Börn og menning - 01.05.1999, Side 29
BÖRN OG mENN|N6
Hulda Karen Daníelsdóttir:
Taglíð hennar Stefaníu -
frá bók á 5V0
V/V5 undirbúning þessarar greinar varð mér Ijóst ég að ég hefnotað barnabækur
við kennslu á þremur skólastigum. Þegar ég kenndi byrjunaráfanga í íslensku
við Manitoba háskóla notaði ég barnabækur sem megintexta og sem prófstein á
munnlega fœrni nemenda.
Barnabækurá öllum skólastigum
Ástarsaga úr fjöllunum (Iðunn, Reykjavík 1981)
eftir Guðrúnu Helgadóttur, ein af bókunum sem við
notuðum í íslenskunáminu í Manitoba varð upp-
spretta málfræði, almenns orðaforða, orða yfir sér-
íslensk fyrirbæri, máltækja, samtala og síðast en
ekki síst ánægju. í málanámi er mikilvægt að fólk sé
óhrætt við að tjá sig. Fáir óttast barnabækur og eru
þær því kjörið viðfangsefni við kennslu tungumáls.
Þegar ég hef kennt á grunnskólastigi hef ég, eins
og flestir kennarar, reynt að örva bókmenntaáhuga
barna og kynnt þau fyrir verkum ýmissa höfunda og
þar sem ég kenni nú, í Borgarholtsskóla í Grafar-
vogi, yngsta framhaldsskólanum í Reykjavík, hafa
nemendur mínir í enskuáföngum skrifað ritdóma um
enskar barnabækur. Til að gera verkefnið áhuga-
verðara, flutti grafískur hönnuður fyrirlestur á ensku
um myndskreytingar sem gerði nemendum kleift að
fjalla á ensku um bæði texta og myndir. Ritdómamir
birtust svo almenningi á veggjum skólans.
Hverfístengsl
Ég kenni einnig leiklist í Borgarholtsskóla og þar
eru barnabækur aðalkveikjan að skapandi túlkun.
Þegar nemendur hafa þjálfast í undirstöðuatriðum
leiklistar svo sem spuna, trúðalist, grímugerð,
bardagalist og fleiru eru þeir tilbúnir til að leika
opinberlega.Við ákváðum að leika fyrir leikskóla-
börn í Grafarvogi og byrjuðum að skoða barna-
bækur í leit að bók sem auðvelt væri að breyta í
leikrit.
Astæðan fyrir því að böm vom valin sem áhorf-
endur var þáttur í hverfistengslum sem skipulögð
höfðu verið fyrir leiklistaráfangann. Ár hvert er
Borgarholtsskóli þess heiðurs aðnjótandi að fá
útskriftamema Leiklistarskóla Islands í tveggja vikna
æfingakennslu undir stjóm Kristbjargar Kjeld
leikkonu. Eftir það samstarf kenna leiklistamemar
Borgarholtsskóla nemendum 7. og 8. bekkjar Engja-
skóla, grunnskóla í næsta nágrenni BHS. Kennslan
hefur verið árangursrík og skemmtileg og í beinu
„Stefama, við erum alveg eins og tvíburar.
21