Börn og menning - 01.04.2006, Side 12

Börn og menning - 01.04.2006, Side 12
12 Börn og menning bókmenntir Arndís Þórarinsdóttir Hin Ijúfsára þrá Trumburnar hljóðnuðu þegar morrinn kom og klöngraðist upp hamrana. Hann gekk rakleitt að brennunni og hlammaði sér þegjandi ofan á glæðurnar. Það hvein og hvæsti í öllu og klettarnir hurfu í móðu. Þegar henni létti voru engar glæður eftir lengur. Bara stór og grár morri sem blés frá sér ísþoku. Múmínsnáðinn hafði flúið niður á ströndina. Hann greip í Tikku-tú og hrópaði: „Hvað verður nú um okkur? Er morrinn búinn að slökkva á sólinni?" „Engan æsing," sagði Tikka-tú. „Hann kom ekki til að slökkva eldinn, heldur til að hita sér, vesalingurinn. En allt sem er heitt verður kalt þegar hann sest á það. Nú hefur hann enn einu sinni orðið fyrir vonbrigðum. "1 Þessar línur úr Vetrarundri I Múmindal eru að sumu leyti einkennandi fyrir bókaflokkinn um múmínálfana. Allar fjalla bækurnar um þrána eftir hinu ósnertanlega, langanir sem ekki er hægt að færa í orð og hina þöglu ógn. Óneitanlega sérkennilegt viðfangsefni barnabóka, en frásögnin er svo indæl, húmorinn svo lifandi og persónurnar svo sannar að höfundinum tekst að draga upp mynd af heiminum þar sem gapandi tómið innra með okkur og vandræðagangurinn sem fylgir því að vera lifandi verða að ásættanlegum hluta tilverunnar, af því að stundum skfn sólin og flest rekumst við öðru hvoru á múmínmömmur. Múmínálfarnir hafa verið hluti af æsku Islendinga í tæp fjörutíu ár. Þeir birtast í myndabókum, í sjónvarpinu og á borðbúnaði. Þeir hafa runnið saman við veruleikann á þann hátt að lífið væri óhugsandi án fillífjonka, hattífatta og hemúla. Tove Jansson, skapari múmínálfanna, fæddist í Helsinki árið 1914. Foreldrar hennar voru listamenn, faðir hennar myndhöggvari og móðirin myndlistarmaður. Öll börn þeirra hjóna lögðu fyrir sig listsköpun á 1 Jansson, Tove, 2003, bls. 54

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.