Börn og menning - 01.05.1999, Page 20
BÖRN 06 /AENlN|N6
T í Ð I N D I
Ljóða- ogsmáscignasmikeppní Æskuntvir,
Flugleíða. og Ríkísútvarpsíns
I janúar voru veitt verðlaun í hinni árlegu ljóða- og smá-
sagnasamkeppni bamablaðsins Æskunnar, Flugleiða og
Ríkisútvarpsins fyrir böm á aldrinum sjö til tólf ára.
Aldrei áður hafa þátttakendur verið jafn margir, eða um
eitt þúsund böm, og telja aðstandendur hennar þar valda
mestu, að síðastliðið haust var samkeppnin kynnt sér-
staklega kennurum og skólastjórum í grunnskólum
landsins. Vegleg verðlaun voru í boði og hlutu tvö börn
aðalverðlaun, sem voru ferð fyrir barn og foreldri til
Bandaríkjanna, en tuttugu aukaverðlaun vom veitt,
myndbönd, bækur og geisladiskar. Ljóð og sögur ungu
höfundanna hafa birst í bamablaðinu Æskunni, og einnig
verið lesin upp í Ríkisútvarpinu í umsjón Elísabetar Brekkan.
(jreina.sa.fn um norrænar
unglínga bókmenntír
Nú á vordögum er væntanlegt á norrænan bókamarkað
greinasafn um norrænar unglingabókmenntir í samtím-
anum. Það heitir Forankring og fornying. Nordiske ung-
domsromaner fram mot ár 2000 og það er bókaútgáfan
Cappelen Akademisk Forlag í Noregi (o.fl.) sem sér um
útgáfuna. Bókinni verður dreift á öllum Norðurlöndum,
m.a. gegnum bókaklúbba móðurmálskennara bæði í
Noregi og Danmörku. Greinarnar em ýmist á dönsku,
norsku eða sænsku og höfundar þeirra eru þekktir
fræðimenn á sviði bama- og unglingabóka sem flestir
starfa við háskóla og kennaraháskóla. Þama er því að
finna fræðilega úttekt á því sem þeim þykir einkenna
norrænar unglingabækur samtímans. Það em samtök
norrænna móðurmálskennara, Nordsprák, sem áttu frum-
kvæðið að greinasafninu en Þuríður Jóhannsdóttir bók-
menntafræðingur sat í ritnefnd fyrir hönd Samtaka
móðurmálskennara á íslandi. Bókaútgáfan Mál og
menning annast dreifingu bókarinnar hér á landi.
Barnung
I síðasta tölublaði Barna og menningar var sagt frá vef
um barna- og unglingabókmenntir sem Þuríður
Jóhannsdóttir bókmenntafræðingur setti upp á haust-
mánuðum í samvinnu við Gagnasmiðju Kennara-
háskóla íslands. Vefurinn var settur upp í tengslum við
námskeið um barna- og unglingabókmenntir sem
Þuríður kenndi í fjarskóla KHÍ á haustmisseri. Nem-
endumir, sem flestir eru starfandi leiðbeinendur víða
um land, samþykktu að verkefni þeirra yrðu birt á
vefnum svo að aðrir gætu notið góðs af reynslu þeirra,
til dæmis af að nota bókmenntir í skólastarfinu. Með
því móti þéttist vefurinn sem segja má að kennarinn
hafi í upphafi ofið mjög gróft. Þetta er tilraun sem vakið
hefur athygli og nú er verið að vinna að því að koma
vefnum í form þar sem betur má nýta alla kosti marg-
miðlunar. Það verður því lrklega ekki bætt miklu við
vefinn eins og hann er núna en þeir sem vilja skoða
tilraunina geta það eitthvað áfram á slóðinni
http://www.ismennt.is/vefir/barnung
„Börn íborg"
Bókaforlagið Iðunn hefur gefið út tvö vegleg verk um
sögu Reykjavíkur á síðustu árum: Tveggja binda verk
Guðjóns Friðrikssonar, Saga Reykjavíkur. Bærinn
vaknar. 1870-1940, sem kom út 1991 og 1994 og Saga
Reykjavíkur 1940-1990 eftir Eggert Þór Bemharðsson,
sem kom út í fyrra. í báðum bókunum er fjallað um mál
sem snerta börn og unglinga, þar sem greint er frá
bæjarbrag, skólamálum og menningariðkun ýmis konar.
I síðari hluta bókar Eggerts Þórs er auk þess langur
og ríkulega myndskreyttur kafli sem heitir „Böm í
borg“. Til gamans viljum við grípa niður í efnisyfirlit
hans: Hasar í höfuðstaðnum, hefðbundið uppeldi, fmm-
byggjabörn, götulíf, sjoppumenning og jafnaldrahópur,
snú-snú, yfir, parís, hark og Tígriskló, þrjú-bíó og
hetjur hvíta tjaldsins, Tívolígarður og baðstrandarlíf,
vinir bamanna og borgarböm á bamaheimili.
BIN-Norden
Við höfum áður sagt frá BIN-Norden sem er norrænt
tengslanet og samtök sérfræðinga og áhugafólks um
barnamenningu (sjá blað 2/1998). BIN mun í október
næstkomandi halda þriggja daga ráðstefnu í Kaup-
mannahöfn um efnið: „Det skremmende og mprke i
bamekulturen: Skrekkens estetikk, ritualer og resurser“.
Af Islands hálfu mun Jón Jónsson þjóðháttafræðingur
flytja erindi um skuggahliðar íslenskrar þjóðtrúar. Fjöldi
sérfræðinga mun fjalla um þetta efni frá ýmsum hliðum
og þeir sem vilja kynna sér það nánar geta skoðað
heimasíðu BIN á http://www.dmmh.no/BIN-Norden
18