Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Side 109
107
kauptúnanna. Reykjaskóli kaupir mjólk á nærliggjandi bæjum (aðal-
lega á Reykjum), sem eru þrifnaðarheimili.
Sauðárkróks. Mjólkurframleiðsla er allmikil í kauptúninu. Þar er
og nægur kostur mjólkur, þar sem hér staríar mjólkursamlag, og
hingað er flutt mikið af mjólk, sem unnið er úr smjör, skyr og ostar.
Samt sem áður er fæði alþýðu hér í kauptúninu ekki nægilega gott.
Fólk notar mikið af brauði og öðrum mat úr hvítu hveiti. Slíkt brauð
er notað handa börnum og fullorðnum, bæði með morgun- og mið-
degiskaffi. Það er með öðrum orðum aðalmatur tveggja máltíða af
fjórum. Rúgmjöl, sem notað er til brauðgerðar, er og léleg vara. Það er
iðulega maðkað og blandað ýmsum óviðkomandi efnum. Orðlagt er
hið svokallaða pólska mjöl, sem kaupfélögin flytja sumsstaðar. Þykir
það hin versta vara, og er það sennilega ekki ofmælt. Ég verð einnig
að fordæma þá verzlunarstefnu að banna innflutning á nýjum ald-
inum. Ég tel ný aldin ekki síður nauðsynleg handa sjúklingum en
lyf. Nýr appelsínusafi er allsslaðar notaður erlendis í sjúkrahúsum.
Þykir hann þar nauðsynlegur hressingardrykkur handa sjúku fólki.
Hér er aftur á móti séð fyrir þörfum þeirra, sem vilja eitra skrokk
sinn með tóbaki og víni, en ný aldini og aldinsafi er bannaður, annað-
hvort með öllu, eða gerður svo dýr, að enginn hefir ráð á að kaupa.
Þá er og séð fvrir því, að til sé nægileg framleiðsla af óheilnæmu sæl-
gæti úr lélegustu sykurtegundum. Börn í kauptúnum verja hverjum
eyri til kaupa á þessu góðgæti og hafa flest skemmdar tennur, eða
hafa misst nokkrar þeirra á fermingaraldri. Þannig er séð fyrir heil-
brigði þjóðarinnar.
Hofsós. Mjólk hafa allir nokkra, því að auk þess, sem flutt er að
úr sveitinni, þá eru nú undir 70 kýr á kaupstaðarsvæðinu, en það
gerir hér um bil 1 kú á hverja 10 íbúa.
Höfðahverfis. Á árinu var mjólk flutt í Mjólkursamlag KEA frá
18 heimilum í maí—okt. Fjós hafa litlum breytingum tekið, og ekki
er mér kunnugt um, að salernum hafi fjölgað. Auk þess er nokkur
mjólkursala manna á milli, helzt hér á Grenivík, meðan geldstöðutími
stendur yfir hjá þeim, sem aðeins eiga einn grip.
Öxarfj. Mjólkursala er engin, er því nafni geti heitið.
Þistilfj. Mjólk er nægileg hér, nema stuttan tíma á haustin. Mjólkur-
sala engin, nema þann tíma, því að þá helzt þeim, sem dropa hafa, ekki
á honum, vegna vandræða þeirra, sem ungbörn eiga og eru mjólkur-
lausir.
Vopnafj. Matargerð svipuð og undanfarið. í kauptúninu hefir
mjólkurframleiðsla stöðugt aukizt (um 40 kýr).
Fljótsdals. Mjólkurframleiðsla er hér ekki nema til heimilisþarfa.
Aðeins eitt heimili miðlar Hallormsstaðaskóla lítillega neyzlumjólk
á vetrum. Það er þrifnaðar- og myndarheimili.
Berufj. Mjólkursala er sem engin, aðeins lítilsháttar manna á milli,
eftir því hvernig stendur á kúm. Aðeins 3 búendur hér í þorpinu eru
kýrlausir.
Vesmannaeijja. Heyafli Eyjabúa hefir numið síðastliðið sumar
11046 hestum. Nautgripaeign Eyjamanna er 312 kýr, 10 vetrungar,
13 kálfar, 4 naut. Vantar lítið á, að Eyjamenn afli nægra heyja hér í