Vinnan


Vinnan - 01.12.1947, Blaðsíða 29

Vinnan - 01.12.1947, Blaðsíða 29
Amerískur áróður Afslaða Tékka til annarra þjóða er yfirleitt mjög vinsamleg, þegar Þjóðverjum sleppir. Þýzka er næstum því annað móðurmál Tékkanna og þurfa þeir oft á þessari tungu erfðafjandans að halda. Mér virtist þeir njóta þess fyllilega flestir að skrafa á þessu máli, en mér var sagt, að vafasamt væri fyrir útlendinga að vera mjög mælskir á þýzku. I Austurríki og Sviss talar meginhluti íbúanna þýzku. Þegar þeir koma til Tékkó- Slovakíu festa þeir á sig merki, sem gefa það til kynna, að þeir séu ekki Þjóðverjar, heldur tali þeir austur- ríksku eða svissnesku, og þarf enginn Tékki að skamm- ast sín fyrir að tala við slíka menn. Fyrstu dagana þótti mér nóg um dálæti Tékkanna á Bandaríkj amönnum og því, sem ameríkst er. Þegar við hjónin vorum komin út á götur Praha klædd eftir nýj- ustu Reykjavíkurtízku, kom oft fram, að fólk hélt, að við værum úr ríki Trumans, og lét á ýmsan hátt í ljós fögnuð sinn yfir að sjá Bandaríkjamenn. Ég rakst einnig á tvær stórar upplýsingaskrifstofur á vegum bandaríkska sendiráðsins, þar sem Abraham Lincoln og Roosevelt forseta var stillt út og heilmikið veður gert úr lýðræðisást og frelsishug hinnar vestrænu þjóðar. Á aðalskrifstofu æskulýðsfélaganna í Praha var stærðar- mynd af Trumani fremst í gangirjum, en síðastir kornu félagarnir Stalin og Churchill hlið við hlið. Attlee og Bevin sáust hvergi. I bókabúðum sá ég fjölda af bók- um um vestræn efni. Ævisaga Eisenhowers var nýkomin út, einhverjir bæklingar voru til urn Roosevelt og fleiri merkismenn þar vestra. Ég átti tal við nokkra Tékka um það, hvort Bandaríkjamenn og þeirra fylgifiskar væru að auka áróðurinn í landinu. Þeir gerðu lítið úr því, að þetta væri nýtt fyrirbrigði og bentu mér á, að hér væri um enga pólitík að ræða. Bókaverzlanir kommúnistanna lægju t. a. m. sízt á liði sínu við að auglýsa ameríkskar bækur bæði í þýðingum og á frum- málinu. Þjóðinni væri í heild mjög vel við Bandaríkja- menn, sökum fornrar og nýrrar hjálpar þeirra við Tékka. Wilson forseti er næstum því þjóðhetja Tékka, Bandaríkj aherinn átti mikinn þátt í því að reka Þjóð- verja úr Bæheimi, og síðast en ekki sízt hafa Banda- ríkjamenn hjálpað fjölmörgum tékkneskum fjölskyld- um um fæði og klæði gegnum Unra á sínum tíma. Marshalplan, útþenslustefna Bandaríkjanna og maður með Battersby á höfðinu á götum Praha eru tvö óskyld fyrirbæri. Þeir vilja sýna höfðinu með barðastóra hattinn, að þeir eru langminnugir á það, sem þeim er vel gert, en það raskar ekki ákvörðunum þeirra um öryggismál sín. Margir virtust vera alluggandi um þróun stjórnmál- anna í vestanverðri Evrópu, sérstaklega í Bretlandi. Bandaríkin eru ekki hættuleg að þeirra áliti, nema þau fái sterka bandamenn í Evrópu, helzt í Englandi og Jóhanns Huss-torgið í Prag. Nikulásarkirkjan í baksýn og Pragkastali Þýzkalandi. Þess vegna eru rnargir forvitnir að vita eitthvað um stjórnarandstöðuna þar og uppreistina í Verkamannaflokknum brezka. Ég varð var við, að tékkneskum verkamönnum lék sérstök forvitni á að frétta um kjör stéttarbræðra sinna í Englandi: „Sie miissen geld haben,“ var viðkvæði þeirra. Þeir höfðu þá nasasjón af þjóðfélagsfræði, að þeir vissu, að stéttir og stéttasamtök eru máttlaus til allra góðra hluta, ef þau eru ekki efnalega sjálfstæð. Ekki okkur að kenna Mér finnst afstaða Tékka til Marshals-plansins lýsa þeim talsvert vel og afstöðu þeirra til umheimsins. Ég held, að talsverður hluti af Tékkum veigri sér við að hafna boði eða bæn erlendra þjóða og einstakra manna. Þótt þeir veiti ekki afsvar eða láti að nokkru líklega, þá er það engin sönnun þess, að þeir bregðist vel við boð- inu eða bæninni. Þegar minnka tók um gjaldeyri minn VINNAN 251
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.