Börn og menning - 01.04.2006, Side 33
Pabbi les
33
kumpánana Láka, Stubb og Tralla, og er
óhætt að segja að þessar bækur hafi haft
mikil áhrif á mig í æsku. Nú vil ég helst
lesa þetta tríó á hverju kvöldi og sárnar
hálfpartinn þegar Dagbjartur fúlsar við því.
Stubbur lendir í einelti eldri og leiðinlegri
bræðra en tekst með góðmennsku sinni að
sanna sig. Uppáhald Dagbjarts í bókinni er
setningin „Farðu burt, heimski hundur",
sem hann hlær alltaf að. Láki er líka með
tæran boðskap; að það sé mun betra í Iffinu
að vera góður en vondur. Foreldrar Láka
jarðálfs eru illskan uppmáluð en kyssa hann
þó á morgnana. Hann heldur upp á jörðina
og leggur líf sænskrar vísitölufjölskyldu (
rúst. Á endanum, eftir 721 illverk, gefst
hann upp og snýr sér að góðverkunum.
Þá er hann ekki lengi að verða að normal
Svía og er tekinn inn í fjölskylduna. Lítið
er gert úr tilfinningum blóðforeldra hans
við sonarmissinum, en hverjum er svo sem
ekki sama um tilfinningar meintra illmenna?
Spyrjið bara Bandaríkjastjórn.
Erfiðara er að greina boðskap f Tralla-
bókinni, enda væri hún seint skrifuð í dag,
hálf rasísk sem hún er. Kyrrahafseyja-negrar
fá ekki háa einkun og ekki heldur Tralli
sem er greinilega inúíti með skott. Þetta lið
gerir víst ekkert nema að sofa og dansa.
En nú er ég kannski að alhæfa og það
borgar sig ekki að segja meira því ekki vill
maður fá bókaútgáfuna Björk upp á móti
sér. Dagbjartur hefur líka gaman af Tralla í
hófi, sérstaklega þegar hrjótandi Tralla hefur
skolað á land og negrarnir koma hlaupandi.
Nóg til
Bækur um Tomma togvagn og hinn
síbyggjandi Bubba hafa verið í uppáhaldi
hjá syninum en eru vonandi á útleið enda
hundleiðinlegar bækur. Dagbjartur er
byrjaður að hafa gaman að Herramönnum og
Einari Áskeli, sem er góð þróun því það eru
nokkuð skemmtilegar bækur. Svo er veröldin
auðvitað full af góðum barnabókum og ég
hlakka hreinlega til þegar Dagbjartur verður
orðinn stærri og þroskaðri. Hlakka til að lesa
með honum Múmínálfabækurnar (sem ég
missti alveg af í æsku), bækur Lindgren og
hvað þetta heitir allt saman. Nóg er til, sýnist
mér. Síðast en ekki síst verður gaman að
koma honum upp á bragðið með Tinna, sem
er toppurinn, sérstaklega vegna glæsilegra
þýðinga Lofts Guðmundssonar. Ég sé fyrir
mér mörg ár í viðbót lesandi við rúmstokkinn
og það er góð tilhugsun.
Höfundur er pabbi.