Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Side 74
72
Borgarnes. í tveimur hreppunum er engin fæðing og í einum aðeins
ein, í þeim fjórða eru 4 og 7 í þeim fimmta, nefnilega Kolbeinsstaða-
hreppi. Þar hefir verið tiltölulega mest um fæðingar þessi síðustu
ár. Borgarnes er langhæst með 14. Eitt barn var andvana. Bæði ég og
ljósmóðir höfum skoðað konuna fyrir ca. tveimur vikum. Sagði
hún þá, að hreyfingar hefðu litlar sem engar fundizt síðustu dagana.
Við gátum ekki heyrt hjartahljóð og þóttust viss um, að fóstrið væri
dautt. Fæðingin 2—3 vikum fyrir tímann. Þegar ég kom, var hönd
að koma í ljós. Gerði vendingu. Fóstur virtist vera í rýrnun og hafði
sýnilega verið lengi dautt. Var 12 sinnum við fæðingar, og var nær
helmingur þeirra eðlilegur. Ein sitjandafæðing. Háa töng varð ég að
leggja einu sinni. Einu sinni var ég sóttur til konu ca. 65 km. leið,
nokkuð af leiðinni á hesthaki, versta veg. Hafði þá konan fætt fyrir
9 klukkustundum, en fylgjuna vantaði. Þarna sátu tvær Ijósinæður
og höfðu gert allt, sem þær gátu. Mér tókst ekki að þrýsta út fylgj-
unni, þrátt fyrir alldjúpa svæfingu, og varð að sækja hana með hendi.
Einu sinni varð ég með vendingu að ná síðari tvíbura ca. dægri eftir
fæðingu þess fyrra.
Ólafsvikur. I flestum tilfellum er Iítið að, en læknir beðinn að devfa
sársaukann. Eitt tilfelli af abortus kom fyrir á árinu, sem læknis
var leitað til, og þurfti þó ekki sérstakra aðgerða. Abortus provocatus
enginn á árinu, svo að vitað sé. Það kemur fyrir, að komið er og
beðið um að losa við fóstur. Takmörkun barneigna á sér stað — ekki
þó almennt.
Dala. Barnsfæðingar gengið ágætlega, öll börn lifað og engri konu
hlekkzt á. Læknir aðeins einu sinni verið viðstaddur. Hafði til með-
ferðar 3 fósturlát. Ekkert ber á því, að fólk noti sér það, að það á
kröfu, lögum samkvæmt, á leiðbeiningum um takmörkun barneigna.
Hins gætir fremur, að farið sé fram á fóstureyðingar, og það alveg
blátt áfram og umsvifalaust. T. d. kom bón'di til mín og spurði for-
málalaust, hvort ég „fengist ekki við fóstureyðingar“ — kona sin
þyrfti að losna við nokkurra mánaða gamalt fóstur, þau hjón kærðu
sig ekki um að eignast fleiri börn — rétt eins og hann væri að spyrja
um, hvort ég fengist ekki við tannviðgerðir eða eitthvað annað í svip-
uðum ,,dúr“. Auðsjáanlega hefir það vakið athygli almennings, að
eitthvað hafi verið í lög sett um fóstureyðingar, en hvað og i hvaðá
tilgangi hefir alveg farið fyrir ofan garð og neðan hjá flestum, ásamt
heimildinni um hinar minna róttæku ráðleggingar við of örum og
óvelkomnum barneignum.
Flatcijjar. Barnsfarir gengu yfirleitt mjög vel — þurfti engra stærri
aðgerða.
Patreksfj. Abortus provocatus eng'inn. Takmörkun barneigna er til,
en fremur fátíð.
Bildudals. Vitjað 5 sinnum til sængurkvenna. Hjá 3 þeirra var ekk-
ert að og: því aðeins deyft í kollhríðinni. Fjórða konan var stelpu-
krakki, 16 ára. G,ekk fæðing seint. Bar að sitjanda, og varð ég að
hjálpa höfðinu út. Barnið var Iíflítið, en varð þó lífgað eftir nokkra
hríð. Þá var mín vitjað út í sveit til konu með abortus í 3. mánuði.
Var konan orðin mjög blóðlítil og stöðugt hættuleg blæðing'. Ég tam-