Börn og menning - 01.04.2006, Síða 27

Börn og menning - 01.04.2006, Síða 27
Drekar, blökur, andar og óhugnaður 27 náttúruundri. Hins vegar kemur snemma í Ijós að Filippía og John eru engin venjuleg börn. Þau dreymir undarlegar sprungur og fólk sem þau hafa aldrei séð og þau missa vísdómstennurnar óvenju snemma (sem kallast endajaxlar á venjulegri íslensku en þýðandi heldur líklega í þetta hugtak til að missa ekki merkingaraukann um viskuna). Filippía og John reynast vera andar beint úr ævintýraheimí sagnasafnsins 1001 nótt, en þeir kallast djinn á frummálinu (en genie á ensku, með hljóðlíkingu). Slíkir andar reynast síðan skiptast í sex hópa, þrjá góða og þrjá illa (sú skipting er ekki uppfinning höfundar) en sem betur fer reynast systkinin vera góðir andar og raunar gott betur, þau eru í hópi öflugustu andanna af sínu kyni. Það hefur í för með sér að þau þurfa að yfirgefa heimili foreldra sinna og fara í þjálfun hjá enskum frænda sínum sem nefnist Nimrod og einnig er andi. Síðan þurfa þau að aðstoða Nimrod við að hindra að nýfundnir andar í Egyptalandi bætist í hóp illu andanna. Börn lampans minnir talsvert á bækurnar um Harry Potter að því leyti að hún er í gamansömum dúr og getur vart talist óhugnanleg. Sagan er full af orðaleikjum og alls konar skemmtilegum skírskotunum þar sem nútíminn og 1001 nótt rekast á þannig að sagan er á mörkum þess að vera satíra (eins og Harry). Nostrað er við hvers kyns smáatriði sem geta vel átt heima í barnaleikjum, eins og til dæmis leit barnanna að máttarorði sínu sem þau nota til að beita kröftum sínum (sbr. Abrakadabra). Enn fremur eru börnin í hálfgerðri starfsþjálfun (sem að vísu er sérkennsla en ekki heimavistarskóli enda bókin bandarísk) og hafa aðgang að öflugum öndum sem styðja við bakið á þeim og þeir hinir síðarnefndu sjá raunar einir um að leika á versta anda Ifritanna, Iblis, sem hefur yfirtekið annan líkama að hætti Voldemorts í bókunum um Harry Potter. Ofurmenni eru börnin því ekki. Það eru drættír frá Sherlock Holmes og Phileas Fogg í enska sérvitringnum Nimrod sem að öðru leyti er í sígildu hlutverki þeirra Gandálfs, Dumbledore og Obi Van Kenobi. Honum fylgir einhentur þjónn og sá verður holdgervingur þess vanda sem andarnir geta valdið mönnunum með því að uppfylla óskir þeirra. Andamenntunin snýst ekki síst um að reyna að hafa hemil á kröftum sínum og einkum hæfileikanum til að uppfylla óskir venjulegra manna (þeir eru ekki kallaðir muggar í bókínni en hliðstæðan er skýr). Má þar sjá hliðstæðu við hlutskipti venjulegs unglings sem skyndilega stendur uppi hálfu sterkari líkamlega en andlega. Engu að síður fá börnin færi á að sanna ágæti sitt í þrekraun og í bókarlok hafa þau fundið sína fjöl sem efnilegir andar. Á hinn bóginn kemur einnig fram að móðir þeirra ætti að vera leiðtogi hinna góðu anda en hefur hafnað hlutverki sínu. Eins er föðurnum uppsigað við tengsl sín við anda og afneitun þeirra skapar ákveðna spennu í flokkinn. Gamansemin er aftur á móti ekki ríkjandi í Dóttur ávítarans (Skammerens datter, 2000) og Ávítaratákninu (Skammertegnet, 2001) eftir dönsku skáldkonuna Lene Kaaberbol (f. 1960) en þýðandi bókanna er Hilmar Hilmarsson. Enda er söguhetjan ekki nútímabarn frá New York heldur evrópsk miðaldastúlka sem skyndilega er sótt úr litlu þorpssamfélagi til Dúnark. Stór kastali gnæfir yfir þröngum götum úr dæmigerðri evrópskri miðaldaborg þarsem meðal annars búa sútarar, skómakarar og apótekarar. Söguhetjan Dína er lengi að átta sig á eigin hæfileikum og skynjar sérstöðu sína fremur sem fötlun en styrk. Hún lítur á sig sem peð í valdatafli hinna voldugu - litla manneskju í stórum heimi. Eins og John og Filippía herðir hún sig þó upp og nær að skipta máli. Einnig hún nýtur aðstoðar fullorðinna verndarengla en þeir hafa ekki sama afl og Nimrod frændi í Börnum lampans - raunar eru bækurnar raunsæislegar að því leyti að hetjurnar eru venjulegt fólk sem á í mesta basli við að hafa betur og raunar felst sigur þeirra í fyrsta bindinu (Dóttur ávítarans) í því að komast lífs af. Rétt eins og kastalinn gnæfir yfir borginni eiga góðu öflin í bókaflokknum um ávítarann í fyrstu ekki roð við hinum illa Drakan sem hyggst ríkja yfír þessum heimi. Yfirnáttúrulegir hæfileikar Dínu eru ennþá áhugaverðari en andahæfileikar Johns og Filippíu. Hún er af kyni ávítara, kvenna sem geta horft í augu annarra og fengið þá til að skammast sín. Þessí hæfileiki vekur auðvitað upp spurningar um eðli mannlegrar samvisku og iðrunar og fyrstu bækurnar tvær í flokknum njóta þess, þó að ekki þyki mér hugmyndin fullnýtt. En öfugt við tvíburana sem fyrst og fremst græða sjálf á að vera andar og þurfa frekar að gæta sín gagnvart öðrum er ávítarahæfileikinn takmarkaður og vandmeðfarinn eiginleiki sem að vísu getur gagnast Dínu en gerir henni líka erfitt fyrir. Fram kemur að ávítarar eru stundum brenndir á báli sem nornir og fá þá ekki rönd við reist og raunar er sá galli á þessari náðargáfu mæðgnanna að höfuðandstæðingurinn Drakan er ónæmur fyrir augnaráði ávítarans (í lok annarrar bókar hefurenn ekki verið upplýst hversvegna). Eins og kannski sést á þessari lýsingu eru sögurnar um ávítarann kyrfilega staðsettar í evrópskri fortíð þó að hvorki stundin né staðurinn séu nákvæmlega skilgreind. Stundum fær lesandinn tilfinningu fyrir Norðurlöndum en stundum fyrir Bretlandseyjum, stundum fyrir fjórtándu öldinni og stundum þeirri átjándu. í Ávítaratákninu er Dína sjálf aðeins önnur aðalpersónan því að bróðir hennar Davín er þar einnig í öndvegi. Bæði takast þau á við nýtt hlutverk, hún hræðist eigin ávítarahæfileika og bælir þá niður en hann glímir við að vera sannur karlmaður sem getur farið með blóði og brandi á hendur óvinum sínum. Ekki er hægt að kalla þau hetjurí neinum hefðbundnum skilningi þrátt fyrir sæmilega útsjónarsemi; að sumu leyti eru þau bæði að kikna undan kröfum annarra og ekki síður eigin kröfum til sjálfs sín þó að þau dansi ekki nógu mikið á línu hins góða og illa til að geta talist andhetjur. ( Ávítaratáknlnu vinnst sigur fyrir keðju heppilegra tilviljana og samstöðu allra góðra manna en einnig með því að Dína

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.