Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Blaðsíða 109
— 107
1961
5. Skipulagsskrá nr. 81 27. júlí, fyrir Styrktarsjóð Rauðasandshrepps.
6. Skipulagsskrá nr. 88 14. ágúst, fyrir spítalasjóðinn Ástriðarminning.
7. Skipulagsskrá nr. 173 15. nóvember, fyrir Minningarsjóð Sigríðar
Bogadóttur og Guðmundar Þorvarðssonar frá Sjólyst, Hellissandi.
X. Heilbrigðisstarfsmenn.
Tafla I.
A. Læknar.
Læknar, sem hafa lækningaleyfi á íslandi, voru í árslok taldir 293.
Búsettir í landinu voru 233 (sbr. töflu I), þar af 12 kandídatar, sem
gegndu héraðslæknisstörfum og höfðu lækningaleyfi aðeins á meðan.
Voru þá samkvæmt því 773 íbúar um hvern þann lækni, en 815 um
hvern búsettan lækni með fullgildu lækningaleyfi. Búsettir i Reykja-
vík voru 135 læknar, í öðrum kaupstöðum 50, utan kaupstaða 36, erlendis
12 og án fasts aðseturs 60. Læknakandídatar, sem eiga ófengið lækninga-
leyfi, voru 74 (þar með taldir kandídatar með bráðabirgðalækninga-
leyfi).
Á læknaskipun landsins urðu eftirfarandi breytingar:
Halldór Kristinsson, fyrrv. héraðslæknir, settur 3. jan. til að gegna
Siglufjarðarhéraði frá 1. janúar. — Héraðslæknirinn á ísafirði settur 3.
jan. til að gegna Súðavíkurhéraði ásamt sínu héraði frá 1. janúar. —
Héraðslæknirinn í Raufarhafnarhéraði settur 3. janúar til að gegna
Kópaskershéraði ásamt sínu héraði frá 1. nóvember 1960. — Ólafur P.
Jónsson, héraðslæknir í Álafosshéraði, settur 3. janúar til að gegna
Stykkishólmshéraði frá 1. janúar til 1. marz. — Daníel V. Fjeldsted, fyrrv.
héraðslæknir, settur 3. janúar staðgöngumaður héraðslæknis í Álafoss-
héraði frá 1. janúar til 1. marz. — Halldór J. Hansen cand. med. et chir.
settur 3. janúar héraðslæknir í Austur-Egilsstaðahéraði frá 1. október
1960 til 1. marz. — Guðmundur Helgi Þórðarson, héraðslæknir í Austur-
Egilsstaðahéraði, settur 3. janúar til að gegna áfram Hofsóshéraði frá
1. október 1960 til 1. júní. — Úlfur Ragnarsson læknir ráðinn 9. janúar
aðstoðarlæknir héraðslæknis á Eslcifirði frá 7. janúar til 1. febrúar. —
Úlfur Ragnarsson læknir skipaður 11. janúar héraðslæknir i Kirkju-
hæjarhéraði frá 1. febrúar. — Kjartan B. Kjartansson cand. med. et
chir. settur 28. febrúar héraðslæknir í Súðavíkurhéraði frá 10. marz til
10- september, setning framlengd 22. september til 1. marz 1962. —
Karli A. Maríussyni, héraðslækni í Eskifjarðarhéraði, veitt 1. marz lausn
frá embætti frá 1. maí. •— Gissur Jökull Pétursson cand. med. et chir.
settur 2. marz héraðslæknir í Vopnafjarðarhéraði frá 18. febrúar til 18.
sept. — Valgarð Þ. Björnsson cand. med. et chir. ráðinn 2. marz aðstoðar-
læknir héraðslæknis í Eyrarbakkahéraði frá 15. til 28. febr. — Guðmundur