Börn og menning - 01.04.2006, Qupperneq 3

Börn og menning - 01.04.2006, Qupperneq 3
Mér finnst ... 3 ... almennt siðgæði eiga undir högg að sækja þessa dagana. Samfélagið sem við búum í er sífellt að taka breytingum og þróast til aukinnar velmegunar á ýmsum sviðum. í mínum huga er það hins vegar Ijóst að ekki eru allar breytingar til góðs. Við siglum oft og iðulega í strand og mig langar að vekja athygli á nýlegu atviki þess eðlis. Það átti sér stað ekki alls fyrir löngu að Solla stirða úr Latabæ, sem er vinsæl sögupersóna hjá börnum á öllum aldri, hlaut áttunda sæti í vali Ríkisútvarpsins á kynþokkafyllsta kvenmanni landsins. í framhaldi af þessu fór ég að velta því fyrir mér hvert hið raunverulega hlutverk barnaefnis sé. Ég er þess fullviss að afþreying hefur mótandi áhrif á æskuna og mér finnst þvf nauðsynlegt að barnaefni hafi fræðslugildi en sé um leið skemmtilegt. Það er vandasamt verk að semja gott barnaefni sem hentar öllum vegna þess að áhugamálin eru mismunandi frá einum einstaklingi til annars. En nú er búið að gera Sollu stirðu að kyntákni. Þessi titill hennar kemur skýrum skilaboðum áleiðis til áhorfenda og endurspeglar um leið brenglaða og óraunhæfa staðalímynd ungra stúlkna og reyndar kvenna almennt. Nú hvílir viss ábyrgð á Sollu sem sviptir hana æsku og frelsi og breytir henni á ágengan hátt í kynveru áður en hún er sjálf orðin fullþroska. Þó tengist hlutverk hennar í raun og veru Ragnheiður Helga Sæmundsdóttir iér fiimst ímynd atorku og heilbrigðis. Þetta finnst mér gefa til kynna að áróðurinn sem á sér stað í sambandi við útlit og kynþokka komi víðar við sögu en æskilegt er. Solla stirða þjónar með þessari nafnbót ekki lengur tilætluðum tilgangi heldur undirstrikar enn frekar þá ímynd sem stöðugt er hnykkt á í samfélaginu í dag, þ.e. að ungt fólk eigi að líta út og hegða sér á ákveðinn hátt sem helst á að líkjast því sem við sjáum í tímaritum og sjónvarpi. Þannig held ég að dragi úr einstaklingsfrelsi og frumkvæði í hugum annars efnilegs ungs fólks. Hitt er annað mál að það vekur ævinlega athygli mína og ánægju í hvert sinn sem ég verð vör við að höfundar barnaefnis varpa fram raunverulegri mynd af ástinni, sem er gildishlaðið hugtak og stór hluti af lífi okkar allra og um leið það fallegasta og náttúrulegasta í samskiptum milli manna. Slík lesning ætti að vera ungu fólki holl, fræðandi og ekki síður forvitnileg og spennandi. En á klámvæðing að fyrirfinnast í félagsmótandi barnaefni? Hvað ættu börnin svo sem að vita um sannleiksgildi þeirrar ímyndar sem Solla stirða er látin endurspegla af kynþokka? Mér er spurn, er þetta ekki mótsögn við alla þá umræðu sem hefur verið svo áberandi að undanförnu um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum? Sú barátta finnst mér standa ansi höllum fæti gagnvart þeim skilaboðum sem stöðugt herja á yngri kynslóðina og grefur sig æ dýpra í huga þeirra þar til ríkjandi ímynd um kynþokka og líkamlega fegurð er orðin heilög og sjálfsögð. Þess vegna finnst mér nauðsynlegt að gæta að því hversu djúpstæð áhrif barnaefni og meðferð þess af hálfu fjölmiðla getur haft á ungt fólk. Það er rétt að gæta að skynsamlegu siðferði þegar börn og unglingar eiga í hlut. Börn mótast eins og leir og lengi býr að fyrstu gerð. Þess vegna er það sjálfsögð krafa að sýna nærgætni og hafa aðgát í nærveru sálar. Höfundur er nemandi í FG.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.