Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Qupperneq 95
93
Fljótsdals. Sjúkraskýli er rekið hér á sama hátt og áÖur.
Seijðisfj. Undirbúningur er haí'inn til stækkunar á sjúkrahúsinu, og
hefir fengizt styrkveiting frá ríkinu á fjárlögum 1937, kr. 3500,00
Eiga að fást 4—5 stofur móti sól, og vinnst þá, auk góðrar skurð-
stofu, pláss fyrir 10—12 rúm. A Röntgenstofunni voru myndaðir 30
sjúklingar og 78 gegnlýsingar gerðar á 58 sjúklingum.
Fáskrúðsfj. Byrjað var að taka sjúklinga og þá helzt augnsjúklinga
á sjúkraskýlið síðast í ágúst, en sjúkrarúm eru aðeins 2 og erfitt að
fá fólk til hjúkrunar.
Berufj. í ársbyrjun keyptu héraðsbúar hús fyrirrennara míns liér
fyrir læknisbústað, og er 1 stofa með 2 rúmum í ætluð sjúklingum.
Húsgögn í herberg'ið og hjúkrunargögn hefir landlæknir útvegað fyrir
l'é úr læknishéraðasjóði héraðsins, og má sjúkrastofan heita vel útbúin.
Vestmannaeijja. Engar breytingar á árinu.
Ileflavíkur. Byrjað var á byggingu sjúkraskýlis í Sandgerði, en
var ekki lokið í árslok. Stendur Rauði krossinn fyrir byggingunni.
B. Sjúkrahjúkrun. Heilsuvernrtun. Sjúkrasainlög.
Hjúkrunarfélög.
1. Hjúkrunarfélagið Líkn í Rvík gerir svofellda grein fyrir störf-
um sínum á árinu :
Árið 1936 hafði hjúkrunarfélagið Líkn 4 hjúkrunarkonur í fastri
þjónustu sinni til 1. okt. 1936, en frá þeim tíma 5. Störfum þeirra er
skijit þannig, að 2 þeirra vinna í fastri heimilisvitjanahjúkrun, 1
við Ungbarnavernd Líknar og 2 við Berklavarnastöðina. Stöðvar-
hjúkrunarkonurnar tóku að sér störf heimilishjúkrunarkvennanna í
sumarfríum og' á frídögum þeirra og veita þeim aðstoð, þegar mikið
er að gera. Farið var í 11483 sjúkravitjanir á árinu og vakað í 16
nætur. Dagvaktir voru 1%.
B e r lc 1 a v a r n a r s t ö ð i n . Sú breyting varð á stöðinni 1. okt.
1936, að fengin voru þangað gegnlýsingartæki, sem Berklavarnarfélag
íslands hefir keypt og lánað stöðinni gegn því, að stöðin beri ábyrgð á
tækinu og annist allan kostnað við rekstur þess. Auk héraðslæknis,
sem hefir starfað í mörg ár við stöðina, var síðan ráðinn þangað Helgi
Ingvarsson, aðstoðarlæknir á Vífilsstöðumf og 1 hjúkrunarkona til
viðbótar. Stöðin starfaði nú með aðstoð og undir yfirumsjón Sig-
urðar Sigurðssonar, berklayfirlæknis. Frá Berklavarnarstöðinni var
farið í 2309 heimsóknir á heimilin. Á stöðinni voru framkvæmdar 2444
læknisskoðanir og hlustanir, þar af voru 595 nýir sjúklingar og
skyldulið þeirra, sem einnig var hlustað. Það voru 122 karlmenn, 195
konur og 278 hörn. Stöðin tók á móti 8085 heimsóknum fólks, sem
kom til þess að leita ráða hjá læknum og hjúkrunarkonum. 24 sjúkl-
ingum var visað í ljóslækningar, og 12 sjúklingum var útveguð heilsu-
hælis- eða spítalavist. 108 sjúkling'ar voru Röntgenmyndaðir og 762
gegnlýstir á kostnað félagsins. Berklavarnarstöðin hafði eftirlit með
660 heimilum á árinu. Heimsóknardagar með læknum voru 4 sinn-
um í viku.
U n g b a r n a v e r n d L í k n a r . Barnaverndarhjúkrunarkona fór i
1864 vitjanir á heimilin. Stöðin fékk 364 nýjar heimsóknir barna og