Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Page 29

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Page 29
27 fjórði veiktist aldrei, enda fann ég síðar í bókum mínum, að 1916 hafði ég verið sóttur til hans og margra systkina hans, sem öll voru með mislinga. Fullyrti þó móðir hans nú, að hann hefði aldrei haft þá veiki. Ennfremur kom það síðar í ljós, að tveir unglingar, aðrir en þeir, sem fyrr er getið, höfðu komið til G. Ó. þann 17. Um annan þeirra hafði amma hans fullyrt fyrir mér, að hann hefði haft misl- inga áður, en nú lagðist hann þann 27., þó ég fengi ekki um það að vita fyrr en nokkru síðar. Var hann nú einangraður og börn á 5 öðrum heimilum, sem hann hafði haft mök við. Tókst þannig að stöðva veikina hér. En annar hinna fyrrnefndu sjúklinga, E. J., hafði aðeins snöggvast stungið höfðinu inn í næsta herbergi við sjúkraherbergi G. Ó., en opið á milli. Hafði hann þar tal af konunni, en hún gleymt að minnast á hann við mig, er hún taldi gestina fram. En E. J. þessi fór til Rvíkur, veiktist þar af mislingum, og breiddist veikin þaðan út um landið og kom hér við aftur seinna á árinu. Alls veiktust hér 14 manns af mislingum í febrúar og marz. Barn G. Ó., 5 mánaða gamalt, sem oftast var hjá pabba sínum, meðan hann lá veikur, veikt- ist aldrei. Veikin var fremur væg, og' enginn dó. Af þessu mætti draga þessar ályktanir, sem líklega eru þó flestum kunnar áður: Mislinga- sjúklingar smita ekki frá sér á meðgöngutímabilinu, ekki fyrr en hiti kemur í sjúklinginn. En eftir það er jafnvel loftið í næstu herbergjum við sjúkraherbergið bráðsmitandi. Börn, 5 mánaða gömul ög yngri, eru ekki móttækileg fyrir mislinga. Ekki er treystandi umsögn eða vottorði mæðra almennt um æfiferil barna þeirra, er um heilsufar þeirra er að ræða. Þingeijrar. Bárust í héraðið úr Reykjavík í byrjun júnímánaðar. Gengu hér nokkuð í júní og júlí. Náðu þó aldrei mikilli útbreiðslu, en stungu sér niður hér og þar um héraðið. Voru í meðallagi þungir, en fylgikvillalitlir og höfðu eigi alvarleg eftirköst. Hóls. Mislingar gengu í júní, júlí, ágúst og fram í september, allerf- iðir á sumu eldra fólki. 2 börn fengu kveflungnabólgu. Enginn dó. ísafi. Fluttust hingað frá Reykjavík síðast í aprílmánuði. Veikin var frekar væg og lítið um fylgikvilla, nema hvað einstaka fengu bronchitis eftir á með háum hita. Enginn dó úr veikinni eða afleið- ingum hennar. Ögnr. Mislingar gengu hér alla sumarmánuðina. Máttu teljast frem- ur vægir. Sumt miðaldra fólk var þó talsvert þungt haldið, þótt allir slyppu við eftirköst. Á nokkrum heimilum hafði enginn fengið mislinga áður, og tókst algerlega að verjast þessum faraldri, þrátt fyrir allmikla umferð fólks á þeim slóðum. Reykjarfj. Faraldur kom hér upp í júní og gekk dreift yfir héraðið frá í ágúst. Veikin yfirleitt létt og virtist miklu minna smitandi og meira hægfara en venja er til. Hólmavíkur. Mislingar komu hingað með sjómanni frá Reykjavík í maímánuði. Reynt að einangra hann, en um seinan. Breiddist veik- in síðan hægt og hægt út um allt héraðið og hélzt fram í september. Einstaka heimili tókst að verjast veikinni. Áf fylgikvillum bar mest á kveflungnabólgu og eyrnabólgu. í að minnsta kosti einu tilfelli bloss-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.