Heimilispósturinn - 15.06.1950, Qupperneq 20

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Qupperneq 20
tala við herrann," sagði veit- ingamaðurinn. „Ó — það er allt í lagi með hann,“ sagði frú Walton. Með- an á þessu stóð, kom maðurinn. „Frú Walton, ég ætlaði mér ekki að vera með átroðning, en ég heiti Arthur Luddy og þekki Harry vel, og ég hitti yður eitt kvöld í Storkklúbbnum. Þér voruð með — ég man ekki hvað hann heitir.“ Peggy Walton notaði tæki- færið til að kynna frú Flin- tridge. „Ó,“ sagði Luddy. „Komið þér sælar.“ Hann settist og lét færa sér glas sitt frá barnum. „Er gaman í Storkklúbbn- um?“ sagði frú Flintridge. „Ég hef aldrei komið þangað, og jafnvel Bxid hefur aðeins verið þar einu sinni.“ „Ég fer varla nokkurntíma,“ sagði Peggy Walton. „Mér þyk- ir ekkert gaman í næturklúbb- um.“ „Ég segi sama, en mér þykir gaman í Storkinum,“ sagði Luddy. „Þér virtust skemmta yður vel um kvöldið. Munið þér ekki eftir því? Það er engin ástæða til að þér munið eftir því, en náungi sem heitir Werle Stafford fór með mig að borðinu yðar til þess að hitta verzlunar- félaga sinn.“ „Werle Stafford?" sagði frú Flintridge. „Já. Þekkið þér hann?“ Frú Flintridge tók upp glas- ið sitt, starði ofan í það og leit þvínæst í skelfd augu Peggy Walton. „Hann er verzlunarfél- agi mannsins míns,“ sagði frú Flintridge. „Jæja, ha, ha, þá þekkið þér hann líkast til,“ sagði Luddy með góðlátlegri kímni. „Ég þekki hann ekki mikið. Ég rakst bara á hann, og hann var dá- lítið þéttur, og þér vitið —“ „Hr. Luddy,“ sagði Peggy Walton. „Viljið þér vera svo góður að hypja yður burt héð- an.“ „Já, hr. Luddy, viljið þér gera svo vel að hypja yður,“ sagði frú Flintridge. „Ha — hvað eigið þér við? Þér buðuð mér að setjast. En ég skal fara,“ sagði Luddy. Hann stóð upp, leit á konurnar til skiptis og gekk síðan að barn- um og tautaði eitthvað við sjálf- an sig. Konurnar sáu, að hann borgaði fyrir sig og fór út án þess að líta um öxl. Veitinga- maðurinn, sem hafði fylgst með öllu, kom til þeirra. „Frúr, mér þykir þetta mjög miður. Var eitthvað að?“ „Það er allt í lagi. Verið svo góður að fara,“ sagði frú Flint- indge. Þær horfðu hvor á aðra, og Peggy Walton kvaldist fyrst og fremst af því að henni var ljóst, að hún var dálítið ölvaðri, því að hún átti enga ósk heitari en að hún væri allsgáð nú. Hún drakk góðan teig úr glasinu og horfði á hönd sína setja það aftur niður á borðið. „Ég skal segja þér, hvering þetta gerðist,“ sagði hún. „Lof- aðu mér að gera það. Þú varst einhversstaðar í burtu og ég var í bænum og rakst á Bud af hend- ingu. Þú skilur. Og við —“ „Ó, hverju skiptir það, Peggy? Ég vissi, að það var einhver. Ég vissi bara ekki, að það varst þú, það er allt og sumt.“ A 18 HEIMILISPÓSTXJRINN 9 5 9

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.