Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1936, Side 111
109
hefir verið byrjað lítilsháttar á landabruggi hér í sveitinni, en þær
tilraunir hafa verið kæfðar þegar í upphafi. Tóbaksnautn er hins vegar
mikil, og kunna margir þar lítt hóf. I>ó er ég ekki frá því, að hún sé
heldur í rénun. Fremur fáir taka í nefið, fleiri upp í sig, en flestir
reykja, yngri menn einkum vindlinga. Mun það koma all-mjög við
budduna. Er auðvelt að reikna út, að ekki allfáir eyða fullkomnu
vinnumannskaupi í vindlinga árlega. Og svo eru menn að býsnast yfir
fátæktinni og skella allri skuldinni á guð eða mannfélagsskipunina.
Höfðahverfis. Áfengisnautn er lítil sem undanfarið. Veit ég ekki
til, að drykkjumaður sé til í héraðinu.
Öxarfj. Afengisnautn er lítil. Heimahrugg er betur farið með en fyrr.
Iíaup hjá Áfengisverzlun ríkisins hafa færzt í vöxt. Kaffidrykkja vex
ekki, og virðist mér hún miklu minni en t. d. í Reykjavík. Tóbalcs-
nautn svipuð og undanfarið, víst ekki minni, þótt sígarrettuæðið hafi
lítt náð hingað enn.
Þistilfj. Áfengisnautn hefir líklega aukizt nokkuð við það, að sterku
vínin voru leyfð. Heimamenn haga sér yfirleitt siðsamlega við vín,
þó að misbrestir finnist, en aðkomumenn of margir eins og villimenn.
Kaffi mikið notað og tóbak sömuleiðis, sérstaklega sigarettur.
Vopnafj. Áfengisnautn ekki teljandi. Heimabruggs verður naumast
vart. Tóbaksnautn einnig tiltölulega lítil hér. Mest notað neftóbak
og munntóbak. Vindlar og vindlingar sjást varla.
Hróarstungu. Áfengisnautn verður að teljast mjög lítil. Kaffi aftur á
móti notað meira en góðu hófi gegnir.
Fljótsdals. Áfengisnautn er hér lítil. Aftur er kaffineyzla nokkuð
mikil, en þó sennilega ekki meiri en víðast annarsstaðar í sveitum.
Tóbaksnautn er nokkur, helzt neftóbaks.
Berufj. Áfengis verður helzt aldrei vart nema í sambandi við skemmt-
anir, en þá vill stundum verða fullmikið af því. Nær eingöngu er
drukkinn ,,landi‘. Helzt er það í skammdeginu og atvinnuleysinu, að
menn fást við að brugga, en á sumrin sést það varla, og ekkert er um
sölu á bruggi. Kaffinautn er alltaf nokkuð mikil og svipuð frá ári til
árs. Tóbaksnautn er almenn, ekki sízt með unglingum, — þeir reykja
allir, að minnsta kosti hér í þorpinu.
Vestmannaei]ja. Vínnautn oft mikil á samkomum, einkum á ver-
tíð. Því miður eru hér allt of margir drykkjumenn, og mætti of-
drykkju ósóminn fara þverrandi. Líldega vegna þverrandi kaupgetu
hefir minna horið á drykkjuskap á þessu ári en sum undanfarin ár.
Vindlingareykingar fara með efni unglinganna, pilta og stúlkna, og
oft heilsuna líka. Er gremjulegt að vita til þess oft á tímum, hvernig
því, sem aflað er með súrum sveita, er sólundað á þenna hátt. Þessar
og fleiri syndir eru ekki guði að kenna. Kaffieyðsla er mikil hér eins
og yfirleitt í verstöðvunum.
Grímsnes. Áfengisnauntn er lítil. Helzt utanhéraðsmenn á samkom-
um hér, sem neyta áfengis, svo að úr hófi keyri.
Keflavíkur. Það er sama að segja og áður um áfengisnautnina, nð
hún er töluverð á tyllidögum, og leynisalarnir græða vel á hverri
flösku, sem þeir selja. ,,Búbót“ er hún kölluð, taskan leynisalans. Hún
mjólkar vel, en ekki hinurn, sem verða að kaupa. Illur er allur þessi