Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Qupperneq 79
ofan ökla. — VerkamaÖur varð milli dyrastafs í fiskhúsi og bifreiðar,
sem var að fara út úr húsinu, og hlaut af viðbeinsbrot. — Hin til-
fellin hafa hlotizt af smávegis falli eða hnjaski. Þessi meiðsli eru
skráð: Fract. costae 7, oss. metacarpi 1, radii 3, claviculae 2, supra-
condyloidea humeri 1, cruris 2, colli femor. 1. Lux. humeri 2. Vulnera
contusa capitis 6, digit. 16, genus 5, pedis 6, labii superior. 6, dors.
man. 10, volae man. 4, dors. nasi 3. Vulnera puncta plantae pedis 8.
Ambustiones 7. Smáar excoriationes 28.
Borgarfj. Slys alls 53. Fract. humeri 1, radii 2, femoris 1, fibulae 1.
Lux. humeri 3, subluxatio columnae cervic. 1. Vulnera 18. Ambustiones
5. Contusiones & distorsiones 21. Um atvik að helztu slysunum er
þetta að segja: Drengur, 2 ára, velti yfir sig' vagnhjóli, sem stóð upp
við húsvegg, og lærbrotnaði um mitt læri. — Telpa, 8 ára, komst á
bak hesti úti á túni, valt af baki og braut upphandlegg uppi við öxl.
—- Kona, um sjötugt, datt af baki og braut framhandlegg nálægt
úlnlið. — Önnur kona, um sextugt, datt á göngu og hlaut samskonar
hrot. — Kona, um finnntugt, hrasaði í stiga og fótbrotnaði skammt
fyrir ofan ökla. — Maður, um áttrætt, datt úr stiga, kom fyrir sig
höndum og fór úr axlarlið. — Kona, um fertugt, seildist af hestbaki til
að opna hlið, datt við það af baki og fór úr axlarlið. — Karlmaður,
34 ára, fóll á hlaupum í smalamennsku og fór úr axlarlið. — Dreng-
ur, 3 ára, skekktist í hálslið við að bylta sér í rúmi sínu, þannig, að
höfuðið varð undir honum. Þurfti mjög lítið átak til að kippa þessu í
lag, og varð drengurinn brátt jafngóður. — 2 börn, 8—10 ára, voru
ein á teig, meðan vinnufólkið var heima, og fóru að slá. Annað barnið
varð fyrir ljánum hjá hinu og' skarst all-djúpt í annan hælinn. —
Maður særðist illa í þumalgreip af beizlislás, er hestur kippti af
honum taumnum (tiltölulega algengt meiðsli). — Contusio intestini:
Piltur, 14 ára, var í tuski við annan, fékk spark í kviðinn neðan til
og veiktist samstundis hastarlega með kvölum í maga og uppköst-
um. Þegar ég sá hann stuttu síðar, var hann sárþjáður, andlitið fölt
og tekið (facies abdominalis), kviðurinn mjög aumur og harður
viðkomu (défense), og enginn flatus, svo að helzt leit út fyrir, að
görn hefði rifnað. Daginn eftir leið honuin betur og batnaði síðan
eftir nokkurra vikna legu. — Grimmur hani flaug' á tveggja ára
dreng og hjó hann í augað gegnum augnalok, svo að augað sjálft særð-
ist nokkuð, en ekki djúpt. Varð jafngóður.
Borgarnes. Mörg smáslys komu fyrir, skurðir, mar og tognun, corp-
ora aliena í holdi, hálsi, augum, nefi etc. Beinbrot voru 4, sem sé:
Fract. humeri, antibrachii, costae og tibiae. Þessi beinbrot orsökuð-
ust af falli, líklega vegna ógætni. — Stórslys komu engin fyrir hér
nema Pourquoi Pas slvsið. Skipið hafði villzt og hrakið í ofsaroki
og stórsjó upp á rif eða sker fram undan Álftanesi. Þetta var þann
16. september, og drukknuðu allir skipverjar nema einn, sem barst
til lands hálfmeðvitundarlaus, haldandi dauðahaldi í stóran stiga, lík-
lega landgang skipsins. Var honum bjargað úr sjónum og studdur
heim að Straumfirði. Hresstist hann brátt og mátti heita alheill, er ég
kom á vettvang morguninn eftir. 22 lík rak strax upp á fjöru á Álfta-
nesi og Straumfirði, og skoðaði ég þau. Nokkru síðar rak fleiri lík,