Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Page 75
73
poneraði, og stöðvaðist þá blæðingin strax. Eftir nokkra klukkutíma
tók ég tampon, og kom þá fóstrið með. Konunni heilsaðist vel. Abortus
provocatus enginn mér vitanlega. Konur hafa aldrei leitað til mín
um ráðleggingar um takmarkanir barneigna og karlmenn sjaldan.
Þingeijrar. Á árinu hefir læknis aldrei verið vitjað til fæðandi
kvenna. Er það nýlunda. Kvabb um fóstureyðingar hefir mjög rénað.
Mun fólk nú, sökum stöðugra neitana lækna, gengið úr skugga um,
að það sé þýðingarlaust. Takmörkun barneigna nokkur.
Ögur. Vitjað til 4 kvenna: Þrisvar vegna retentio placentae og
einusinni vegna laxatio placentae praecox. Primipara, 25 ára gömul.
Fæðing ekki byrjuð. Flutti sjúklinginn 6 klukkustunda leið, fyrst á
landi, síðan á „trillu“ til ísafjarðar í sjúkrahús, og var þegar í stað
gerð á konunni sectio caesarea. Bæði móður og barni heilsaðist vel.
1 fósturlát er mér kunnugt um, en slíkt nefna ljósmæður aldrei í
skýrslum sínum.
Hestegrar. Engin slæm tilfelli.
Reykjarfj. Barnsfarir gengið vel. Læknis tvisvar vitjað. Ljósmæður
geta um 1 fósturlát, og einu sinni var mín vitjað þeirra hluta vegna.
Tvisvar hefi ég verið beðinn að framkvæma abortus provocatus, en
synjaði fyrir að eiga nokkurn hlut að því máli. Nokkur hjón við-
hafa getnaðarvarnir, en flest láta reka á reiðanum með það eins og
fleira.
Hólmavikur. Fæðingar vfirleitt gengið vel. Einu sinni var konu
nærri blætt út vegnn fylgjulosunar. Fylgjan sótt. Ivonan hresstist.
Læknis 12 sinnum vitjað við fæðingar og tvisvar við fósturlát. Einu
sinni bar að 3 fæðingar sömu nóttina, sitt í hverri áttinni, þar af
tvennar tvíburafæðingar, og varð læknir að þeytast þarna á milli.
Gekk allt slysalaust. Skýrslur um fósturlát frá ljósmæðrum eru ófull-
komnar. Munu hafa verið 2 fleiri á árinu. Abortus provocatus eng-
inn. Takmörkun barneigna fer í vöxt, og mun einkum notað Lam-
Buttshettur og karlmannsverjur.
Miðfj. 12 sinnum á árinu var læknir viðstaddur fæðingar. Ástæð-
an var oftast, að óskað var deyfingar. Þrisvar var auk þess um linar
hríðar að ræða, tvisvar um retentio placentae. Konum og börnum
heilsaðist vel. Ljósmæður geta ekki fósturláta í skýrslum sinum,
enda mun þeirra ekki hafa verið vitjað af því tilefni. Auk þess eina
fósturláts, er kom til aðgerða á sjúkrahúsinu, var tvisvar leitað til
læknis vegna fósturláta, og var abortus completus í báðum tilfelluin.
Mjög virðist bera á því, að fólk hafi misskilið lögin um fóstureyð-
ingar í þá átt, að konan g'eti í flestum tilfellum fengið eytt fóstri
sínu, ef hún óskar eftir þvi, og álítur það aðeins undanbrögð hjá
lækni, ef hann vill ekki sinna slíkri beiðni, sem ekki er óalgeng.
Nokkuð nota konur getnaðarverjur, en það mun þó langt frá því
algengt.
Blönduós. 7 sinnum leitað læknis á árinu. í fyrsta skiptið var or-
sökin fyrirsæt fylgja hjá XlII-para, og dug'ði þar pituitrin, en barnið
var andvana. í tvö skipti þurfti að leggja á töng vegna framhöfuð-
stöðu. f eitt skipti var aðeins gefið chloroform a la reine, en i hin
3 skiptin þurfti að herða á sótt með pituitrini eða solvochini. Öllum
10