Heimilispósturinn - 15.06.1950, Síða 24

Heimilispósturinn - 15.06.1950, Síða 24
staðar. Ég sagði honum aðeins, að ég ætlaði að vinna í fremsta hólfinu hjá honum.“ „Þú treystir mér þá ekki ein- um,“ sagði Steve. ,Það er ekki það, Steve. Ég býst við að þú verðir góður verkmaður. En þú hefur ekki hegðað þér skynsamlega í dag.“ „Hvað áttu við?“ „Þú fékkst bréfið frá mér í gær. Ég skrifaði þér, að við værum komnir talsverðan spöl undir fljótið. Ég hefði ekki átt að minnast á jarðgöngin. En ég gerði það, og nú hefur þú ráðið þig. Það var gáleysi af þér. Þrýstiloftið er ekki lengi að drepa menn undir fljótinu, ef þeim verður eitthvað á.“ Reiðiglampa brá fyrir í aug- um Steve. Snúðugt svar vár komið fram á varir hans. Red- manættin var bráðlynd. En í sömu andrá heyrðist þrumu- raust Stóra-Tims. „Af stað!“ Röddin yfirgnæfði hávaðann í salnum. Risinn stóð upp og gekk til dyranna. Þeir sem voru í flokki hans, köstuðu frá sér spilunum og risu á fætur. „Af stað!“ Verkamennirnir hnepptu treyjurnar upp í hálsinn og streymdu að lyftuopinu. Yfir því var hár trépallur og upp um hann miðjan komu lyfturnar, sem fluttu blautan sandinn neð- an úr göngunum, en á niðurleið voru þær hlaðnar bognum járn- plötum. Joe Redman og sonur hans stigu í eina lyftuna ásamt mönnum Stóra-Tims. Lyftan þaut með örskotshraða niður þröng göngin. Rakt og kalt loft gaus upp íjy djúpinu, dagsbirtan hvarf og rafmagnsljós tóku við. Rakir stálveggir ganganna þutu framhjá um leið og lyftan féll. Allt í einu kipptist lyftan til og mennirnir stigu út úr henni. Þeir voru staddir í hvelfingu, sem var við op jarðganganna. Þrír geysistórir járnsívaln- ingar sköguðu fram úr stein- steypuveggnum og voru ramm- gerðar járndyr á hverjum þeirra. Til vinstri voru dyrnar, sem sandinum úr göngunum var ekið út um. Við hliðina voru dyr fyrir verkamennina. Efst uppi við rjáfur ganganna voru öryggisdyrnar — síðasta von verkamannanna, ef fljótið bryt- ist inn í göngin. Þegar Stóri-Tim opnaði dyrn- ar, heyrðist ógurlegur hvinur. Það var þrýstiloftið, sem barst úr göngunum. Mennirnir stigu inn í langa járnsívalninginn og settust á trébekki, sem voru fyrir innan dyrnar meðfram veggjunum. Stóri-Tim lokaði dyrunum. „Eru allir tilbúnir?“ spurði hann og leit á menn sína. „Skrifaðu þá!“ Maðurinn, sem gætti þrýst- ingsmælisins, teygði höndina að snerli og skrúfaði frá. Loftið þaut öskrandi inn í sívalning- inn. Hinn skyndilegi þrýsting- ur olli kæfandi hita, loftið var því líkast sem það kæmi úr bræðsluofni. Vísirinn á mælin- um steig ört — fimm pund — tíu pund —■ fimmtán — tutt- ugu — „Hvernig líður þér í eyrun- um?“ kallaði Joe upp yfir hvin- inn. Steve kinkaði kolli til merkis um, að allt væri í lagi. Hann hélt um nefið og reyndi að láta 22 HEIMILISPÓSTURINN 9 9 9

x

Heimilispósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.