Heimilispósturinn - 15.06.1950, Síða 17

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Síða 17
JOHN O’HARA: Vinkonur AÐ var eitt af þessum góðu, algengu veitingahúsum, rek- ið af fyrrverandi leyniknæpu- eiganda. Klukkan var kortér yf- ir eitt og það var allmargt fólk að snæða hádegisverð. Frú Flin- tridge var að kveikja sér í nikótínlausri sígarettu — hinni annarri á tuttugu mínútum. Hún var að horfa á logann á eldspítunni, þegar hún heyrði rödd segja: „Elskan, mér þykir þetta ákaflega leitt.“ Frú Flin- tridge hristi spítuna og lagði hana í öskubakkann, án þess að skeyta því þó að hún logaði áfram. „Hefurðu verið hérna lengi?“ spurði hin nýkomna. „Ég hef ekkert að gera, svo að ég kom stundvíslega svona til tilbreytingar," sagði frú Flin- tridge. „Mér þykir þetta ákaflega leitt, en ég kom með neðanjarð- arbrautinni og tafðist af um- ferðinni. Hvað ertu að drekka? Er það Daiquiri?“ Frú Walton settist. ,,Nei,“ sagði frú Flintridge. ,,Ó, koníak.“ Svo: „Ertu að drekka koníak?" „Ég er með annað glasið. Ég kom heim klukkan f jögur í nótt, eða ég held að minnsta kosti að hún hafi verið fjögur. Hún get- ur hafa verið meira. Við vorum í samkvæmi í klúbbnum. Hven- ær sem við Biid förum þangað, heitum við því að fara ekki oft- ar í vikunni, en hann hefur ver- ið góður upp á síðkastið og ég hélt að svolítið koníak —“ „Ég ætla að fá einn sterkan. Tvo sterka. Má ekki bjóða þér einn?“ „Ó, allt í lagi,“ sagði frú Flintridge. Næstu mínúturnar töluðu konurnar um umferðina og inn- kaup og hvað þær langaði til að borða, frú Walton komst ekki hjá að drekka eins mikið og frú Flintridge. Þær voru að hugsa um að fá sér létt vín með hádegisverðinum, en þar sem þær áttu báðar eftir í glösum sínum, hættu þær við það. Frú Flintridge sagði hreinskilnis- lega að sér félli hattur frú Wal- ton ekki í geð. Það var allt í lagi með hattinn, en henni fannst böndin aftan á honum vera í lengsta lagi. Frú Walton kvaðst vera smeyk um að svo væri, en var þó ekki viss. Hún ætlaði að láta stytta þau eða taka þau kannske alveg af. Frú Flin- tridge sagði, að hún skyldi ekki taka þau alveg af, en stytta þau aðeins ofurlítið. Hún sagðist óska þess að hún gæti verið með svona hatt, en frú Walton liti ekki út fyrir að vera orðin þrí- tug, en hún sjálf, frú Flin- tridge.liti út fyrir að vera orð- in þrítug eða meira. Frú Walton sagði frú Flintridge, að hún liti út fyrir að vera tuttugu og átta ára gömul, hún hefði litið út fyrir að vera tuttugu og átta ára fyrir fimm árum, og hún $ $ $ HEIMILISPÓSTURINN 15

x

Heimilispósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.