Börn og menning - 01.05.1999, Page 31
BÖRN OC /AENN|N6
„Þið eruð algjörar hermikrákur. Eruð þið ekki með
heila í ykkar haus?“
Frelsið sem nemendur fengu við undirbúning
þessa verkefnis jók ábyrgðartilfinningu þeirra og
leikritið, þótt það byggi á sögu Munsch, varð smám
saman þeirra eigið sköpunarverk. Við ákváðum að á
hverjum morgni, á meðan mamman væri að greiða
Stefaníu og hún borðaði morgunmatinn sinn ætti
sögumaður að hvetja áhorfendur til þátttöku með því
að spyrja hvað þeir héldu að Stefanía væri að borða.
Stefanía rétti fram ímyndaðan disk og hristi höfuðið
þegar sögumaður stakk upp á því að hún væri að
borða saltkjöt og baunir, hákarl eða súrt slátur, en
kinkaði kolli þegar börnin gátu rétt til um hafragraut,
kornflögur og hafrahringi.
Breytingar á texta voru fjölmargar. A einum stað
er tagli Stefaníu til dæmis líkt við tré sem stendur
beint upp úr kollinum á henni. Þessu breyttu
nemendur og sögðu í staðinn að taglið væri eins og
gosbrunnur.
Leikkonurnar sem léku Stefaníu og mömmu
hennar urðu djarfari eftir því sem á leið. Þær spunnu
skemmtileg samtöl á meðan Stefaníu var greitt. Flún
kvartaði undan því að vera hársár og að krakkarnir í
skólanum hermdu eftir öllu því sem hún gerði.
Móðirin bað Stefaníu að passa sig á bílunum og hún
byrjaði að sippa, hoppa í parís, tína blóm, tralla og
jafnvel stíga dansspor á leiðinni í skólann. Með
hverri sýningu urðu persónurnar trúverðugri og
skemmtilegri.
Ahorfendur leikritsins sem voru á aldrinum eins
til fimm ára skemmtu sér konunglega á sýningunum
og tóku þátt í líflegum umræðum sem spunnust eftir
sýningar um sjálfstæði, hermikrákur, hárgreiðslur og
morgunmat. Leikaramir vom í sjöunda himni yfir
móttökunum og einlægri hrifnin'gu áhorfenda.
Sýningarnar í leikskólunum voru endapunktur
ánægulegrar annar.
Sjálfstæð ogáræðin
Robert Munsch hefur skrifað fjölda bóka sem eiga
það sameiginlegt að vera tilgerðarlausar, stuttar og
fyndnar og alltaf eru söguhetjufnar sjálfstæð og
áræðin börn. Það eru þessir eiginleikar sem gera
bækur Munsch svo skemmtilegar í uppfærslu.
Lengd sýninganna hjá leiklistarhópi Borgarholts-
skóla, spunaferlið og mikil þátttaka áhorfenda henta
ungum áhorfendum sérlega vel. Leikaramir tileinkuðu
sér strax ófonulegan stíl Munsch og var túlkun þeirra
sannfærandi og nærtæk ekki síst vegna málfarsins sem
var nákvæmlega eins og bömin tala sjálf.
Vinna nemendanna á árinu sem leið hefur nýst
vel. Nýir leiklistarnemar hafa breytt handritinu að
Taglinu hennar Stefaníu og aðlagað að sér. Þeir hafa
einnig unnið að uppsetningu leikritsins Plastpoka-
prinsessan sem er líka byggt á bamabók eftir Robert
Munsch. Þessi tvö leikrit verða sýnd í leikskólum í
Grafarvogi í maí.
Greinarhöfundur kennir ensku og leiklist
í Borgarholtsskóla
29