiztu. Einmitt. Þú gazt ekki lokið við það. Hvað veit ég?“ „Já,“ sagði Elly. Svo tók hún að hvísla í ákafa: „Segðu honum það! Segðu honum frá þvi að við fórum inn í skógarþykkni í morgun og vor- um þar í tvo tíma. Segðu honum það!“ Amman braut spjaldið saman hægt og rólega. Hún stóð upp. „Amma!“ hrópaði Elly. „Stafurinn minn,“ sagði amman. „Hann er þarna upp við vegginn." Þegar hún var farin, læsti Elly dyrunum og gekk þvert yfir her- bergið. Hún fór sér hægt, tók slopp frænku sinnar úr klæðaskápnum, af- klæddist og geispaði mikið. „Guð, hvað ég er þreytt,“ sagði hún upp- hátt og geispaði. Hún settist við snyrtiborðið, og fór að snyrta á sér neglurnar með áhöldum frænkunnar. Það var lítil fílabeinsklukka á snyrtiborðinu. Hún leit á hana annað veifið. Svo sló klukkan niðri tólf á mið- nætti. Hún sat andartak enn með höfuðið yfir gljáandi nöglunum, og beið eftir síðasta högginu. Þá leit hún á fílabeinsklukkuna. „Ég gæti ekki hugsað mér að fara eftir þér til að ná í lest,“ sagði hún við sjálfa sig. Og þegar hann leit á hana, kom sami George Brent þreytulegi örvæntingarsvipurinn á andlit hennar og um eftirmiðdaginn. Hún gekk til dyranna og frarn í gang- inn. Hún stóð í myrkrinu, berfætt, niðurlút, og barmaði sér eins og barn: „Allt er á móti mér,“ sagði hún við sjálfa sig. ,,Allt.“ Fótatak hennar heyrðist ekki. Hún rétti handleggina út í myrkrið. Henni fannst augun í sér snúast við í höfðinu og vita inn í kúpuna af áreynzlunni við að reyna að sjá. Hún fór inn í baðherbergið og læsti dyrunum. Hún hljóp út í hornið, sem lá að gestaherberginu beygði sig, bar lófana upp að munn- inum og hvíslaði: „Paul!“ „Paul!“ Hún hélt niðri í sér andanum meðan hvíslið dó út við kaldan vegginn. Hún niður, klunnaleg í lánaða sloppnum og starði örvæntingarfull með blind- um augunum út í myrkrið. Hún hljóp $ 5 S HEIMILISPÖSTURINN 11

x

Heimilispósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.