Heimilispósturinn - 15.06.1950, Qupperneq 14

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Qupperneq 14
að handlauginni, fann hanann og skrúfaði ofurlítið frá, svo að vatnið draup með gagntakandi tilhreyt- ingarleysl. Síðan opnaði hún dyrnar og stóð rétt fyrir innan þær. Hún heyrði klukkuna niðri slá háifa stund. Hún hafði ekki hreyft sig, og skalf af kulda, þegar hún sló eitt. Hún heyrði þegar Paul fór út úr gestaherberginu. Hún heyrði þegar hann kom inn eftir ganginum; hún heyrði þegar hönd hans fálmaði eftir slökkvaranum. Þegar ljósið kvikn- aði, var hún með lokuð augun. „Hvað er þetta?“, sagði Paul. Hann var í náttfötum af frænda hennar. „Hvern fjandann." „Læstu dyrunum," hvíslaði hún. „Fíflið þitt. Bölvað fíflið þitt.“ „Paul!“ Hún hélt honum eins og hún byggist við að hann myndi flýja. Hún lét aftur dyrnar og var að þreifa eftir lásnum, þegar hann greip um úlnlið hennar. „Hleyptu mér út!“ hvíslaði hann. Hún hallaði sér upp að honum, titrandi, og hélt honum. „Hún ætlar að segja pabba frá því. Hún ætlar að segja pabba frá' því á morgun, Paul!“ Milli þess að þau hvísluðu, heyrðist seytlið í vatninu. „Segja frá hverju? Hvað veit hún ?“ „Taktu utan um mig, Paul.“ „Fjandinn sjálfur, nei. Slepptu mér. Við skulum koma okkur út héðan.“ „Já þú getur bjargað þér. Þú get- ur komið í veg fyrir að hún segi pabba frá því.“ „Hvernig get ég það? Fjandinn hafi það allt saman. Slepptu mér!“ „Hún segir frá því, en þá gerir það ekkert til. Lofaðu því, Paul. Segðu að þú viljir það.“ „Giftast þér?“ Ertu að tala um það? Ég sagði þér í gær, að ég vildi það ekki. Ég skipa þér að sleppa mér.“ Hún hjúfraði sig upp að honum og svipur hennar, líkami hennar, var þrunginn ástríðufullum, seiðandi fyrirheitum. „Þú þarft ekki að gfit- ast mér. Viltu gera það?“ „Gera hvað?“ „Hlustaðu á mig. Þú manst eftir beygjunni með litlu hvítu grindun- um, þar sem er svo hátt niður? Ef bíll færi gegnum grindurnar . . „Já. Hvað um það?“ „Hlustaðu á mig. Þið væruð bæði í bílnum. Hún veit ekkert, fær ekki tima til að gruna neitt. Og litlu, gömlu grindurnar eru ónýtar og það verður sagt, að það hafi verið slys. Hún er gömul og þolir ekki mikið; kannske nægir geðshræringin ein, en þú ert ungur og ef til vill gerir það þér ekki . . . Paul! Paul!“ Rödd hennar virtist deyja út með hverju orði, hún talaði af ákefð og örvænt- ingu, meðan hann horfði niður á ná- fölt andlit hennar, í augu hennar, full af örvita og ástríðufullu fyrir- heiti: „Paul!“ „Og hvar ætlar þú að vera á með- an?“ Hún hreyfði sig ekki, hún var eins og svefngengill í framan. „Ó, ég skil. Þú ætlar að fara heim með lest- inni. Á ég ekki kollgátuna ?“ „Paul!“ sagði hún með langdregnu og biðj- andi hvísli. „Paul!“ Um leið og hann sló hana, opnað- ist hönd hans eins og hún neitaði af sjálfsdáðun að vinna verkið, og straukst við andlit hennar með titr- andi snertingu ekki ólíkt því, sem hún væri að gæla við það. Hann greip um hálsinn á henni og reyndi að slá hana aftur; en aftur neitaði höndin, eða eitthvað. Þegar hann hrinti henni frá sér, hrökklaðist hún upp að veggnum. Svo var hann farinn og þá rauf hægt og lágvært seytlið í vatninu aftur þögnina. Nokkru seinna sló klukkan niðri tvö, og hún 12 HEIMILISPÓSTURINN 5 9$

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.