Börn og menning - 01.04.2006, Side 15

Börn og menning - 01.04.2006, Side 15
Hin Ijúfsára þrá 15 sem les bókina Um tilgangsleysi allra hluta af áfergju, allt í gegnum Pípuhatt galdrakarlsins. En það er í Eyjunnl hans múminpabba sem list Tove Jansson nær hámarki og þar gengur hún hvað lengst í því að ögra víðteknum hugmyndum um hvað sé viðeigandi umfjöllunarefni barnabóka. Of langt, að mati sumra (kannski sér í lagi barnal). Múmínpabbi er eirðarlaus og pirraður þegar bókin hefst. Allt er leiðinlegt og fyrirsjáanlegt, fjölskyldan þarf ekki á honum að halda, tilveran ertilbreytingarlaus. Svo múmínpabbi, múmínmamma, múmínsnáðinn og Mía litla leggja upp í langferð og setjast að á eyðieyju úti í reginhafi, þar sem allt er ömurlegt og yfirgefið. Það fer ekki mikið fyrir atburðarás í textanum, heldur er því lýst hvernig einstakir meðlimir fjölskyldunnar takast á við yfirþyrmandi aðstæður. Og í þeirri ferð vingast múmínsnáðinn við morrann. Bækurnar um múmínálfana fjalla um samskipti. Þær fjalla um það hvernig fillffjonkur og hemúlar þurfa að læra að búa saman, hvernig einn einstaklingur reynir að ná sambandi við annan og skilaboð farast á mis. Þær fjalla um það hvernig fjölskyldumeðlimir þurfa að læra að umbera hver annan, þrátt fyrir ólíkt geðslag og mismunandi lífsviðhorf. Við fylgjumst með múmínsnáðanum vingast víð flakkarann Snúð, sem er heillandi heimsmaður. Snúður vill gjarna eyða tíma með múmínsnáðanum en neitar að láta binda sig. Hann metur frelsi sitt ofar öllu og múmínsnáðinn er ævintýraf rásagnir þar sem lesandinn er leiddur um heim múmínálfanna í skemmtilegum félagsskap með hæfilegri spennu. En það er ekki bara hamingja í Múmíndalnum. Stemningin í bókaflokknum breytist með Vetrarundri í Múmíndal. Múmínsnáðinn vaknar nefnilega um miðjan vetur, þegar allir múmínálfar eiga að vera í djúpum vetrardvala. Hann vaknar, getur ekki sofnað aftur og getur ekki heldur vakið mömmu sína. Húsið er dimmt, hljótt og ókunnuglegt og veröldin hefur tekið á sig nýjan svip - ekkert er sem áður. Og múmínsnáðinn þarf að takast á við þessa nýju veröld, aleinn. Þessi ógn er mun skelfilegri en nokkurt ævintýri - miklu skelfilegri en halastjarnan sem stefndi á jörðina í Halastjörnunni. Þessi barátta er háð innra með bæði söguhetju og lesendum. Múmínmamma vaknar ekki fyrr en allt er um garð gengið og múmínsnáðinn hefur sigrast á ógnum vetrarins sjálfur. Hið innra hyldýpi Flestir unnendur múmínálfanna eru sammála um að morrinn sé einn best heppnaði óvættur bókmenntasögunnar. Vitsugur, akademónar eða hringvomar eiga ekkert í morrann. Allar skepnur í Múmíndalnum eru hræddar við þessa þöglu óvætt sem fylgist með þeim úr fjarska. Morrinn er í aðalhlutverki f upphrópunum, rétt eins og djöfullinn sjálfur er í íslensku. Hann hefur þó aldrei gert neinum mein, ekki beinlínis. En hann er svo kaldur að allt frosnar og deyr í kringum hann og ef hann situr á sama stað í meira en klukkustund mun aldrei neitt vaxa þar aftur af því að jörðin deyr úr hræðslu. Múmínmamma býður upp á þá alþýðuskýringu að morrinn sé eins og hann er, ekki vegna þess að eitthvað hafi verið gert á hlut hans, heldur frekar vegna þess að „enginn skipti sér af honum. Og líklega man hann það ekki og er ekkert að velta því fyrir sér."4 En þrátt fyrir þessa sorglegu skýringu hefur múmínmamma allan varann á gagnvart morranum og áminnir múmínbarnið sitt: „Það á ekki að tala við morra. Hvorki við þá né um þá, svo að þeir vaxi ekki og fari að elta mann. Farðu samt ekki að vorkenna morranum. Þú heldur, að hann þrái birtu, en það eina sem hann kærir sig um, er að setjast á Ijósið, svo að það slokkni og geti aldrei kviknað aftur."5 Þess má geta, lesendum til fróðleiks, að morrinn er kvenkyns á frummálinu, og ekki er Ijóst hvaða rök hnigu að því að breyta kyni hans á íslensku. En kyn skiptir í sjálfu sér ekki öllu máli í bókunum um múmínfjölskylduna - ein af vinsælustu persónum bókaflokksins er til dæmis af óræðu kyni, en þar á ég vitaskuld við heimspekinginn bísamrottuna 4 Jansson, Tove. 1972. Eyjan hans múmínpabba, bls. 29. Steinunn Briem þýddi. Bókaútgáfan Örn og Örlygur, Reykjavík. Hér eftir verður vísað í þessa bók með nafni og blaðsfðutalí. 5 Eyjan hans múmínpabba. bls. 29.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.