Vinnan - 01.12.1947, Qupperneq 47
SAMBANDS-
'dðindi
V.,__________________________________________/
20. þing Alþýðusambands Islands
20. þing Alþýðusambands Islands (aukaþing) var haldið í
Reykjavík dagana 9.—11. nóv. s. 1. Þingið sóttu 208 fulltrúar
frá 99 sambandsfélögum.
Við þingsetningu minntist forseti sambandsins, Hcrmann
Guðmundsson, látinna forustumanna verkalýðshreyfingarinnar,
þeirra Péturs G. Guðmundssonar, ritstjóra fyrsta verkamanna-
blaðsins, sem gefið var út á íslandi, Jónínu Jónatansdóttur, er
lengi var formaður Framsóknar, Sigurðar Olafssonar, gjaldkera
Sjómannafélags Reykjavíkur og Einars Olafssonar, er var full-
trúi Verkalýðsfélags Hafnahrepps á 19. þingi sambandsins.
Fulltrúar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Farmanna- og
fiskimannasanibands íslands og Iðnnemasambands Islands
fluttu þinginu kveðjur og árnaðaróskir samtaka sinna.
Forseti þingsins var kjörinn Þóroddur Guðmundsson með
120 atkv., Helgi Hannesson fékk 74 atkv. Varaforsetar voru
kjörnir Guðgeir Jónsson og Steingrímur Aðalsteinsson.
Þingið samþykkti margar merkar og mikilvægar ályktanir. í
helztu hagsmuna- og menningarmálum alþýðunnar. Eru þa r
helztu birtar annars staðar hér í blaðinu.
Fræðslunámskeið A. S. í.
Fræðslunámskeið á vegum Alþýðusamltandsins fyrir meðlimi
verkalýðsfélaganna í Reykjavík hófst miðvikudaginn 19. nóv.
s. i. Námsgreinar eru saga verkalýðshreyfingarinnar, hágfræði
og félagsstarf. Kennsla fer fram í hverri námsgrein eina stund
í viku, og eru alls sex stundir ætlaðar hverri námsgrein. Sölvi
Blöndal hagfræðingur veitir námskeiðinu forstöðu.
Steíán Pétursson dæmdur
Þann 9. ágúst s. 1. féll dómur í máli því, sem stjórn Alþýðu-
sambands Islands höfðaði s. 1. vor gegn Stefáni Péturssyni
ritstjóra Alþýðublaðsins. Voru ummæli blaðsins dæmd dauð
og ómerk og Stefán dærndur til að greiða sekt og málskostnað.
Aðdragandi málsins var sá, að Alþýðusambandið hafði not-
ið lítilfjörlegs styrks frá Alþingi til þess að láta skrifa sögu
verkafýðshreyfingarinnar á íslandi. ,-r meðan afturhaldið á Al-
þingi var að svifta sambandið þessum stuðningi í vetur senr
leið, skrifaðí ritstj. Alþýðublaðsins eina af sínum alkurrnu og
góðgjörnu geðspektargreinurn um Alþýðusambandið, þar sem
sambandsstjórn var borin ærumeiðandi sökum varðandi ráð-
stöfurr rrkisstyrksins til söguritunarinnar.
Dómsniðurstaðair í máli þessu var svolrljóðandi:
„Framangreind ummæli skulrt vera ómerk.
Stefndi, Stefán Pétursson, greiði 200 króna sekt í rtkissjóð,
etr sæti 8 daga varðhaldi, verði sektin ekki greidd ittnan að-
fararfrests r máli þessu.
Stefndi greiði stefnanda, stjórn Alþýðusambands íslands, kr.
60,00 til að standast kostnað af birtingu dóms þessa.
Stefndi greiði stefnanda kr. 150,00 í málskostnað.
Dómi þessum ber að fullnægja iirnan 15 daga frá lögbirtingrr
hans, að viðlagðri aðför að Ifigum.
NÝIR SAMNINGAR
Nýr samningur hraðsaumastofanna í Reykjavík
28. sept. s. 1. voru. undirritaðir nvir kjarasamningar milli
Skjaldborgar, félags klæðskerasveina. og hraðsaumastofanna í
Reykjavík. Samkvænrt hinum nýju samningunr hækkaði gruirn-
kaup stúlkna unr 15 krónur á mánuði og fá þvr stúlkur, sem
eru í hæsta launaflokki kr. 330,00 í grrinnkaup á mánuði í stað
kr. 315,00 sem áður gilti. Samningurinn gildir til 15. apríl 1948.
Riddarinn má ekki hreyfa sig vegna 30. .... Hxb2 og síðan
Hbl+.
30..... Rc4xe5
31. Dd7—d6 Hb8xb5
32. Dd6xe5 Hb5xb2
33. c3—c4 ....
Til þess að valda hrókinn sinn. 33. Del yrði svarað með 33.
.... Hfb8.
33 ... Hb2—c2
34. De5—c7 ....
34. cxd, Bxd5 myndi aðeins hjálpa svörttim til að valda peðið
sitt á a2. Hvítur ætlar að leika drottningunni yfir á a-línuna og
taka hið óþægilega a-peð.
34 ... d5xc4
35. Dc7—a5 Bc8—d5
Peðið á a2 er dauðans matur, en c-peðið tekur við störfum þess.
^ 36. Da5—a4 Hc2—b2
37. Halxa2 Hb2xa2
38. Da4xa2 c4—c3
39. Da2—a3 ....
Drottningin má sín einskis gegn frípeði, hrók og biskupi.
VINNAN
39...... c3—c2
40. Da3—c3 Bd5—b3
41. Kgl—f2 h7—h6
Loftop fyrir kónginn, sem gerir hróknum kleift að greiða loka-
höggið.
42. Kf2—e2 Hf8—d8
43. Dc3—c7 Hd8—dl
44. Dc7—b8-j- Kg8—h7
45. Db8xb3
I von um 45. .... clD, þar sem 46. DxH myndi gefa honum
færi á að berjast lengi enn.
45...... c2—clR-j-
Hvítur gefst upp, þar sem svartur fær mann yfir í endataflinu.
Athugasemdir eftir M. Euwe, lauslega þýddar.
-*
Latrsn á skákdænrinu í síðasta blaði er 1. Dh3—h4. Og svart-
ur er mát í næsta leik, hvað senr hann gerir. — Næst getið þið
spreytt ykkur á því til gamans að raða mönnunum upp í byrj-
unarstöðu og láta srðan hvítan máta í 4. leik með því að svartur
leiki alltaf eins. — Lausn í næsta blaði.
269