Heimilispósturinn - 15.06.1950, Page 19

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Page 19
toníaki og sóda.“ Drykkurinn var borinn á borð og þær tóku honum á mismunandi hátt; frú Walton leit á glasið og snerti það ekki í fyrstu, eins og það væri óvænt afmæliskaka í næt- urklúbb; en jafnskjótt ogþjónn- inn hafði blandað viskíið í glas frú Flintridges, tók hún það upp, varð píreygð og drakk af því stóran teyg. Nú voru þær komnar á það stig, þegar eitt glas getur slitið allar samræð- ? S ? ur. Meðan þær þögðu, kom veitingamaðurinn til þeirra. „Frúr,“ sagði hann og snéri sér síðan að Peggy Walton: „Frú Walton, herrann við barinn spyr, hvort hann megi bjóða glas. Hann segist vera vinur hr. Waltons og hafa hitt yður áður.“ „Þú ert að slá þér upp. Það er allt í lagi með hattinn,“ sagði frú Flintridge. „Ég bið afsökunar. Ég skal 17 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.