Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Side 21
19
Ólafsvikar. Eins og getið er um í síðustu ársskýrslu, kom barna-
veiki upp á Sandi í desemberbyrjun. Um áramót höfðu komið fyrir
18 tilfelli á 11 heimilum, en fyrsta tilfellið á þessu ári skráð 14. jan-
úar. í febrúar nær veikin hámarki. Síðasti sjúklingurinn 26. júlí,
og hefir veikinnar ekki orðið vart síðan. Alls hafa frá byrjun komið
fyrir í Neshreppi 56 tilfelli á 34 heimilum. Af heimilunum voru 3 utan
ltauptúnsins, Ingjaldshóll, Sveinsstaðir og Rif. Læknis var yfirleitt
vitjað þegar í byrjun veikinnar, og fengu allir sjúklingarnir serum.
Veikin varð ekki þung á neinum, og enginn dó úr henni á þessu ári.
Skófirnar voru undantekningarlaust í pharynx — á tonsillae og í
kring, en aðeins í 2 tilfellum var vottur um larynx-stenosis, sem hvarf
skjótt við meðferðina. Frá Sandi barst veikin til Ólafsvíkur, og komu
þar fyrir 2 tilfelli, hið fyrra 23. apríl, en hið síðara 26. júlí. Voru þau
bæði einangruð, og breiddist veikin ekki út. Eins og getið var um í
síðustu ársskýrslu, kom upp almennur ótti um, að veikin myndi
breiðast út frá Sandi, og voru gerðar ráðstafanir til að verjast því.
Ég skýrði þá einnig frá því, sem ég vissi um bólusetningu gegn veik-
inni, og gaf kost á því að bólusetja, ef menn vildu taka á sig þann
kostnað. Varð það úr, að almenn bólusetning fór fram í 4 hreppum
héraðsins á börnum frá 10 vikna til 15 ára aldurs og fáeinum 15—20
ára. 1 5. hreppnum, Staðarsveit, var bólusett á nokkrum bæjum. Bólu-
setningin var framlcvæmd samkvæmt leiðbeiningum frá próf. Dungal.
I Ólafsvík var bólusett með 2 innspýtingum á mánaðarfresti, en í
hinum hreppunum var í seinni umferðinni notuð dreyping í nefið.
Fyrra sinni bólusett:
í Ólafsvík ......................... 2Vi2 145 börn
Á Sandi (og nágrenni) ............... 10/2 140 —
í Bervík (Breiðuvíkurhr.) .......... 15/o 15 —
í Fróðárhreppi ..................... 10/2 57 —
I Breiðvíkurhreppi Bervík) ... 17á 70 —
í Staðarsveit (útsveitinni) ........ 29A 17 —
Alls bólusett (börn og unglingar) 444
Árangurinn af bólusetningunni virðist hafa verið góður. Dró mjög
úr veikinni eftir febrúarlok, eða upp úr því að ætla mátti, að bólu-
setningin færi að verka. Hitt er þó eftirtektarverðara, að eftir það
veiktist ekkert hinna bólusettu barna og unglinga á Sandi, svo að
mér sé kunnugt, en aftur á móti tíndi veikin upp börn á þeim tiltölu-
lega fáu heimilum, sem ekki létu bólusetja. Annar sjúklingurinn í
Ólafsvik var bólusettur, og er það eina undantekningin, sem ég veit
um. Ég er ekki i vafa um, að bólusetningin hefir átt mikinn þátt í
því að verja héraðið utan Neshrepps, einkum Ólafsvík.
Miðfj. Barnaveiki koin upp á Hvammstanga um mánaðamótin jan.
—febr. og þá samtímis í 3 húsum og litlu síðar í 2 húsum öðrum. Alls
veiktust 5 börn og 1 fullorðinn maður, en 1 sjúkl. hefir fallið úr á
mánaðarskrá. 1 barn, 2% árs, dó á 2. sólarhring. Öll börn á Hvamms-
tanga og allinörg úti um héraðið voru bólusett, eða alls um 200 börn,
og bar ekki meira á veikinni. Eitt barnið, er sýktist, hafði nýlega