Börn og menning - 01.04.2006, Page 38

Börn og menning - 01.04.2006, Page 38
38 Börn og menning Úr s I I iðjm höffMwdar Björk Bjarkadóttir jr i Mánudagur 6. febrúar 2006 2.01 Alexander, sex ára sonur mínn, stendur í dyragættinni. Svefndrukkin get ég ekki annað en brosað í myrkrinu er ég sé hann koma hlaðinn. (annarri hendi heldur hann á litlum kodda og tuskumús og í hinni á stórum kodda og glasi. Augnabliki síðar klofar hann yfir mig og leggst í rúmið mitt. 6.06 Da da da... Eva, eins árs dóttir mín, er vöknuð. Ma ma ma... Svo koma fleiri hljóð. Da da da... 6.25 Drattast á fætur. Hugsa um allt sem ég þarf að gera í vinnunni. Guð, hvernig á ég að vera skapandi í dag? 9.05 Komin í vinnuna eftir að hafa gefið Evu graut, skipt á bleiu, dregið Alexander frá legókörlunum sínum, hjálpað honum í föt, smurt nesti, sagt hundrað sinnum: „Þú verður að flýta þér, þú ert of seinn, borða matinn, halda áfram." Hver kannast ekki við þetta? Að koma börnunum sem hafa ekkert tímaskyn út úr húsi. Þau skilja ekki af hverju þau geti ekki búið til karl úr seríósinu eða teiknað geimflaug í rólegheitum. Ég er komin á vinnustofuna þegar ég sé að ég er í öfugri peysunni, í blettóttum buxum og hef bara sett maskarann á efri augnahárin. Andskotinn. Jæja, vona að enginn taki eftir því. Erfitt, þar sem ég deili vinnustofu með sjö öðrum hönnuðum í „bóheimhverfi" Oslóborgar. „Basta illustrasjon og design", heitum við. Við erum öll sjálfstæðir atvinnurekendur en deilum húsnæði og hugmyndum. Þreytan hverfur yfir kaffibolla og alltof mörgum súkkulaðibitum. Hvað bíður mín í dag? Ég vil helst hafa nokkur ólík verkefni í gangi í einu. Hafa marga bolta rúllandi, hlaupa á eftir og ýta aðeins áfram. Heilræði mömmu frá því ég var að lesa undir próf sem krakki hefur ætíð fylgt mér. Ef hausinn var orðinn fullur af orðum, sagði hún mér að hætta að lesa og leyfa heilanum að vinna úr þeim. Hann héldi áfram að vinna þótt hann tæki ekki lengur við upplýsingum. Þannig hef ég alltaf unnið. Ef mér finnst ég ekki komast áfram með eitt verkefni, hætti ég og byrja á næsta og tek svo aftur upp þráðinn seinna. Ég vil helst mála, teikna, skrifa og vinna í tölvunni á hverjum degi. í dag þarf ég til dæmis að ganga frá texta fyrir nýja barnabók og gera skissur. Ég þarf að ganga frá myndskreytingu, teikna myndir í skólabækur og skanna inn og ganga frá hönnun á fána. Humm, var það eitthvað fleira? Jú, svo ætla ég í leikfimi. Er búin að vera á leiðinni frá því fyrir jól en það virðist einhvern veginn aldrei vera tími. Kannski á morgun, eða í næstu viku eða kannski á næsta ári? Ég geng bara heim úr vinnunni og geri magaæfingar í kvöld ... Oft fæ ég þessa sígildu spurningu: „Hvaðan færðu allar hugmyndirnar að bókunum þínum?" Maður reynir að svara eins og allir hinir og svarið er ekkert sérstaklega frumlegt. Hugmyndirnar koma alls staðar frá, mest úr mínu daglega lífi og tengjast oft börnunum. Hugmyndin að Mamma er best kom þegar ég var ófrísk af Evu og gat ómögulega haldið á Alexander í fanginu þegar ég las fyrir hann á kvöldin. Hann var reyndar ekkert reiður, tók því með jafnaðargeði og settist bara við hliðina á mér. Ég var hins vegar vonsvikin og saknaði þess að hafa hann ekki í fanginu. Maður þarf ekki að fara langt til að fá hugmyndir. Bara það að loka augunum og hugsa fær mann til að finna upp á ýmsum hlutum í kollinum. Ég á það líka til að vakna að

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.