Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Side 77
Vopnajj. Viðstaddur 3 fæðingar á árinu. í 2 tilfellunum var ekkert
aðhafzt, þar eð fæðingarnar gengu af sjálfu sér. Þriðja tilfellið þver-
lega hjá konu, sem fætt hafði 8 sinnum áður. Útvíkkun nægileg og
heilar himnur. Farið upp með hendi, hinmur sprengdar og náð í fót.
Framdráttur á venjulegan hátt.
Hróarstungu. Einu sinni náð placenta með pituitrin-inj. -j- chloro-
formsvæfingu og Credé. Narcosis a la reine í eitt skipti. Vitjað einu
sinni vegna abortus. Abortus provocatus er mér ókunnugt um, að hafi
átt sér stað. Ekki orðið þess var, að menn leiti sér upplýsinga um
takmarkanir barneigna.
Fljótsdals. Tvisvar á árinu var leitað til mín vegna fóstureyðinga,
að mér virtist að ástæðulitlu, og vísaði ég frá mér. Um eitt fósturlát
er mér kunnugt. Gift kona varð fyrir áfalli. Ein kona, gift, óskaði
upplýsinga um takmarkanir barneigna.
Seijðisjj. Ung stúlka fór fram á að fá gerðan abortus provocatus,
og þegar því var neitað, dreif hún sig til Reykjavíkur.
Norðjj. 16 sinnum var ég viðstaddur fæðingar, oftast aðeins til
deyfingar. Eitt skipti var ég við tvíburafæðingu. Konan — I-para —
hafði hrokkið mikið við við sprengingu, sem varð úti fyrir húsinu,
og missti þá legvatn, án þess að hríðir væru byrjaðar. Síðan voru
þær daufar, og varð loks að hjálpa fyrra barninu, sem var í sitjanda-
stöðu, með framdrætti. Það var fullburða drengur með fullu lífi.
4 tímum síðar fæddist seinni drengurinn í hvirfilstöðu, sjálfkrafa.
Hann var úr öðru eggi, og sprakk hans belgur rétt áður en höfuðið
fæddist. Þrátt fyrir það og áframhaldandi lífgunartilraunir i 1V2
tíma tókst ekki að koma andardrætti í gang'. Til fósturláta var ég
kallaður 7 sinnum, en í 3 tilfellum var fósturlát aðeins yfirvofandi
og stöðvaðist. Tvisvar varð að tæma uterus. Nú ber minna á, að
læknir sé beðinn um fóstureyðingu, en grunlaust er ekki um, að
konurnar snúi sér til Reylcjavíkur. Heyrt hefi ég þó, að kornið hafi
fyrir, að þær hafi verið gerðar afturreka. Eina slíka umsókn fékk
ég. Annars verð ég að játa, að erfiðleikarnir eru nokkuð miklir fyrir
þá sjúldinga, sem þess þyrftu.
Reijðarjj. Takmörkun barneigna orðin all-almenn. Fólk notar mikið
anticoncipientia, svo sem spermex, patentex o. fl.
Fáskrúðsjj. Kona á Stöðvarfirði dó af barnsförum. Fæðing gekk
seint, en eðlilega. Dó ca. 2 klukkutímum eftir fæðingu af embolia.
Engin abortus provocatus. Engin fósturlát. Takmörkun barneigna
lítið iðkuð.
Berufj. Læknis vitjað þrisvar vegna sóttleysis og einu sinni vegna
fastrar fylgju. 1 tilfelli af mastitis puerperalis. 1 tilfelli af abortus
og gerð abrasio. Enginn abortus provocatus og aldrei beðið um hann.
Lítið mun vera um notkun getnaðarverja.
Hornajj. 8 sinnum vorum við við fæðingar, ég og víkar minn. 6
sinnum var aðeins um chloroformdeyfingu að ræða, tvisvar injectio
pituitrini eða thymophysini og Crédé, auk chloroformdeyfingar. Fóst-
urlát var mér ekki kunnugt um á árinu.
Síðu. Ég var við 2 eðlilegar fæðingar. Engin fósturlát er mér
kunnugt um á árinu.