Börn og menning - 01.05.1999, Side 33
BÖRN OC MENN|N6
Elías Snæland Jónsson
Elías Snæland Jónsson fæddist að Skarði í Bjamafirði,
Strandasýslu, 8. janúar 1943, sonur hjónanna Jóns
Mikaels Bjarnasonar bónda á Skarði og síðar
starfsmanns Alþýðusambands Islands, en hann er látinn,
og Huldu Svövu Elíasdóttur frá Elliða í Staðarsveit á
Snæfellsnesi.
Elías kvæntist 24. júní árið 1967 Önnu Kristínu
Brynjúlfsdóttur, latínukennara og rithöfundi. Börn
Elíasar og Önnu: Jón Hersir, læknir, Úlfar Harri, bók-
menntafræðingur og rithöfundur, og Amoddur Hrafn,
BA í ensku.
Elías lauk prófi
frá Gagnfræðaskól-
anum í Keflavík
1960 og Samvinnu-
skólanum 1962. Eftir
nám í skóla norsku
verkalýðshrey f-
ingarinnar í Sör-
marka, Noregi, hóf
hann blaðamennsku
við Sunnmöre Ar-
beideravis í Álasundi
'vorið 1963. Hann var
blaðamaður við
Tímann 1964-1973,
ritstjóri Nýrra þjóð-
mála 1974-1976, blaðamaður og ritstjómarfulltrúi Vísis
1976-1981, ritstjóri Tímans 1981-1984, aðstoðar-
ritstjóri DV frá 1984 til 1997 og ritstjóri Dags frá 8.
ágúst 1997.
Flest þau skáldverk sem ég hef skrifað til þessa fjalla
um ungt fólk - þótt þau séu ekki öll endilega ætluð
bara fyrir yngri kynslóðina; sum eins og Draumar
undir gaddavír og Fjörbrot fuglanna eru fyrir alla
aldurshópa.
Mér fínnst gaman að glíma við veruleika og
vandamál unga fólksins í skáldverkum. Að sumu
leyti eru æsku- og unglingsárin þau mikilvægustu í
lífí einstaklings - sá þroski sem tekinn er út á
þessum viðkvæmu árum ræður ótrúlega miklu um
lífshamingju hvers og eins síðar meir.
Ég tel líka að unglingabókmenntir séu mikilvægur
þáttur í bókauppeldi þjóðarinnar. Unglingarnir eru -
vonandi - framtíðarlesendur skáldverka af öðru tagi.
Þeir eru að mótast sem lesendur. Gæði bókmennt-
anna sem börn og unglingar lesa geta haft varanleg
áhrif á smekk þeirra og lestraráhuga. Það er því
nauðsynlegt að barna- og unglingabókahöfundar geri
ekki minni kröfur til sín en aðrir rithöfundar.
Birt verk:
Iceland’s Fight for Survival. Rit á ensku um land-
helgisstríð íslendinga. (ÆSÍ 1975).
Aldarspegill - Atök milli striða. Sagnaþœttir frá þessari
öld. Vaka 1984.
Hvernig skyldi það vera? Smásaga fyrir börn og
unglinga, Mál og menning 1984.
Aldarspegill - Undir högg að sækja. Sagnaþcettir frá
þessari öld. Vaka 1985.
Sjö sverð á lofti í senn, heimildarkvikmynd í tveimur
hlutum (90 mín) um stjórnmálabaráttu Jónasar
Jónssonar frá Hriflu (handrit og umsjón). Sjónvarpið
1989.
Davíð og Krókódílarnir, skáldsaga fyrir börn og
unglinga, Mál og menning 1991.
Fyrstir með fréttirnar, heimildarmynd (30 mín) um
dagblað (handrit og umsjón). DV-myndband 1991.
Brak og brestir, skáldsaga fyrir börn og unglinga,
Vaka-Helgafell 1993.
Haltu mér fast! Skáldsaga fyrir börn og unglinga,
Vaka-Helgafell 1994.
Lýðveldið lsland 50 ára. The Republic oflceland. 50th
Anniversary. Islensk og ensk útgáfa. Lindin 1994.
Krókódílar gráta ekki, skáldsaga fyrir böm og unglinga,
Vaka-Helgafell 1995.
Draumar undir gaddavír. Skáldsaga. Vaka-Helgafell
1996.
Myrkraverk, framhaldsleikrit í fimm þáttum,
Útvarps-leikhús RúV 1996.
Töfradalurinn, skáldsaga fyrir böm, Vaka-Helgafell
1997.
Návígi á hvalaslóð, skáldsaga fyrir böm og unglinga,
Vaka-Helgafell 1998.
Lífsins steinn, smásaga, Mál og menning 1998.
Fjörbrot fuglanna (Vögel im Todeskampf ), leikrit,
frumflutt í borgarleikhúsi ungs fólks í Dresden í apríl
1999.
Eldur himinsins, smásaga, Tímarit Máls og menningar
1999.
Viðurkermingar.
Handritið Blóðnætur sigraði í samkeppni um
fmmsamið siónvarpsleikrit sem Stöð 2 efndi til sumarið
1989.
Handritið að skáldsögu fyrir börn og unglinga, Brak og
brestir, sigraði í samkeppninni um íslensku bamabóka-
verðlaunin vorið 1993.
Handritið Fjörbrot fuglanna var valið sem framlag
Islands til 1. Evrópsku leikskáldaverðlaunanna í sam-
keppni á vegum Leiklistarsambands Islands vorið 1993.
31