Börn og menning - 01.04.2006, Qupperneq 13

Börn og menning - 01.04.2006, Qupperneq 13
Hin Ijúfsára þrá 13 fullorðínsárum. Tove Jansson lærði myndlist frá unglingsárum, í Svíþjóð, Finnlandi og Frakklandi. Hún var Finnlands-Svíi og var sænska því móðurmál hennar og eru flest verk hennar upphaflega skrifuð á sænsku. Þó svo að Tove Jansson hafi fæðst á miklum umbrotatfmum í Evrópu átti hún áhyggjulausa og hamingjusama æsku og er það haft eftir henni að múmínbækurnar séu endurangan þeirra Ijúfu æskudaga. Tove starfaði lengi sem myndlistarmaður og teiknaði mikið fyrir dagblöð. Hún öðlaðist skammvinna heimsfrægð stuttu áður en síðari heimsstyrjöldin braust út þegar hún teiknaði mynd af Adolf Hitler i gervi öskrandi ungbarns og leiðtogar helstu ríkja heims stóðu áhyggjufullir á svip i kringum hann þar sem þeir freistuðu þess að róa gríslinginn. En heimsbyggðin þekkir Tove Jansson vitaskuld helst fyrir múmínbækurnar. Fyrsta bókin um múmínálfana kom út árið 1945 og sú síðasta þrjátíu og fimm árum síðar, árið 1980. Bækurnar voru 13 í allt og þar af hafa sex verið þýddar á íslensku, auk fjölda smærri myndabóka sem unnar hafa verið upp úr sögunum. Tove samdi líka teiknimyndasögur um múmínfjölskylduna fyrir breska blaðið The Evening News frá árunum 1954 til 1959. Þá tók bróðir hennar, Lars Jansson, við seríunni og teiknaði hana allt til ársins 1975. Þessar teiknimyndasögur voru birtar í Morgunblaðinu um árabil og ættu því að vera mörgum íslendingum að góðu kunnar. Það varð múmínvinum um allan heim mikið fagnaðarefni þegar tilkynnt var nýlega að þessar sögur ætti að gefa út á bók á haustdögum 2006.2 Tove Jansson skrifaði ekki bara bækur um múmínálfa. Eftir hana liggja einar tíu skáldsögur ætlaðar fullorðnum auk æviminninganna Dóttir myndhöggvarans (Bildhuggarens dotter) sem ekki hefur verið þýdd á íslensku. Besti heimur allra heima Bækurnar um múmínálfana fjalla um múmínfjölskylduna og þá sem á vegi þeirra verða. Múmínmamma, múmínsnáðinn og múmínpabbi lifa sældarlífi í múmíndalnum þó að vitaskuld lendi þau reglulega í spennandi ævintýrum, sem þau taka með stöku jafnaðargeði. Fyrsta bókin bar titilinn Smátrollen och den stora översvámningen sem mætti þýða sem Smáálfarnir og flóðið mikla. Sú bók hefur ekki verið þýdd á íslensku, enda vakti hún ekki nándar nærri jafnmikla athygli og síðari múmínbækur. Þar er þó að finna mikilvægar upplýsingar um forsögu múmínfjölskyldunnar, þó að heimsmyndin sem þar er lýst sé bersýnilega ekki fullmótuð. Tove sagði síðar að bókina hefði hún skrifað til að leiða hugann frá hinum voveiflegu atburðum sem skuku Evrópu á því herrans ári 1945. í bókinni segir frá múmínmömmu og múmínsnáðanum sem eru á flótta undan miklum náttúruhamförum. Jafnframt eru þau að leita að múmínpabba sem múmínsnáðinn hefur aldrei séð, en hann lagðist í flakk með hattíföttunum áður en sonur hans fæddist. Allt fer vel að lokum og múmínfjölskyldan er sameinuð. f Ijós kemur að múmínpabbi hefur iðrast gjörða sinna ákaft og lengi leitað þeirra mæðgina. Um æsku múmínpabba má raunar lesa í bókinni Ævi'mlnningar múminpabba (Muminpappans bravader), sem er enn ekki fáanleg á íslensku. Lesendur bókanna um múmínálfana þekkja þó þetta rit af afspurn, því múmínpabbi situr löngum stundum við skriftir. Að vísu minnist hann ekki á árin með hattíföttunum í bókinni því hann kveðst ekki vilja setja ungum múmínálfum slæmt fordæmi! Þetta upphaf sagnabálksins um múmínálfana ber ýmis einkenni sem síðar áttu eftir að marka allan bókaflokkinn. Barnasaga sem fjallar fyrst og fremst um óáreiðanlega feður og yfirgefnar mæður hlýtur að teljast nokkuð óhefðbundin. En einsemd, angurværð, umburðarlyndi og hin eilífa leit að hamingjunni eru þemu sem koma fyrir í öllum sögunum af múmínálfunum. Múmíndalurinneráóræðumslóðum.virðist þó í ýmsu svipa til Finnlands - veturinn er þungurogdimmurogsumrin indæl. Dalurinn er yfrið fullur af alls kyns furðuskepnum og nútímatækni virðist ekki vera nýtt nema að takmörkuðu leyti - olíulampar eru notaðir til lýsingar og húsið er kynt með eldiviði. En svo 2 Áætlaður útgáfudagur er 15. september og mun bókin heita Moomin: The Complete Tove Jansson Comic Strip I

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.