Börn og menning - 01.05.1999, Blaðsíða 11

Börn og menning - 01.05.1999, Blaðsíða 11
BÖRN 06 MENN|N6 Hinn bekkurinn fer með ballettdansara og fær að kynnast starfi dansarans. Farið er inn í ballettsal þar sem dansararnir eru að hita upp fyrir daginn. Eftir að hafa fengið að fylgjast með æfingum dansaranna fara bömin inn í æfingasal þar við hliðina og fá fræðslu um mismunandi dansstíla sem dansarar þurfa að kunna skil á og að lokum fá allir að reyna eigin hæfni í dans- kúnstum undir handleiðslu ballettdansara. Gleði og kátína skín úr hverju andliti þegar svifið er um gólfið. Síðan skiptast bekkirnir á stöðum og fá þannig fjölbreytta fræðslu um starf listamannanna í húsinu. Svona heimsókn tekur heilan skóladag eða fjórar klukkustundir. Yfirleitt er þó ekki nóg komið að mati krakkanna þegar þeir þurfa að yfirgefa leikhúsið. En þau eru fullvissuð um að þau fái að koma í heimsókn aftur næsta ár. Seinni heimsóknin Seinna árið koma börnin í stærri hópum og í þetta skipti eru þau því sem næst venjulegir leikhús- áhorfendur. Þegar þau koma í leikhúsið tekur á móti þeim leikari og býður þau velkomin og rifjar upp þær reglur sem gilda í leikhúsinu. Leikarinn segir þeim frá sýningunni sem í vændum er. Síðan er gengið inn í stóra salinn þar sem fram fer leik- sýning. Þetta er stutt sýning þar sem ímyndunar- aflinu er gefin laus taumur og reynt er að sýna sem flestar hliðar á leikarastarfinu. Að leiksýningunni lokinni er farið fram í anddyri þar sem börnin fá sér nestisbita og að því loknu kemur ballettdansari og fræðir þau um danssýninguna sem þau fá að sjá skömmu síðar. Danssýningin er eins og leiksýningin full af fjöri og gefur fjölbreytta mynd af starfi dansarans. Það er nær undantekningarlaust að flestum finnst heimsóknin taka of fljótt af en eftir ballettsýninguna er tími til kominn að halda heim. 3000 hörn Það segir sig sjálft að ekki er hlaupið að því að taka á móti öllum þeim fjölda barna sem eru í tveimur bekkjardeildum í öllum grunnskólum Reykjavíkur. Margir þurfa að leggja hönd á plóginn til að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Yfirleitt gengur allt eins og í sögu þótt sumir leikararnir verði stundum óþolin- móðir að komast inn á svið að æfa, en þar eru þá fyrir 50 böm í skoðunarferð. Eða saumakonumar missa úr spor þegar hópurinn fer í gegn. Þegar allt kemur til alls eru þó flestir ánægðir með þá athygli sem börnin sýna því margbreytilega starfi sem fram fer í mismunandi vistarverum leikhússins. Á hverju ári koma þannig um 3000 börn í heim- sókn í Borgarleikhúsið. Yngri bömin koma 50 í hóp, tæplega 40 heimsóknardaga. Eldri börnin koma í stærri hópum um 20 heimsóknardaga. m - ll o úff n _ 9. @ íþ hrn roa'.om oq (Í<íy\ b’pJck'H.ipi tÁ r , f ... , , J f A fCri^uri cxd ?la hl'c .lijm (gl\ JA ww j l kA.-A-\ UniuuÁAG- t/dV.oA fo7C\v\\\ (&ih'AiJ l//X,Y !:jx\V+ . /v(pr -kSxi'nVr f:• - 'í /A ■sWp.i-. h Lco,. „ • \ ■ ' # ( ;C’ ( A Ol\ innileaa t<u ii' .1<Í i . ... " í " 7 ' ... 6Á-, AiKia bci'íi S~b ö'nsJQ. - Teikning: Anna Þóra 1999. Skólunum aðkostnaðarlausu Að verkefninu koma fjölmargir starfsmenn bæði Leik- félags Reykjavíkur og íslenska dansflokksins; leikarar, dansarar, hljóðmeistarar, ljósameistarar, smiðir, málarar og annað starfsfólk. Bömin em flutt fram og til baka í rútum, en allt frá upphafi hafa heimsóknimar verið skólunum að kostnaðarlausu. Þar kemur til styrkur frá Fræðsluráði Reykjavíkur sem hefur gert þetta verkefni mögulegt fyrir þá sem að því standa og án hans væri svo umfangsmikið verkefni aðstandendum fjárhagslega ofviða. Árangur Árangur af starfi sem þessu er erfitt að mæla með þeim mælistikum sem venjulega em notaðar til að mæla árangur af skólastarfi, en það er von okkar sem að því stöndum að það skili sér í aukinni þekkingu á menningu og menningarsögu íslendinga og upplýstari, kröfuharðari og ánægðari áhorfendum í framtíðinni. Greinarhöfundur hefur umsjón með verkefninu Heimsókn í leikhúsið 9

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.