Börn og menning - 01.04.2006, Side 5

Börn og menning - 01.04.2006, Side 5
viðtalið 5 Hætta á hruni Meðal mælenda var Kristín Helga Gunnarsdóttir barnabókarithöfundur. Fyrirlestur sinn kallaði hún „Kjallari og fyrsta hæð - hætta á hruni. Bóklestur barna -alvara málsins." Undirrituð ákvað að taka á henni hús og ræða við hana um efni fyrirlestursins og um áhyggjur hennar af málkunnáttu barna. Kristín Helga tók vel á móti gestinum og þrír hundar fögnuðu með henni með tilheyrandi hljóðum. Við byrjuðum á því að ræða áhyggjur Kristínar af minnkandi lestri barna á grunnskólaaldri, barnanna sem hún beinir kröftunum að með bókaskrifum sínum. „Börn lesa svo miklu minna en þau gerðu hér áður fyrr. Þegar ég byrjaði að skrifa fyrir börn, fyrir tæpum tíu árum, var mjög gaman að fara í grunnskólana og lesa upp fyrir hópinn, þá voru mun fleiri sem svöruðu því játandi að lesa sér til skemmtunar. Margar hendur fóru á loft. Núna liggur við að fjöldi þeirra sem njóta samverunnar við bókina sé jafn fingrum annarrar handar." Finnst þér minnkandi bóklestur eiga jafnt við um bæði kynin? „Ég hef tekið eftir því að mun færri drengir en stúlkur rétta upp hönd. Það þykir nefnilega ekki fínt hjá strákum að lesa, það eru bara „nördar" sem liggja í bókum og lesa. Strákum þykir ekki fínt að eiga bækur í hillum, betra er að eiga stafla af DVD eða tölvuleikjum. Til dæmis bað einn þrettán ára piltur pabba sinn að geyma bækur fyrir sig í bókahillunum frammi, þær nefnilega virka svo nördalega í strákaherbergi. Ég heyrði líka einu sinni útundan mér þessi orð: „Ekki segja neinum að ég sé að lesa Njálu, mamma, mér verður bara strítt." Það var tólf ára mær sem þetta mælti." Fyrst minnst er á bækur og bókahillur, þá virðist ekki vera vinsælt að skreyta heimili sín með bókum. Kristín Helga hefurvarpað þeirri spurningu til áheyrenda sinna hversu margir hafi bókasafn heima hjá sér og sorglega fáir rétta upp hönd. Hún hefur dregið þá ályktun, ómarktæka að hennar sögn vegna óvfsindalegra vinnubragða, að bækur séu að hverfa af heimilum. Bækur sjést ekki í

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.