Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Qupperneq 102
100
Hóls. Vatn var sent úr 4 vatnsbólum til rannsóknar í Reykjavík síð-
astliðið haust, og reyndist það í 2 þeirra ónolhæft til drykkjar. Var í
þeim töluvert af ristilgerlum og úrgangsefnum. Þörf á vatnsleiðslu
er mikil og brýn í þessu þorpi. Ráðstafanir hafa verið gerðar í þá átt
að hrinda því máli frarn á næsta sumri. Fráræslu er einnig mjög
ábótavant, og væri hin mesta nauðsyn og færi bezt á því, að geta bætt
hana um leið.
Ögur. Nokkur ný steinsteypuhús hafa verið byggð undanfarið, öll
með miðstöðvarhitun og vatnsleiðslu. Vatnssalerni eru sett í flest ný
hús. Þrifnaði fer ekki fram, svo að sýnilegt sé. Má það m. a. nokkuð
marka af lús meðal skólabarna. Fló er að minnsta kosti á 4 bæjum,
sem mér er kunnugt um, en nú hefir verið hafin herferð gegn þess-
um óþrifaófögnuði.
Hesteyrar. Húsakynni sæmileg. Hreinlæti í góðu meðallagi.
Reykjar/]. 3 hús all-sæmileg hafa verið reist á árinu, og fleiri eru
væntanleg á næstunni, svo að húsakynni eru heldur að færast í átt-
ina til hins betra. Þrifnaði mjög ábótavant. Lús og fló mjög víða.
Salerni, jafnvel af einföldustu gerð, vantar algerlega á fjölmörg
heimili.
Miðfj. Nokkrar nýbyggingar á árinu í sveitinni, og mun frekar vand-
að til þeirra. Fækkar með því verstu hreysunum. Þrifnaður víðast
góður eða þá sæmilegur, en sumsstaðar mun honum þó talsvert
ábótavant.
Blönduós. Húsbyggingar hafa lítið batnað á árinu. Þó hafa baðstofur
verið byggðar upp á 4 bæjum, en ekkert íbúðarhús, sem því nafni
getur nefnzt, verið reist í sveitunum, nema hvað byrjað var á bygg-
ingu eins nýbýlis í Langadal. Nokkur hús voru reist á Skagaströnd,
en ekkert á Blönduósi. Engar nýjar rafveitur bættust heldur við að
þessu sinni.
Sauðárkróks. Húsakynni alþýðu eru afar léleg, víðast bæði köld og
rök. Vantar víðast næga upphitun til þess að útiloka rakann. Fólk
er víðast orðið svo fátækt, að það hefir ekki ráð á að hita upp húsa-
kynni sín. Sérstaklega eru kjallaraíbúðir hér í kauptúninu bæði
kaldar og rakar.
Svarfdæla. Byggingaöld sú hin mikla, er leiddi af landskjálftunum
1934, var nú í þverrun, en lokið var við smíði ýmsra af húsum þeim,
er voru ófullgerð frá fyrri árum. Auk þess voru fáein hús reist við
Dalvík, utan kauptúnsins þó, og 2 í Svarfaðardal. Innanhússþrifnað-
ur hefir stórum batnað í seinni tíð, enda er auðveldara að halda hin-
um nýju húsum hreinum en mörgum gömlu bæjanna. Vatnsveitum í
hús hefir og mikið fjölgað til sveita síðustu áratugina. Utanhússþrifn-
aði er hins vegar víða mjög ábótavant.
Höfðahverfis. 2 ný steinhús verið reist á árinu. Eru gömlu bæirnir,
sem óhæfir eru til íbúðar, nú óðum að hverfa. En sá galli er á sum-
um þessum nýbyggingum, að aldrei er fullgengið frá þeim. Hefi ég séð
fleiri en eitt dæmi til þess, að ný hús, reist fyrir lán úr byggingar- og
landnámssjóði, hafa farið að skemmast áður en fullgengið er frá þeim.
Öxarfj. Hygg 7—8 hús byggð. Hefir gengið mikil bygging'aralda yfir
þetta hérað nú í 7—10 ár. Svo komið, að sumir byggja að nauðsynja-