Vinnan - 01.12.1947, Blaðsíða 28
BJORN ÞORSTEINSSON
Marshal ofursti og Tékkar
Hjálpsamt íólk
Tékkar eru mjög hjálpsamir við útlendinga, og ég
sá ýmis dæmi þess, að þeir eru einnig snúningaliprir
innbyrðis. Ef ferðamaður veit ekki gjörla, hvert halda
skal í Praha, nægir að draga fram kortið og athuga
það, þótt hann viti, að það eitt komi sér að litlu haldi.
Þetta herbragð hafði þær afleiðingar í París, að hópur
leynisala þyrptist að manni, en í Praha ber ekki á þeim
flokki manna. A samri stundu og kortið er komið á
loft, safnast að manni 6—10 Tékkar, sem tala álitlegan
hluta af tungumálum Evrópu og bjóðast til að leiða
mann á rétta braut. Meira að segja afgreiðslufólk og
sporvagnsstjórar fylgdu mér oft nokkurn spöl til þess að
sjá um, að ég tæki ekki skakkan pól í hæðina. í sölu-
búðum var ég stundum í þann veginn að kaupa köttinn
í sekknum, þegar einhver náungi gaf mér bendingu.
„Þér eigið ekki að kaupa þetta. Það er ekki góð vara.“
Ferðaþættir
Síðan fræddi þessi kompáni mig ef til vill á því, hvar
bezt mundi að nálgast þessa vörutegund, ef hann taldi
hana kaupandi í landi sínu. Ég varð þess var, að slík-
um bendingum var óhætt að treysta. Þessi framkoma
Tékka kemur sér oft vel, en nálgast þó stundum að vera
þreytandi. Sumir telja hana vera slettirekuskap, aðrir
forvitni, þriðju exhibitionisma (Tékka langi til að
láta á sér bera og sýna málakunnáttu sína), fjórðu
minnimáttarkennd gagnvart því, sem erlent er, og þeir
finimtu telja þetta komið af hreinni og flekklausri gest-
risni. Af hvaða rótum, sem þetta er runnið, gerir þessi
framkoma ferðamanninum fremur auðvelt að kynnast
landi og þjóð.
Ijjpljl11
Bygging tryggingastofnana ríkisins
í Prag
250
VINNAN