Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 10
10
Börn og menníng
en krakkarnir fara fær undirrituð að spjalla
smástund við fjóra nemendur um bækur og
lestur.
ísak Grétarsson segist hafa mikið dálæti á
Heimsmetabók Guinness eins og stendur en
uppáhalds sögupersónan er Harry Potter.
ísak les eitthvað sér til ánægju nánast
á hverjum degi og oft eru það Syrpurnar.
Það eru til nokkuð margar bækur heima hjá
honum en aðallega barnabækur. ísak er með
kort á Borgarbókasafninu í Sólheimum og
þangað fer hann u.þ.b. einu sinni í viku til
að ná sér í bók eða bara til að setjast niður
og lesa. Honum finnst einmitt best að-lesa á
bókasafninu því þar er svo friðsælt.
ísaki finnst ekki skipta neinu máli að það
séu myndir í bókum og nú er hann nýbúinn
að læra að það er hægt að lesa aftan á
bókarkápur til að fá hugmynd um innihaldið.
Honum finnst kápurnar á Heimsmetabók
Guinness og Gæsahúðarbókunum flottar.
Hann gafst þó upp á að lesa Gæsahúð
- álagagríman af því honum þótti letrið svo
erfitt.
isak semur stundum sögur og yrkir Ijóð
í skólanum. Nýlega samdi hann sögu sem
gerðist í ævintýralegum heimi þar sem allt var
úr sælgæti: Þegar súkkulaðihöllin bráðnaði
flúði fólkið sem var úr karmellum í burtu á
brjóstsykursbílunum sínum.
Nú halda eflaust margir að ísak sé mikill
nammigrís en svo er víst ekki. Hann segist
eiga heilmikið sælgæti heima hjá sér vegna
þess að hann gleymi hreinlega að borða
það.
Arnór Jóhannsson heldur mest upp á
Heimsmetabók Guinness og Artemis Fowl
en Andrés önd er uppáhalds sögupersónan
hans.
Hann er með bókahillu í herberginu sfnu
en þar eru aðallega Andrésblöð. Amma hans
sem býr á heimilinu á hinsvegar mjög mikið
af bókum.
Arnór les oftast Andrésblöð á kvöldin.
Hann vill treina sér Artemis Fowl því hún
er svo spennandi. Hann fékk Bróðir minn
Ijónshjarta í jólagjöf en er ekki búinn að
lesa hana. Þegar Arnór var lítill var einstaka
sinnum lesið fyrir hann á kvöldin en ekki
lengur og yngra systkini hans vill ekki leyfa
honum að lesa fyrir sig.
Arnóri finnst alls ekki nauðsynlegt að hafa
myndir í bókum og bendir á að t.d. séu engar
myndir í Artemis Fowl. Hann kíkir stundum
í bækur þótt honum finnist kápan Ijót en
les ekki textann aftan á kápunni. Honum
finnst öll Andrésblöð hafa flottar kápur.
Best finnst Arnóri að lesa í sumarbústað eða
í bókasafninu en sjálfur semur hann aldrei
sögur eða yrkir Ijóð.
Baidur B, Sveinsson heldur mest upp á
bækurnar Silmerillinn og Leynilandið.
Hann les nánast á hverju kvöldi áður
en hann fer að sofa og oftast eru það
Andrésblöð þótt mikið sé til af alls konar
bókum heima hjá honum.
Hann fer á Sólheimasafnið þar sem hann
er með kort u.þ.b. tvisvar í mánuði til að ná
sér í Syrpur. En hann les aldrei á safninu.
Þegar Baldur var yngri var lesið fyrir hann
á hverju kvöldi og einstaka sinnum ennþá.
Sjálfur les hann upphátt fyrir foreldra sína
þegar á að lesa í heimavinnu.
Baldur vill helst hafa einhverjar myndir
í bókum en hann velur ekki frekar þær
bækur sem honum finnst hafa flottar kápur.
Hins vegar forðast hann að taka bækur
á söfnum ef þær eru sóðalegar, t.d. með
slettum á síðunum. Stundum les hann aftan
á bókakápur, t.d. Gogga og Grjóna af því að
þar er fyndinn texti.
Best finnst Baldri að lesa þar sem ekki er
hávaði og Ben í Leynilandinu er uppáhalds
sögupersónan hans. Sjálfur segist Baldur
aldrei semja sögur eða yrkja Ijóð.
Ingibjörg Eva Einarsdóttir heldur sem
stendur mest upp á Úr bálki hrakfalla
og Kafteinn ofurbrók er uppáhalds
sögupersónan hennar. Hún les nánast á
hverju kvöldi sér til skemmtunar og finnst