Börn og menning - 01.04.2006, Qupperneq 29
Drekar, blökur, andar og óhugnaður
29
fyrst með konunum en síðan sameinast þau
karlblökunum í Vetrarhíði. Sagan fjallar öll
um krókaleið Skugga þangað. Hún er ekki
eina ferð unglings til fullorðinsára sem reynist
full af ógnum, erfiðleikum og farartálmum.
Skuggi er óvenju smávaxin blaka en líka
sérstakur að ýmsu öðru leyti. Til að mynda
er hann fullur ævintýraþrár og viðskilnaður
hans við móðurina og nýlenduna er að
verulegu leyti honum sjálfum að kenna.
Enn fremur er hann föðurlaus og grunar að
faðir hans hafi verið sérstakur, þar sem hann
hafði fengið hring hjá mönnunum. í sögunni
eru leðurblökur sem hafa verið merktar af
mönnunum eins konar leiðarminni en aldrei
kemur skýrt fram hvaða tilgangi merkingarnar
þjóna enda eru þær túlkaðar á ýmsan hátt af
blökunum sjálfum. Skuggi er sannfærður
um að hann hafi sérstakt hlutverk en hann
er þó eina söguhetjan í þeim bókum sem
hér er fjallað um sem ekki er fullvíst að
hafi náðargáfu sem greini hann frá öðrum.
Kannski er það sannfæring hans sjálfs um
eigin sérstöðu sem ræður frekar úrslitum um
að hann nær að lokum að verða sú hetja sem
hann dreymir um. Eða næstum því.
Á leiðinni kynnist Skuggi öðrum blökum
og fljúgandi kvikindum af ýmsu tagi, þar á
meðal uglum sem eru helstu óvinir blakanna.
Mikilvægust er þó Skærvængurinn Marína
sem hefur hrakist frá eigin nýlendu vegna þess
að hún hafði fengið hring frá mönnunum.
Hún er þannig dæmi um annarleika sem
vekur tortryggni, andúð og útskúfun. Þau
Skuggi verða félagar í ævintýrinu en því er
haldið opnu um hvað síðar gerist milli þeirra.
Þá kynnast þau stórri leðurblöku úrfrumskógi
suðursins. Sá heitir Goti og hefur verið
handsamaður af vísindamönnum og haldið í
hálfgerðu fangelsi. í fyrstu tekur sögumaður
sér stöðu með honum í fangavistinni en
síðan kemur í Ijós að í friðsömu norðrinu
er Goti ófreskja og hann verður síðan helsti
andstæðingur Skugga og Marínu ( sögunni.
Lesendur eiga þó erfitt að túlka söguna
sem baráttu góðs og ills þar sem allar
sögupersónurnar fylgja eigin náttúru og Goti
er fórnarlamb líka þar sem honum hefur
verið rænt úr eigin heimi. Það dregur þó alls
ekki úr óhugnaðinum sem af honum stafar.
Oppel hefur greinilega ákveðið að halda öllu
opnu því að Goti lifir fyrstu bókina af og mun
greinilega birtast aftur.
Minnið um sérstaka unglinginn kann í
fyrstu að virðast fremur ógeðfellt. Það mætti
ætla að þar Sé verið að kynda undir gamlar
og úreltar hugmyndir um kónga og annað
afburðafólk sem náttúran eða almættið hafi
valið til að skara fram úr. En eðlilegra er
kannski að skilja hina afbrigðilegu hæfileika
táknrænum skilningi og líta á minnið sem
hluta þroskasögunnar. í lífi unglingsins er
umbreyting hans yfirþyrmandi staðreynd.
Barnið er skyndilega orðið að 190 sentimetra
karlmanni sem færi létt með að tuska til þá
sem honum er ætlað að hlýða. Eða konu sem
er jafn fullorðinsleg í vextinum og mamma
sín og hálfu stærri. En innst inni er barnssálin
þó ekki alveg horfin og þess vegna þykir
unglingum iðulega fátt skemmtilegra en að
leyfa sér að hverfa aftur til bernskunnar með
öllum tiltækum ráðum. Fyrir unglinginn er
skyndileg stærð hans yfirþyrmandi staðreynd
og hana má tákngera í yfirnáttúrulegum
eiginleikum eins og getu til að uppfylla óskir,
til að geta horft f augu fólks og fengið það
til að iðrast eða hæfileikanum til að tala
við dreka. Miðað við risavaxna hæfileikana
verður unglingurinn í þessum sögum sjálfur
smár, rétt eins og unglingar eru í þeirri
skrýtnu stöðu að finnast þeir svolítið minni
en þeir eru.
Þannig upphefur snilligáfan ekki þann
sem hana hefur heldur dregur þvert á móti
fram smæð hans og við þessa smæð þurfa
Eragon, Dína, Filippa og John öll að berjast.
Líka unglingsstrákurinn Davín og leðurblakan
Skuggi þó að þar fléttist inn í metnaður og
hugsjón um mikilvægt framtfðarhlutverk.
Feður og óvættir
Allar þessar þroskasögur snúast annars
vegar um flókin sambönd í fjölskyldu en
hins vegar skrímsli. Þetta minni er gamalt í
þroskasögum allt frá dögum goðsagnarinnar
um Sigurð Fáfnisbana, unglinginn sem einn
er nógu óttalaus til að drepa drekann og ríða
vafurlogann. Unglingareru stöðugtað berjast
við skrímsl og samkvæmt Fáfnisbanasögninni
eru þeir betur til þess fallnir en við hin.
Unglingareruóttalausirásinnhátt, kærulausir,
fúsir að taka áhættu og leika sér að lífinu. Á
hinn bóginn dauðhræddir við að hafa sig að
fífli, við niðurlægingu og félagslegt vanmat
sem eldra fólki verður að lokum sama um.
Þeir eru eiginlega fyrst og fremst hræddir
við sjálfa sig. Það er ekki líkamlegur ótti eins
og sá sem drekinn táknar. Þess vegna eru
samskiptin við skrímslin stundum einfaldari
en samskiptin við þá nánustu.
( sögunni um Sigurð er drekinn táknmynd
óttans og þess vegna drepur óttaleysi Sigurðar
hann næstum sjálfkrafa. í Fáfnismálum
segir síðan frá því þegar Sigurður hefur
drepið drekann og lendir í spurningakeppni
við deyjandi dýrið. Þá reynir hann að vera
sniðugur en kann ekkert á drekann; drekar
eru oft snjallir enda hafa þeir iðulega lifað
mjög lengi. Unglingurinn er hins vegar aldrei
sniðugur en samt öfundsverður því að hann
skilur ekkert nema það eitt sem skiptir máli.
Þess vegna getur hann drepið drekann.
Þegar Sigurður er búinn að drepa drekann
þarf hann hins vegar að drepa fóstra sinn
líka og svo að Ijúga að konu sem hann hefur
legið hjá og fljótlega er hann kominn í mestu
vandræði. Hetjan reynist ekkert kunna á
flókin tilfinningamál eða skyldur fullorðins
fólks. Þannig að niðurstaðan er að líklegra sé
auðveldara fyrir unglinginn að drepa dreka
en að vera fullorðinn.
Það er kannski engin furða að
fantasíubókmenntir af þessu tagi höfði til
unglinga. Þær eru ein leið til að fjalla um
þá stöðu sem unglingurinn er í en hefur
þó alla jafna síst af öllu áhuga á að ræða
um (unglingar móðgast iðulega ef þeir
eru kallaðir unglingar) og skrímslið leikur
lykilhlutverk f táknsögugerðinni. í sögunum
sem hér hafa verið ræddar hafa skrímslin
mjög fjölbreyttar og flóknar táknrænar
skfrskotanir og ekki endilega af sama tagi og
drekinn Fáfnir. Það hafa foreldrarnir raunar
líka. í Börnum lampans er fyrst engu líkara en
að börnin séu sjálf skrímslið í sögunni og það
er ekki síst vegna viðbragða foreldra þeirra